Sagnir - 01.06.2001, Page 110
fyrstu skírskotun sögunnar til flugpósts. „Oct 3rd.
How odd, all the news and letters we get from Paris
are now coming by balloon and carrier pigeons.“3
Kort þessi eða öllu fremur bréfspjöld voru snotur
og fallegri en kortin sem Austurríkismenn létu prenta
ári fyrr. Höfðu þau þó enga myndina. Bandaríkin
fóru að dæmi þeirra árið 1873 með sínum eigin póst-
spjöldum. Um það bil aldarfjórðungur fáts og fums í
prentun korta var framundan svo einhver mynd yrði
á í Bandaríkjunum og Englandi, meðan önnur
Evrópulönd komu í makindum myndkortinu sem
listgrein á laggirnar. Þýskaland var í fararbroddi með
kveðjukortum með myndum sem sýndu baðstaði og
ferðamannastaði. Á þessum kortum mátti jafnan
finna orðin Gruss aus (Kveðja frá), og á þeim var rúm
til að skrifa á framhliðina. Þessi kort voru þær fyrir-
myndir sem flest elstu kortin byggðust á.4
Árið 1893 var Columbia-sýningin haldin í
Chicago. Þar voru fyrstu bandarísku myndkortin
seld, og þá úr sjálfsölum.5 Chicago var auðug að
sérfræðiþekkingu í prentlist vegna aragrúa þýskra
innflytjenda. Árangurinn var um síðir falleg
kort framleidd með krómólitógrafíu, hágæða lit-
framleiðsluaðferð.
Austurstræti með dórískum súlum
Titill: „Reykjavík." Útg. Helgi Árnason, ca 1925.
Borgarskjalasafn
Ári síðar fékk myndapóstkortið löggildingu á
Englandi. Ólíkt kortum Chicago-sýningarinnar, sem
byrjuðu að koma fram svo einhverju nam undir árs-
lok 1894, voru þessi kort grámóskuleg. Myndin var í
ferhyrndum ramma, prentunin daufleg. Þau voru
gjarnan kölluð court cards eftir því, en þessa krafðist
breska póstþjónustan. Ársritið Picture Postcard
Annual hefur nú um árabil verið að safna þessum
elstu kortum um allt Bretland, og hafa einungis örfá
fundist, send á þessum fyrstu mánuðum. Liggur í
augum uppi að þau hafa ekki notið mikilla vinsælda
sökum þess hve lítt spennandi þau voru. Örfá þessara
korta hafa varðveist. Bið varð á vinsældum þar til
fyrsta raunverulega breska póstkortið kom fram árið
1899, en þá loks hætti póstþjónustan að halda fast
við hið staðlaða form. Raphael Tuck & Sons gáfu
þegar í stað út samstæðu af litmyndum frá Lund-
únum. Fyrsta samstæðan og í raun fyrsta breska
kortið var mynd af Lundúnaturni með einum liðs-
manni úr konunglegu bresku lífvarðarsveitinni.6
Póstkortið eins og við þekkjum það nú er því svotil
jafnaldra öldinni og sömuleiðis póstkortaklisjan, því
enn sýna sams konar kort turninn með einum lífverði
í forgrunni!
Sumarkort
Teikning, máluð. Vetur konungur hörfar fyrir laufguðum sprota sumardísar-
innar. Listam.: Ásgrímur Jónsson, ómerkt; ekki vitað fyrir víst. Útg. ekki
tilgreindur. Ca 1925.
Höfundur
Samt voru lagðar hömlur á þessi elstu kort sem skilja þau frá
dæmigerðum kortum nútímans. Þeim var aflétt árið 1902 þegar
sendendum póstkorta í Bretlandi var leyft að skrifa á bak-
hliðina, þar sem nafn og heimilisfang viðtakanda var fyrir,
þannig að myndin á framhliðinni fékk notið sín til fullnustu.
Bandaríkin fóru að dæmi Breta árið 1907. Form Tucks á mynd-
um frá Lundúnum var svipað langt fram yfir seinni heimsstyrj-
öld. Þá varð til önnur gerð korta. Stærri og rétthyrndari kort
náðu útbreiðslu í Evrópu, en Bandaríkjamenn voru seinni til að
framleiða þau. Undir aldarlok urðu til kort af öllum stærðum og
gerðum. Þá var slakað á öllum kröfum reglugerða í þessu efni
og jafnvel risastór kort komu fram á sjónarsviðið. Póstkortin
góðu og gömlu njóta samt enn sem fyrr hylli, rétt eins og Kilvert
naut kortanna sinna forðum daga.
Póstkortaunnendur halda því ákveðið fram að póstkort hafi
týnt gildi sínu kringum 1940 eða í öllu falli þegar kom fram um
miðja öldina. Þá hafi gullaldarskeiði póstkortsins svo að segja
verið lokið. Sjálf gullöldin nær í raun einungis framundir 1920.
Þá rann upp silfuröld sem auðmjúk fetar í slóð þeirrar fyrri.
Textar póstkorta
Kveðjukort eru þau kort sem send eru vinum og ættingjum af
sérstöku tilefni, svo sem vegna komandi hátíðar eða afmælis eða
einungis til að flytja viðtakanda kveðju. Þau bera gjarna viðeig-
andi kveðjuorð á framhlið. Þetta er sá flokkur gamallar tíðar
sem fjölskrúðugastur er og mestur að vöxtum. Mörg kortin
voru afar vel gerð, önnur léleg og tilþrifalaus með öllu, eins og
gengur. Þessi flokkur tekur til afmælisdaga, páska, hvítasunnu,
ferminga, þakkargerðar, jóla og nýárs, daga Patreks og Valent-
ínusar, 1. apríl, hlaupárs, mæðradags, sumardagsins fyrsta,
þjóðhátíðardags, o.þ.h. Kortin voru einnig trúarlegs eðlis.
Dygðir voru tíundaðar, en einnig trú, von og kærleikur. Myndir
úr heilagri ritningu voru algengar á kortum, sömuleiðis faðir-
vorið og boðorðin tíu. Ein var sú grein kveðjukorta sem heyrði
undir tækifæriskort. Þetta voru kort með bílum, englum, blóm-
um, börnum að leik með brúður og önnur leikföng. Silkimynda-
kortin voru vinsæl í þessum flokki og kort með skrautlegum
blævængjum, hakakrossum, óskabeinum, sveppum, fiðrildum,
bjöllum, skeifum, kjúklingum og kanínum. Blómum skrýdd
kveðjukort voru sígild og jafnan stór hluti þessa flokks. Fjöl-
mörg erlend jóla- og tækifæriskort bárust hingað.
Póstkort gegndu hlutverki símans á fyrri hluta liðinnar
aldar. í því fólst aðferð til að koma skipan á hlutina, gefa fyrir-
mæli eða einungis skila kveðjum. f Bretlandi og Bandaríkjunum
var póstur borinn út allt upp í fimm sinnum á dag. Hérlendis
108