Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 102

Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 102
fógeta. Skömmu síðar hverfa mennimir með stúlkuna á milli sín út í hrollkaldan norðanvindinn. Sveinn Bjarnason stendur eftir á hlað- inu og horfir á eftir fósturdóttur sinni í fýlgd mannanna tveggja. Osjálfrátt flögr- ar hugurinn til þeirrar stundar er Krist- björg lida kom til Sauðagerðis, þá á fjórða ári. Þeim hjónum hafði ekki auðnast að eignast börn og tóku Kristbjörgu sem eigin dóttur. Foreldrar hennar höfðu ekki verið í stakk búin til að sjá henni farborða, fáðirinn hafði takmarkaðar tekjur af handtökum og þáði af sveit á meðan móðirin sat heima með ungan son þeirra.2 Sveini var þungt i sinni þegar hann gekk aftur inn í bæinn og lokaði hurð- inni. Illur grunur sem undanfarið hafði leitað á Ituga hans blossaði upp á nýjan leik, en hanti vonaði hið besta fyrir hönd nítján ára fósturdóttur sinnar. Forboðin ást I húsi fógetans var kalt. Þar sem Kristbjörg Björnsdóttir sat og beið eftir yfirheyrslum fór annað slagið skjálfti um líkama hennar, en kannski stafaði sá skjálfti af öðmm orsökum. Um huga hennar flugu hundrað hugsanir, hver úr sinni átt, en enduðu þó allar í sama punktinum. Þessi hræðilegi dagur fleytti henni aftur í martröðina sem hún var að rísa upp úr, en var nú sokkin í dýpra en nokkru sinni fyrr. Martröð sem hófst með hræðilegum grun er læddist inn í huga hennar með fýrstu vorboðunum og náði hámarki einn nöturlegan og skelfilegan dag að loknu sumri. Hún vissi ekkert hvert hún átti að snúa sér. Þorlákur var farinn úr vistinni upp í Borgarfjörð, en hún sat ein eftir og þorði ekki að segja fósturforeldrum sínum frá afleiðingum ástarfunda hennar og Þorláks. Enda hafði þeim verið illa við hann og þá sér í lagi Sveini sem hafði ímugust á honum.3 Kristbjörg vissi því ekki sitt rjúkandi ráð, var hrædd um að þeim myndi stórlega mislíka að hún ætti barn með Þorláki og greip því til eina ráðsins sem gafst í stöð- unni. Hún þagði. Ædaði sér að láta tímann leysa málið og bíða þess að einhver annar en hún tæki af skarið. Þannig leið sumarið 1874 áfram. Hún gildnaði ekki meira en svo að gömlu fötin leyndu þunganum að mestu, en hún gættí þess þó ætíð að klæðast sem flestum flíkum og var að jafnaði í fjórurn klæðnuð- um og síðri peysu utan yfir. Eigi að síður tók þeim sem nærri henni stóðu að gmna að ekki væri allt með felldu. Þegar langt var liðið á sumarið spurði Guðlaug Magnúsdóttir fóstumióðir hennar, hvort eitdivað amaði að henni þar sem hún væri svo föl og tekin í framan.4 En Kristbjörg tók þessu falega og sagði að líklega yrði um sig sagt, að hún væri vanfær. Lét þá Guðlaug talið niður falla, þar sem hún vildi ekki gera fósturdóttur sinni órétt til. Fleiri tóku eftir því að unga stúlkan var ekki eins og hún átti að sér, þ.á.m. Sveinn fósturfaðir hennar. Enginn krafði Kristbjörgu þó sagna unt málið, en orðrómurinn var kominn af stað og varð þrálátari eftir því sem á sumarið og haustið leið. Leynd fyrir opnum tjöldum Kristbjörg situr enn og bíður þess að yfir- heyrslur hefjist. Hugurinn leitar stjómlaust fram og aftur í leit að úrræð- um, en þau finnast ekki. Unga stúlkan neyðir sig til að líta til baka og lifa atburð- inn skelfilega á nýjan leik. Hún leitar svara sem engin eru, þarfnast huggunar en finnur ekkert nema blákaldan veru- leikann. Haustíð læddist að með skuggum sín- um. I tuttugustu viku sumars fara hjónin í Sauðagerði í ferðalag upp í Borgarfjörð. A leiðinni ræða þau heilsu Kristbjargar og er greinilega órótt um að stúlkan kunni að vera ófrísk. Spyr Sveinn konu sína hvort það geti hugsast að hún muni eiga barnið á meðan þau séu í burtu, en það aftekur Guðlaug með öllu. Eigi að síður ákveður Sveinn að spyrja sira Bjama Sigurðsson að Lundi i Borgarfirði hvort Þorlákur Kristjánsson vinnumaður hans ætti eitt- hvað kaup inni hjá presti og ef svo væri að halda þvi þá eftir, ef ske kynni að Þorlákur hafi skilið eitthvað eftir sig í vistinni í Sauðagerði og meintí hann með því Kristbjörgu vanfæra.5 Ljúka þau hjónin siðan erindum sinum og halda heirn á leið. Daginn áður en Sveinn og Guðlaug koma heim er Kristbjörg að sinna verk- um sínum i bænum. Hún liggur á hnjánum og þvær gólf þegar henni skyndilega verður illt, likt og hún sé með kveisu. Stúlkan stendur því upp og leggst í rúm sitt upp á lofti. A bænum em einnig tvö böm og stálpaður piltur á- samt tveimur vinnukonum, þeim Guð- rúnu Helgadóttur fimmtugri og Krist- björgu Þórðardóttur, tuttugu og eins árs gamalli. Kristbjörg Þórðardóttir var ný- komin í vistina úr Biskupstungum og Guðrún hafði verið í kaupavinnu yfir sumarið. Reyndar hafði Guðrún heyrt eitthvert umtal um að Kristbjörg fóstur- dóttir húsbænda væri með bami, en ekki hugsað meira um það vegna þess að henni var kunnugt um að stúlkan hafði neitað þvi þegar húsmóðirin spurðist fýrir um heilsu hennar.6 Þar sem Kristbjörg liggur upp á lofti í rúmi sínu finnur hún að eitthvað er að ske innra með henni. Hún dragnast þó niður og skammtar bömunum að borða, en leggst að því búnu í hjónarúmið niðri. Þar sem hún liggur í rúminu missir hún mikið blóð, nætuigagnið orðið fullt og rúmfötin útötuð ásamt þeim klæðum sem hún var i. Þær Guðrún og Kristbjörg Þórðardóttír koma við og við til að líta eftir henni, en hún segir þeim að hún hafi einhveija kveisu og með henni standi blóð. Láta þær það gott heita. Þeg- ar hún hefir legið þama nokkra stund, finnur hún að bamið er að því komið að fæðast. I sömu andrá kemur Kristbjörg vinnukona inn í herbergið og færir henni mjólkurtevatn og tvíböku. Hún sest síðan í rúmið á móti. A meðan hún situr þar er bam ungu stúlkunnar að fæð- ast. Eftir litla stund stendur hún upp og gengur að dymnum. Þegar hún er komin i dymar verður bamið viðskila við móður sína og hljóðar. Þetta litla org er þó ósköp lágt og vesældarlegt undir sænginni, sem hggur yfir móður og bami. Vinnukonan gengur út og lokar á eftir sér hurðinni.7 Unga stúlkan liggur ein eftir í rúminu með nýfætt bamið. Nú var felu- leiknum lokið, nú varð hún að taka ákvörðun um hvað gera skyldi. Ættí hún að kalla á þær Guðrúnu og Kristbjörgu og segja þeim si sona að hún hafi ekki verið að missa blóð, heldur hafi þetta nú verið bam sem hún skilji ekkert í hvemig sé til komið. Eða, og tilhugsunin varð skyndilega óbærilega áleitin, ætti hún, þar sem enginn virtist vita af barn- inu, að losa sig einhvem veginn við þetta óæskilega afkvæmi sitt og hverfa aftur á vit hins áhyggjulausa, dásamlega hvers- dagsamsturs, laus við hina þungu byrði líkama og sálar. Skyndilega nær þessi mikla geðshrær- ing tökum á henni, án þess að hugsa 100 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.