Sagnir - 01.06.1993, Page 103

Sagnir - 01.06.1993, Page 103
sviptir hún af sér sænginni, leggur bamið frá sér og augu hennar leita með trylltum svip um herbergið, án þess þó að vita að hverju þau eigi að leita eftir. An þess að fa neitt við ráðið staðnæmast ráðvillt augun á litlum sjálíikeiðung á hillu við hlið rúmsins. Stjórnlaus, þvöl höndin falmar eftir hnífnum, titrandi opnar stúlkan kutann, hefur hann á loft og heimurinn umhverfist í undarlegri móðu. Þegar hún kemur aftur til sjálfrar sín með agnarlírið lik sér við hlið er heimurinn breyttur. Það er skuggsýnt og henni stendur á sama um allt. Hún skreiðist fram úr, leggur blóðugt bamið undir koddann og leggst í rúmið aftur. Þegar Guðrún kemur stuttu síðar inn, biður stúlkan hana að búa um en leggst sjálf í rúmið við hliðina. Guðrún gerir það sem Kristbjörg biður um, tekur upp koddann og hristir hann til, býr um rúmið* og gengur að þvi loknu út, en stúlkan sofnar önnagna af þreytu. Daginn eftir vaknar hún á níunda tímanum og atburðir gærdagsins em fjarlægir og óraunverulegir i fyrstu. Litla likið undir koddanum er þó hvorki fjarlægt né óraunverulegt. Stúlkan fer á fætur, svipast um frammi og þegar hún er þess viss að enginn sjái hana laumast hún fram og nær í lítinn strigapoka. Hún lætur bamið í pokann og sætir síðan feris að sleppa óséð út úr bænum. Þegar hún kemur út heldur hún í vesturátt frá bænum og stoppar við mógröf eina skammt frá. Þar hendir hún pokanum niður i gröfina og leggur síðan nokkra móhnausa ofan á.9 Að þessu loknu held- ur hún aftur til bæjarins og tekur til við verk sín, eins og ekkert hafi í skorist. Þegar fósturforeldrar hennar koma heim, segir Guðrún Helgadóttur þeim fregnir af veikindum Kristbjargar, en ekki kvaðst hún vita hvemig á þeim stæði. I framhaldi af þessum fregnum heyra þau hjónin ávæning um að Kristbjörg hafi verið ólétt, og fer þá Guð- laug rakleiðis til hennar og spyr hvort veikindin hafi stafað af völdum bamsfæð- ingar. Sem fyrr neitar Kristbjörg öllu og segist aðeins hafa misst mikið blóð, því blóð hafi lengi staðið með henni. Taka fósturforeldrar hennar þessu trúanlega og er ekki minnst á þetta aftur.10 Lifið heldur áffarn sinn vanagang, en aðeins í stuttan tíma. Dag einn í lok október, hrollkaldan haustdag, er Kristbjörg stödd ut á hlaði þegar hún verður vör manna- ferða. Hún rýnir stutta stund á mennina, sem skunda yfir freðið grasið, og þegar hún ber kennsl á þá hendist hún inn í bæinn og skellir hurðinni. Upp kemst um síðir Kristbjörg Bjömsdóttir situr frammi fyrir bæjarfógeta L. E. Sveinbjömssyni og segir hægt og næsta óeðlilega rólega dapurlega sögu sína. Hún viðurkennir strax að hafa í lok surnars fætt barn í heiminn. I fyrstu reynir hún þó að telja mönnum trú um að bamið hafi feðst látið og Guðrún Helgadóttir hafi þegar að lokinni fæðingu fárið með líkið eitthvert sem hún sjálf vissi ekkert urn. Þá er Guðrún yfirheyrð og segist ekkert um fæðingu þessa vita. Þegar þær em síðan “confronteraðar”, leiddar saman, gefur Kristbjörg sig brátt og viðurkennir að hafa fætt bam á laun, fýrirfarið því og falið i mógröf En með því að komið er langt fram á kvöld og niðamyrkur skollið á, ákveður fógeti að fresta yfirheyrslum fram til morguns og freista þess þá að finna likið.11 Arla næsta dags eru bæjarfógeti og aðstoðamtenn hans tveir, ásamt Kristbjörgu, komin út að Sauðagerði þar sem hún vísar þeim þegar á pokann. Hann er tekinn upp úr gröfinni, lagður á grafarbarminn en annar mannanna sendur heirn að Sauðagerði að ná í stokk til að láta líkið í. Að því loknu var pokinn ristur utan af líkinu og það lagt í stokk- inn. Þegar kornið var aftur að bæjar- þingastofunni var hlutaðeigandi læknir þegar beðimi um að skoða bamið. Komu þá í ljós átta stungur í brjósthol barnsins, þar á meðal tvær í hjartastað. Nú er Kristbjörgu sýndur sjálfskeiðungur með brotinn odd, og segir hún að þetta sé hnífiirinn sem hún hafi notað, en hann hafi þó brotnað nokkm eftir verknaðinn þegar hún risti bein til mergjar.12 Næstu daga voru þeir yfirheyrðir sem tengdust á einhvern hátt atburðunum og þann 8. desember 1874, rúmum mánuði eftir að lögregluþjónamir tveir vom sendir eftir Kristbjörgu, lá fýrir niðurstaða undirréttar:13 „Akærða Kristbjörg Bjöms- dóttir skal sæta 8 ára betrunar-húsvinnu og greiða allan af varðhaldi sínu og máli þessu löglega leiðandi kostnað, þar á með- al 5 rd. til svaramannsins...” SAGNIR 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.