Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 8

Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 8
Hápur manna saman kominn í miðborg Rcykjavíknr á 17. júní. Er eining þeirra raunveruleg? vinnuleysis og vonleysis skiptir spum- ingin um þjóðerni æ meira máli þegar skipta á gæðurn heimsins. Hið sama gildir einnig i Þýskalandi og í löndum fýrrver- andi Júgóslavíu, þar vaxa nú upp litlir Þjóðveijar af t.d. tyrknesku eða víetnömsku bergi brotnir senr margir hverjir munu eiga samborgurum sínum grátt að gjalda þegar fram líða stundir. Þessi harmleikur nútímans er ekki sist umhugsunarefni i ljósi þess að á árunum eftir síðari heimsstyijöldina trúðu menn þvi staðfásdega að þjóðemisátök heyrðu nú sögunni til.2 Síðustu ár hafa af- sannað það eftirminnilega, raunar virðist oft frekar eins og ballið sé rétt að byija. Það fer því ekki hjá því á tímum sent þessum að menn verði æ uppteknari af að skoða eðli þjóða og spyrji sjálfa sig spum- ingarinnar: Hvað er þjóð? „Þjóðin er sál,andlegt lögmál “ Slíkar spumingar em raunar ekki alveg nýjar af nálinni. Arið 1882 flutti franskur fræðimaður að nafni Emest Renan fýrirlestur við Sorbonneháskóla i París um nákvæmlega þessa spumingu, fýrirlesturinn nefndist: „Hvað er þjóð?” Ymsum kann að virðast sem hér sé spurt um sjálfsagðan hlut. An efa telja margir sig fýrirhafnarlítið geta talið upp nokkra þætti sem gera þjóð að þjóð; innan sömu þjóðar tali menn sameiginlegt tungumál, séu af sama kynþætti, búi innan sömu landamæra, hafi jafnvel sömu trú. En Renan hafnar þessum þáttum öllurn og segir að hvorki tungumál, kynþættir, trúarbrögð né landamæri ráði í raun nokkm unr hvemig þjóðir verði til og þróist.3 Hvað varðar kynþætti þá era hreinir kynþættir alls ekki til. Til dærnis eru Frakkar m.a. af germönskum og keltneskum uppruna og Þjóðveijar af keltneskum og slavneskum.'1 Tungumál era langt i frá að hafa nokkur úrshtaáhrif á hvernig þjóð verður að þjóð; þjóðir Suð- ur-Ameríku tala spænsku án þess að mynda eina þjóð en innan svissnesku þjóðarinnar era hins vegar töluð þijú eða Qögur tungumál. Sama er að segja um t.d. Belgíu og Finnland þótt Renan nefni ekki þessi lönd, í Belgíu er töluð franska og flæmska en ekki belgíska og í Finnlandi finnska, sænska og samíska. Þetta vita raunar margir fullvel en líta samt áfranr á Finna og Belga sem þjóðir. Menn játa mismunandi trú innan sömu þjóðar og þótt það sem við köllum nátt- úraleg landamæri skipti töluverðu máli fýrir skiptingu þjóða er ekkert sem hent- ar betur til að réttlæta ofbeldi en hug- myndin um að tiltekin þjóð eigi rétt á að ná til einhvers tiltekins fjalls eða ár.5 Þama er Renan búin að taka í burt flest það sem í huga okkar rnyndar þjóð. Og hann heldur áfram að vega að rót- grónunt viðhorfum okkar, næst fýrir ljánum er sú hugmynd nútímamannsins að fólk af sama kynstofni sem tali sama tungumál o.s.frv. skuli fýrir alla rnuni rnynda fullvalda ríki. „Hvilík" villutrú segir Renan, menn ragla saman í stór- um stil hugtökunum „kynþáttur” og „þjóð” og veita hópum sem tala sama mál og eru af sama kynstofni sjálfstjórn- arvald og réttindi sem fullvalda ríki! Slikar ráðstafanir, þ.e. að setja sama- senunerki á milli kynþáttar, tungumáls og sjálfstjórnarvalds, era tiltölulega nýlegt fýrirbæri í sögu mannkyns. Mannlegt samfélag og stjómarfýrir- komulag hefur alls ekki byggt á einsleit- um hópum eins og nútímahugmyndin urn þjóð gerir ráð fýrir segir Renan. Með- al Araba var sanrfélagið samsett úr ætt- bálkum, bandalög landa hafa verið grundvöllur þess líkt og á timum rónt- verska heimsveldisins og raunar era Sviss og Bandaríkin rikjabandalög, það var trúin sem hélt þjóð gyðinga saman þótt hún væri dreifð um mörg lönd. Svo ólík hafa samfelagsformin verið og að lita framhjá þvi hve munurinn er mikill á milh manna eða hópa sem búa innan sama samfélags eða stjómarfýrirkomulags býður upp á slænian misskilning. 6 Nú kann einhver að vera orðinn ragl- aður i kolhnum. Hvað er þá eiginlega þjóð? Jú, bíði menn hægir, tvennt er það sem að mati Renan þarf til að þjóð sé þjóð. Annars vegar er það sagan, „hinn ríki sameiginlegi arfur minninganna”, frækileg fortíð og dýrðarljónti auk sant- eiginlegra þolrauna. Hins vegar þarf viljann, viljann til að mynda samfélag og halda áfram að rækta hinn sameiginlega arf. Þjóðin er að mati Renan andlegt lög- mál, sál sem samansett er úr þessum tveimur þáttum7, og þó þarf einn hinn þriðja þátt til að sálin virki; hann er sá að kunna að gleyma því sem ekki kentur heim og saman við þá einingarímynd sent við viljum hafa af þjóðeminu okkar þegar kemur að sagnfræðiritun.8 Þjóðir era ekki eihfar, þær verða til og þær líða undir lok'* en tilvera þeirra er komin undir þvi sem Renan nefnir daglega atkvæðagreiðslu þegnanna um það að vera þjóð."’ Af þessu sjáum við að þeir þættir sem sameiginlega mynda þjóð era huglœgir, ekki hlutlægir. Það er ekkert eihft eða hludægt við fýrirbærið þjóð, hún er ein- ungis til vegna þess að meðhmir hennar velja í þá átt. Það er val Frakka bæði að vera Frakkar og að búa við ffanska sjálf- stjóm, hið santa er að segja um Þjóðveija, já og samkvæmt þessu gildir hið sama unt Islendinga! 6 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.