Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 122
ert um þann trúarhita gefið sem blómstr-
aði í húsagatilskipuninni, en fór æ
minnkandi er leið á 19. öld.
Karlmenn, ást og hjónaband
Hvernig kynin drógu sig saman og
stofnað var til hjónabanda á 19. öld var
með nokkuð öðmm hættí en nú tíðkast.
Oft var þar krafan um ást víðsfjarri. Kon-
ur þráðu þó ástina; að giftast þeim sem
þær elskuðu og vera elskaðar. Yfirstéttar-
konur gátu frekar leikið sér með ástina.
Þær áttu fjársterka að svo þær gátu setið
heima lengur en fatækar alþýðustúlkur
og kjáð við hitt kynið. 1 sendibréfi til vin-
konu sinnar árið 1872 skrifar yfirstéttar-
stúlkan Þóra Pétursdóttir um ástamál
sín:
Með Queen fór núna ungur, enskur
piltur, 18 ára, ég man ekki nafn hans,
en þess betur eftir andlitinu. I think I
am falling in love with him ... Mér lá
við að gráta þegar hann fór. Himininn
grét hástöfum, því rétt sem Queen
var að sigla burt af höfninni, var eins
og hellt væri úr fotu, svo mikil var
rigningin ... Eg held samt ég væri ó-
huggandi, ef ég hefði ekki annað eftir,
sem er nærri því enn betra, og það er
-Lordinn þinn-, hann er dæmalaus.
Við K. emm hreint frá okkur. Þú sérð
ég hef stórt hjarta, fýrst það rúmar tvo
í einu, ... 11
Konur vom óhressar með hömlur
þjóðfélagsins á ástum þeirra. Þeim fannst
þær svo sannarlega ekki alltaf eiga skilið
fordóma þjóðfélagsins fyrir sakir sem þær
að vilja ekki giftast eða að eignast bam i
lausaleik. Stundum gátu þær staðið upp á
móti straumnum en oftar, grunar mig,
þurftu þær að beygja sig. Gunnþómnn
Sveinsdóttir var ein þeirra sem klauf sig
frá hefðunum og púaði á eiginmenn.
Hún fæddist 1885, var einstæð ntóðir og
vinnukona en náði þó með útsjónarsemi
og hörku að konia sér áfram. Hún lét
byggja hús á Sauðárkróki þar sem hún
opnaði verslun. Hún vann mikið í bygg-
ingunni sjálf, þvi henni ofbauð að taka
tímavinnumenn til allra verka. Dag einn
kom vinkona að máli við hana og sagði sí
svo að hún skyldi nú betur fara að gifta
sig en vera að atast í þessu. Gunnþómnn
vissi lengra nefi sinu og svaraði:
„Heldurðu að ég þurfi ekkert að gera, ef
„Bóndalaus ég braska hcr, bóndinn erogfríiin.
ég gifti mig? Ég held ég vilji nú heldur
atast í þessu og öðm eins, heldur en
leggja út í að gifta mig.” Að endingu
samdi hún fjórar stökur af þessu tilefni.
Hér er ein þeirra.
Bóndalaus ég braska hér,
bóndinn er og frúin,
því forðum reyndist fallvölt mér
frænda og vina trúin.12
1844 skrifar Guðríður Magnúsdóttir
til Finns bróður sins. Ahyggjur af framtíð
Sigríðar dóttur hennar vom henni efst í
huga. Hún var orðin gjafvaxta og pilt-
arnir famir að lít’ana hým auga. Þar kom
að einn bað um hönd dótturinnar sent
svaraði að hún
...hefði öngvan hug á honum eða
neinum manni, sem hún hefði augum
litíð, svoleiðis, að sig langaði til að eiga
þá. Þar fýrir vissi hún ekki, hvort það
ætti fýrir sér að liggja að deyja ógift,
mundi því vera vogun að afsegja
þetta, ef hann væri eins guðelskandi
og góður og madaman segði, því um
gáfur hans og lærdómsdugnað og
sparsemi væri öllum augljóst.13
Staða Sigríðar var erfið. Hún vildi bíða þar
til hún rækist á þann sem næði ástum
hennar. En með væntíngum um ást, eða
“hafa hug” á þeim útvalda var hún um
leið að hætta á að missa góð mannsefni út
úr höndunum. Jafnvel að deyja ógift. Það
var nú ekki það sem konum var ædað.
Þær áttu að elska og eignast böm, í
heilögu hjónabandi. Hlutskipti þeirra
sem ekki giftust var oft vinnumennska.
Ekki var þó tómt ástleysi og einber
hagsýni í hjónaböndum síðustu aldar.
Oft kraumuðu eldheitar tilfinningar und-
ir torfþökunum. Rétt eins og í dag gátu
karlmenn fýllt hjörtu kvenna jafnt af
gleði sem sorg eins og dæmin hér á eftir
sýna. Júlíana Jónsdóttir orti fýrir aðra
konu ljóðið “Skilnaðatskrá”.
Að eiga þræl fýrir einkavin
aldrei mun tryggðum fest;
þar á jeg skyldi þekkja skyn;
þú hefur kennt mjer best.
Sakleysis þú með blíðum blæ
brostir mjer hýrt á mót,
en höggonnsins grimmd, - jeg
gleymt ei fæ-
geymdir i hjartarót.14
Ingunn Jónsdóttir segir sögu af hjón-
um sem hún kynntist ung. Þau voru
komin af æskuskeiði og höfðu verið farsæl
og samhent í sínu hjónabandi. Síðan
gerðist það eins og Ingunn sjálf orðar það
120 SAGNIR