Sagnir - 01.06.2001, Síða 47

Sagnir - 01.06.2001, Síða 47
bæjarfógeta veitt heimild til starfsins en með öllu er óvíst hvort að þessu úrræði hafi verið beitt.89 En ekki er það ólíklegt; Jón Espólín greindi t.d. frá því að af 300 ráðstöfunarlausum mönn- um á Nesjum hafi 100 þeirra fengið eina máltíð á dag í tukthús- inu á kostnað konungs.90 Sem er með sanni gríðarlega há tala þegar litið er til þess að á árinu 1801 voru Reykvíkingar 307 talsins en í allri Gullbringusýslu voru íbúarnir samtals 2030.91 Frásögnin rennir þó stoðum undir þá kenningu að einhvers kon- ar mötuneyti hafi verið starfrækt í tukthúsinu eftir að föngun- um var sleppt. Lýður Björnsson telur jafnvel að frásögn Jóns Espólíns bendi til þess „að hér hafi verið um mun meira fyrir- tæki að ræða en ráðið verður af bréfi bæjarfógeta.“ En þá ber vel að merkja að Espólín, sýslumaður norður á landi, var víðs fjarri suðvesturhorni landsins og vel kann að vera að frásagnir um slíkt mötuneyti í tukthúsinu hafi verið ýktar. Stjórnvöld höfðu áður gripið til þess ráðs að stofna mötuneyti í tukthúsinu fyrir börn og ungmenni sem liðu skort í bænum. Þann 13. desember árið 1807 setti Rasmus Frydensberg bæjarfógeti á laggirnar mötuneyti sem var kostað af fátækrasjóði hreppsins, og starfaði það fram til aprílloka 1808. Þar fengu nítján börn á aldrinum 3-18 ára daglega úthlutað matvælum sér til lífsviðurværis.92 En það voru ekki bara ólánsamir fangar og umkomulaus börn sem þurftu að neyta hrossakjöts á styrjaldarárunum. fslendingar í ýmsum Iandshlutum neyddust til að fara eftir boði yfirvalda um hrossakjötsát þegar öll önnur aðföng voru úti- lokuð. Pétur Ottesen, sýslumaður í Mýra-og Hnappadalssýslu, tilkynnti sdftamtmanni árið 1813 að það væri mikill „mangel paa levnetsmidler“ og að hungurdauðinn væri „uundgaaelig.“ Þar af leiðandi var „hestekiödspisen bleven temmelig almindelig...blandt de fattigste af bonderne" sem höfðu það eitt að markmiði að „sdlle sin hunger.“93 Það fór augljóslega lítið fyrir fordómum meðal íslendinga á þessum árum, hvort sem um var að ræða þann möguleika að stinga upp hluta af beitarland- inu í því skyni að rýma fyrir matjurtagarði eða að neyta fjöru- grasa eða hrossakjöts. íslendingar reyndu satt að segja að takast á við harðindin með öllum tiltækum ráðum. Menn höfðu jafnvel gripið til þess úrræðis að éta skinn sér til viðurværis.94 í Strandasýslu, þar sem vetrarharkan var viðvarandi allt fram til júnímánaðar árið 1812, lögðu ýmsir íbúarnir sér til munns hordautt hrossakjöt og skinn af kúm, hestum, kindum og há- köllum. Einhverjir höfðu étið gamla útslitna skó í því skyni að halda lífinu. Það skal engum koma á óvart að fjöldi fólks dó úr sulti eða næringarskorti sökum neyslu á óhollri fæðu þennan sama vetur.95 Timbur, tjara, færi og járn íslendingar hafa löngum sótt sjóinn og dregið þaðan mikilvæg lífsmeðöl á land. En viljinn til þess að sækja sjóinn dugði skammt þegar skipaferðir lágu niðri; íslendingar voru háðir inn- flutningi á veiðarfærum. Á hinu viðburðaríka sumri árið 1809, sem þótti reyndar bæði „fúlt og kalt,“96 var skorturinn á nauð- synjum eins og timbri, járni, salti, tjöru og færum orðinn dlfinn- anlegur. Þessar vörur töldust til þess varnings sem var nauðsyn- legur svo að unnt væri að stunda sjávarútveginn, draga fiskinn á land, jafnframt því að gera við og smíða nýja báta. En hugvits- semin hafði vaknað meðal íslendinga á þessum árum. Ýmis konar varningur, sem áður taldist til nauðsynja, mátti því teljast til óþarfa innflutnings þar sem menn gátu m.a. búið til net, lóð- ir, haldfæri og línur af togi ullarinnar.97 Gyða Thorlacius taldi þó að „blessaðir karlarnir" ættu sérstakt hrós skilið „fyrir það, hve hugvitssamir þeir urðu er í nauðirnar rak; þeir spunnu lín- ur úr togi, önglana smíðuðu þeir sjálfir, og þeir báru lýsi á bát- ana í tjöru stað.“98 Hvort sem hugvitssemi karlanna eða mildi Guðs var að þakka, varð aflinn á árinu 1810 svo góður í Múla- sýslum að hann var annálaður í riti Pjeturs Guð- mundssonar um nítjándu öldina.99 Árið 1813 neydd- ust fátækustu íbúar Austurlands enn til þess að „beti- ene sig af heste haar og uld til sine fiske- og havkal- er- redskaber.“100 En það voru ekki aðeins íbúar á Austurlandi sem gripu til þessa ráðs. Jón Guðmundsson, sýslumaður í Skaftafellssýslu, greindi einnig frá því að blandt det adskillige, som nogle af Indbyggerne have under Krigen til hjelp opfundet formedelst mangel eller dyrtid, er fiskeliiner og torskgarn af uld, ...kun af de lange haar- lokker, som voxe udaf ulden paa de islandske faar, kaldes tog, saaledes tog-fære, tognet.101 Erfiðara var um vik að bæta timbur- og járnskortinn. Timbrið var einnig nauðsynlegt við viðhald og smíði húsa, líkt og þegar hefur komið fram. Sýslumaðurinn á Snæfellsnesi sá ennfremur fram á það, þegar árið 1808, að ekki yrði hægt að jarða hina látnu í lík- kistum vegna skorts á timbri við kistusmíðarnar.102 Trampe hafði bent íslendingum á að þeir þyrftu ekki að óttast skort á timbri þar sem hafið færði íslendingum rekavið til húsa- og skipasmíða.103 En ekki var hægt að treysta á slíkar náðarbjargir úr hafi. íbúar Strandasýslu fengu t.d. engan rekavið árið 1811 og það þótti greinilega svo mikið tiltökumál að Jón Jónsson, sýslumaður, gat þess sérstaklega í skýrslu sinni til stiftamtmanns.104 Messuvín Einnig horfði til vandræða hjá kirkjunnar mönnum á þessum harðréttistímum. Altarisgöngur voru einkar tíðar hér á landi og vanræksla var litin hornauga. Þó svo að ströng viðurlög lægju við „ofdrykkju altaris- gaungu-fólks“ allt frá árinu 1746105 er ekki ósennilegt Hugað að veiðarfærum á Eskifirði. Gyðu fannst aðdáunarvert hvernig brugðist var við veiðarfæraskorti á heimaslóðum sínum. að altarisgöngur hafi orðið enn vinsælli á styrjaldar- árunum þegar ýmiss konar varningur, eins og áfengi, var nær ófáanlegur. Bæði dýrtíð og skortur aftraði mönnum frá almennri drykkju.106 í nóvember árið 1809 voru hreppstjórar áminntir um að þeim bæri skylda til að koma í veg fyrir eða sekta hverskyns „drykkjuslarki ... í kirkjum...11.107 En varla bætti það ástandið í kirkjum landsins þegar kaupmenn voru farnir að færa íbúum landsins messuvín að gjöf, sem var mikill hörgull á á styrjaldarárunum. Gyða 45
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.