Sagnir - 01.06.2001, Page 88

Sagnir - 01.06.2001, Page 88
orkestri en þá ber að taka tillit til kraftanna hér. Mér leist þannig á að Passacaglia þín væri þrælstrembin að spila - einkum í samspili. Ef þú ert búinn með hana núna þætti mér vænt um ef þú vildir senda mér hana, og skal ég passa hana vel að eigi glatist.51 Ekkert varð þó úr áformum Páls að leika orgel- konsert Jóns Leifs við Alþingishátíðina, enda verkið ekki tilbúið fyrr en mánuði eftir samkomuna.52 Jóni hljóta það að hafa verið mikil vonbrigði að vera ekki viðriðinn hátíðarhöldin á Þingvöllum árið 1930. Hróður Páls ísólfssonar var hins vegar mikill að hátíðinni lokinni. Líkt og með fleiri misheppnaðar tilraunir Jóns Leifs til að hafa áhrif á íslenskt tónlist- arlíf rann ráðagerð hans um Alþingishátíðina í sand- inn fyrst og fremst vegna eigin óbilgirni. Svo fór sem fór vegna staðfastrar trúar hans á eigin hæfileika og köllun til tónsmíða sem og lítils álits hans á hæfi- leikum flestra sem við tónlist fengust á íslandi og tor- tryggni hans í garð þeirra. Ástæður þess að Jón Leifs sendi ekki Þjóðhvöt sína til kantötukeppninnar voru aftur á móti fjölþættar. Ekki er hægt að skella allri skuldinni á einstrengingshátt tónskáldsins og enn síður er hægt að sakast við Pál ísólfsson. Persónu- legar aðstæður Jóns Leifs áttu stóran þátt í því að hann ákvað að hverfa frá keppninni. Tilvísanaskrá: 1 Grein þessi er unnin upp úr hluta BA ritgerðar höfundar: „ómstríð hljómkviða um- bótanna. Af samskiptum Jóns Leifs og Páls ísólfssonar.“ BA ritgerð í sagnfræði við Há- skóla íslands, 2001. Lbs-Hbs. 2 Áður en Jón Leifs hélt til Þýskalands til náms fékk hann leyfi Alþingis til að breyta nafni sínu úr Jón Þorleifsson í Jón Leifs. Hann mun þá hafa haft í huga að það gæti reynst útlendingum torvelt að bera fram upphaflegt föðurnafn hans. -Hjálmar H. Ragnarsson, „Jón Leifs.“ Andvari XXXII (1990), bls. 5-38. Sjá bls. 13. 3 Hochschule f«r Musik und Theater Leipzig. Hochschulbibliothek Bereich Archiv (hér eftir H.f.M.u.Th.). [án númers] Inskriptionen. 4 H.f.M.u.Th. [án númers] Inskriptionen. 5 Hinn 2. apríl árið 1843 var fyrsti þýski tónlistarskólinn stofnaður í Leipzig. Sex kenn- arar voru ráðnir við skólann, þeir Felix Mendelssohn-Bartholdy, Moritz Hauptmann, Robert Schumann, Ferdinand David, Christian August Pohlenz og Carl Ferdinand Becker. í upphafi var skólinn til húsa í byggingu á lóð Gewandhaushljómsveitarinnar milli Neumarkt og UniversitátsstraSe í Leipzig. Árið 1876 hlaut skólinn heitið Königliches Konservatorium der Musik zu Leipzig og 11 árum síðar eða árið 1887 eign- aðist skólinn húsnæði við Grassistrafie 8, en þar starfar skólinn enn í dag. Heiti skólans var breytt árið 1924 í Landeskonservatorium der Musik zu Leipzig og aftur árið 1946 er farið var að kalla stofnunina Hochschule fúr Musik og var þá fyrst tekið að kenna hana við Felix Mendelssohn. Tónlistarskóli þessi er nú starfandi undir nafninu Hochschule fúr Musik und Theater „Felix Mendelssohn-Bartholdy“. Sjá Röntsch, Paul, Festschrift zum 75 Jahrigen Bestehen des Königl. Konservatorium der Musik zu Leipzig am 2. April 1918. Leipzig, 1918, bls. 12. - Wehnert, Martin, Johannes Forner, Hansachim Schiller, Hochschule fiir Musik Leipzig. Leipzig, 1968, bls. 209. - Forner, Johannes, „Zeittafel zur Geschichte der Hochschule.“ Hochschule fiir Musik und Theater „Felix Mendelssohn Bartholdy “ Leipzig. 150 Jahre Musikhochschule 1843-1993. Ritstjóri Johannes Forner. Leipzig, 1993, bls. 230. 6 Sú lengsta og gagnorðasta birtist í Morgunblaðinu hinn 14. ágúst árið 1921 undir heit- inu „íslenskt tónlistarlíf.“ Hún vakti hörð viðbrögð. Til dæmis skrifaði Sigfús Einarsson dómorganisti svargrein í Morgunblaðið 22. september sama ár þar sem hann kallaði grein Jóns ungæðislegan vaðal og níð um þá sem um söng fengust á íslandi. Hann taldi þetta málæði Jóns vera til einskis gagns, allra síst honum sjálfum. 7 Spegillinn, 7. janúar 1928. 8 Magnús Jónsson, Alþingishátíðin 1930. Reykjavík, 1943, bls. 27-30. 9 Sumarið 1926 hafði íslendingum í fyrsta sinn gefist tækifæri til að hlýða á leik sin- fóníuhljómsveitar. Jón Leifs hafði ráðist í það viðamikla verk að fara með Fílharmóníu- hljómsveit Hamborgar í tónleikaferð til Noregs, Færeyja og íslands. Strax vorið 1927 byrjaði hann að undirbúa aðra ferð til íslands og hugðist hann þá koma með enn stærri hljómsveit og sigla með hana í kringum landið og halda tónleika í ýmsum kaupstöðum. Sú ferð átti að tengjast Alþingishátíðinni. 10 Magnús Jónsson, Alþingishátíðin 1930, bls. 30. 11 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Páll ísólfsson til Jóns Leifs, 15. nóvember 1927. 12 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Afrit af bréfi Jóns Leifs til Páls ísólfssonar, 25. nóvember 1927. 13 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Afrit af bréfi Jóns Leifs til Páls ísólfssonar, 25. nóvember 1927. 14 Visir, 15. desember 1927. 15 Vísir, 15. desember 1927. 16 Vísir, 17. desember 1927. 17 Morgunblaðið, 14. júní 1928. 18 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Páll ísólfsson til Jóns Leifs, 28. desember 1927. 19 Heimildum ber ekki saman um fjölda erlendra hljóðfæraleikara við Alþingishátíðina. Talan níu kemur fram í bréfi Haralds Sigurðssonar til Sigfúsar Einarssonar en mun vinnan við að fá hljóðfæraleikarana til íslands mest hafa mætt á Haraldi. Sjá Bjarki Sveinbjörnsson, „Tónlistin á íslandi á 20. öld. Með sérstakri áherslu á upphaf og þróun elektrónískrar tónlistar á árunum 1960-90.“ Ph.D. ritgerð í tónvísindum við Institut for Musik og Musikterapi við Háskóla Álaborgar, 1997. Lbs-Hbs, bls. 16. (Ritgerð Bjarka má einnig finna á veraldarvefnum á slóðinni www.ismennt.is/not/bjarki) 20 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Þorleifur Jónsson og Ragnheiður Bjarnadóttir til Jóns Leifs, 24. ágúst 1927. 21 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Jón Leifs til Þorleifs Jónssonar og Ragnheiðar Bjarnadóttur, 11. nóvember 1927. 22 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Afrit af bréfi Jóns Leifs til Páls ísólfssonar, 25. nóvember 1927. 23 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Afrit af bréfi Jóns Leifs til Kristjáns Alberts- sonar, 4. janúar 1928. Kristján Albertsson lagði þó seint upp laupana og reyndi ítrekað að fá Jón ofan af því að bera á borð deilur vegna Alþingishátíðarinnar. Kristján brást t.d. skjótt við þegar Sigfús Einarsson var skipaður söngmálastjóri eftir að söngmálanefnd Alþingishátíðarinnar hafði að mestu lokið störfum sínum og skrifaði Jóni: „Nú vil eg biðja þig eins, ef þú vilt mín orð að nokkru hafa: Að gera fyrst um sinn engan gauragang í blöðum út af skipun S. Ei. sem söngmálastjóra. Alþingishátíðin 1930 er ekki tónlistar- hátíð...“ Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Kristján Albertsson til Jóns Leifs, 17. júní 1928. 24 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Afrit af bréfi Jóns Leifs til Halldórs Kiljan Laxness, 29. janúar 1928. 25 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Afrit af bréfi Jóns Leifs til Páls ísólfssonar, 25. nóvember 1927. 26 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Páll ísólfsson til Jóns Leifs, 28. desember 1927. 27 Magnús Jónsson, Alþingishátíðin 1930, bls. 61-62. 28 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Jóns Leifs. Páll ísólfsson til Jóns Leifs, 20. desember 1928. 29 Lbs.-Hbs. [án númers] Gögn Páls ísólfssonar. Jón Leifs til Páls ísólfssonar, 9. janúar 1929. 30 Páll virðist ekki hrifinn af ljóðum Einars. í bréfi til Jóns segir hann: „Að E.B. fékk líka 1. verðlaun varð að samkomulagi - því miður - og má ég ekki skrifa nánar um það 86
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.