Sagnir - 01.06.1993, Side 91

Sagnir - 01.06.1993, Side 91
Sigurðtir Jónsson fyrsti fangavörður hegningarhússins Allt í tugthúsið Þrátt fyrir ákvarðanir þingheims voru hvorki fangelsi eða hegningarhús reist hér á landi áður en hegningarlögin öðluð- ust gildi þann 1. ágúst 1870. Haldið var áíram að refsa sakamönnum með hýðing- um með sama hætti og áður. Þegar Guð- laugur Sigurðsson fyrsti fangi hegningar- hússins braut af sér í annað sinn árið 1873 var hann dæmdur „til 27 vandarhagga- refsingar, [og] í 3 sinn ... til 2x27 vand- arhaggarefsingar."26 Allt vegna þess að ekkert fángelsi eða hegningarhús var starfrækt hér á landi. Breytinga var hins vegar að vænta og þann 4. mars 1871 var gefin út tilskipun um byggingu hegn- ingarhúss og fangelsa á Islandi. Þar sagði m.a.:27 I kaupstaðnum Reykjavík skal byggja hegningarhús; í því skulu útteknar vinnuhegningar þær, sem menn eru dæmdir i fyrir afbrot ... [og til] að framkvæma fangelsishegningar skal fyrst urn sinn byggja sjö fangelsi, sumsé eitt í sameiningu við hegning- arhúsið handa Reykjavík og nokkrum hluta suðuramtsins, og sitt á hveijum stað, á Vestmannaeyjum, Stykkis- hólmi, Isafirði, Akureyri, Húsavík og Eskifirði. ... Þar að auki skulu fangels- in vera varðhaldsfangelsi fyrir þá þinghá, þar sem hvert einstakt fang- elsi er... Hegningarhús og fangelsi voru á næsta leyti og þar með styttist biðin í að hægt væri að firamfylgja lagabókstafnum út í ystu æsar. Arið 1872 var byggingu húss- ins við Skólavörðustíg hafin og þá birtist grein í Þjóðólft þar sem allri málsmeðferð við byggingu hússins var mótmælt. Ekki þótti höfhndi að staðið hefði verið nógu vel að öllu saman. Slæmt þótti að danskur trésmíðameistari Kleintz að nafhi hafði verið fenginn til að sjá um verkið og ör- uggt þótti að hann kæmi aldrei til lands- ins til að fylgjast með framgangi verksins og enn verra væri „að ekki hefði verið leitað á neinn af vorum byggingarmeist- umm hér í Reykjavík til að taka að sér tugthúsbyggingu þessa ... t.d. trésmiðina Einar Jónsson, og Jóhannes Jónsson. ... Eigi mun heldur Sverri múrara og stein- höggvara Runólfsyni hafa verið gjörður kostur á að taka að sér þessi byggingar- verk“.28 og fhndið var að staðsetningu hússins „í ggótholtinu fyrir ofan alla kaupstaðarbyggðina"29 þar sem erfitt væri að komast þangað uppeftir. Verst þótti þó að nú færi allt «í tugthúsið»! landsyfirrétturinn æðsti dómstóll landsins og stjómvöld staðarins: lögreglustjóm og bæjar- stjóm, allt þetta skal hneppa langt út fyrir borgina og «í mgthúsið». Hver hefúr séð eður heyrt getið, nokkurstaðar um víða veröld, um ráð- og dómhús langt utan alla borgarbyggðina, eitt sér, auk heldur «í tugthúsinu» eður ofan á þvi?” Vistin við Skólavörðustíg Smíði hegningarhúsins var lokið í byijun árs 1873 en áður en það gæti tekið til starfa varð að selja því starfsreglur og ráða fangavörð. Um haustið birtist í Víkverja auglýsing þar sagði að yfir „hegningar- húsið í Reykjavik á að seþa ráðsmann, og skal hann geyma varðhaldsmanna, sjá um vinnu þeirra og standa fyrir matreiðslu handa þeim.“31 Fimm menn sóttu urn starfið og var Sigurður Jónsson úr Reykjavík ráðinn og sendur til Dan- merkur. Atti hann að kynna sér starfsemi hegningarhúsa þar í landi og þann 3. janúar 1874 berst skrifstofu landshöfð- ingja bréf frá hegningarhúsinu í Vébjörgum, þess efnis, að maður að nafni Sigurður Jónsson væri þar í bænum að kynna sér starfsemi hegningarhússins.32 Arslaun Sigurðar Jónssonar fangavarðar vom „400 rd. á ári, og þar að auki ... veittur matur handa þremur mönnum daglega, og eldiviður ókeypis“33 og árið 1878 vom mánaðarlaun hans orðin 66 krónur og 66 aurar en árið 1880 höfðu launin hækkað í 83 krónur og 33 aura og voru komin upp í 100 krónur sjö ámm síðar.34 Þann 28. febrúar 1874 var síðan gefin út tilskipun þess efnis að frá og með 15. ágúst skuh „öll hegningarvinna, sem menn em dæmdir í ... úttekin í hegn- ingarhúsinu í Reykjavík. ... [og] fang- elsishegningar ... í fangelsi því, sem búið er að koma upp“3S Hegningarhúsið við Skólavörðustíg var þar með tilbúið til SigurðurJónsson fangavörður ásamtJjölskyldu sinni á heimili sínu á 2. hæð Hegningarhússins SAGNIR 89
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.