Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 28

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 28
158 HELGAFELL blóma baiinagrasanna gaf aðeins af sér rauð- blóma einstaklinga og var því það sem kall- að er arfhreinn gagnvart blómlitnum (homo- zygotic), en tveir þriðjungar voru aftur á móti arfblendnir (heterozygotic) eins og foreldri þeirra og eignuðust afkvæmi með sömu hlut- föllum milli blómlita eins og foreldri þeirra höfðu eignazt. 011 hin rauðblóma baunagrös voru sem sagt eins að útliti en misjöfn að eðli, þar sem sum voru arfhrein cn önnur arfblendin. Hvað viðvíkur hvítblóma einstaklingunum voru þeir allir arfhreinir gagnvart hvíta litnum, og afkvæmi þeirra öll hvít. Mendel lét sér hins vegar ekki nægja að rannsaka erfðir eins eiginleika í senn, heldur athugaði hann einnig hvernig afstaða fleiri eiginleika væri í afkvæmum einblendings, t. d. hvernig litur og lögun á baunum erfðist sam- an, og komst þá að raun um það, að eigin- leikarnir erfðust óháðir hvor öðrum, og giltu þar sömu grundvallarlögmál sem fyrr meðal afkvæmanna, að ákveðin hlutföll ríktu milli einstaklinga af mismunandi útliti. Litþræðir Var nú talin vissa fengin fyrir því, að þessi ímynduðu gen væru arfberarnir, og það væru þau, sem gengju að erfðum fremur en eiginlcikinn sjálfur. Nú var ekki lengur talið, að í sæði manna lægi falin vasaútgáfa af mannslíkama, eins og eitt sinn var álitið, þeg- ar fyrst var farið að rýna í smásjá. Það voru raunverulega ekki blá augu, sem erfðust, held- ur tilhneigingin til þess að geta fengið blá augu. — Þar sem nii var vitað, að eini milli- liðurinn milli foreldra og afkvæmis við kynj- aða æxlun væru sáðfruman og eggið, hlutu arfberarnir eða genin einmitt að leynast í þeim. Hvort um sig er egg og sáðfruma aðeins ein fruma, er samanstanda eins og aðrar frumur af frymi og kjarna. Menn höfðu tekið eftir því (Waldeyer 1888), að í kjarna frum- anna voru þræðir, er skírðust við ákveðna litun og voru því nefndir litþræðir (litningar). Þessir litþræðir höguðu sér á annarlegan liátt við frumuskiptingu, virtust þcir klofna eftir endilöngu og hlutarnir færast sundur og renna hvor til síns kjarna í dótturfrumunum. Þann- ig voru alltaf jafnmargir litþræðir í hverri líkamsfrumu ákveðinnar lífveru. En hvorki var lögun né tala þeirra hin sama í lífverum fjarskyldra tegunda. Þessir litþræðir sjást oft liggja í samstæðum og eru fæst þrjár sam- stæður fundnir í fífiltegund einni og skordýri því, er kallað er bananafluga og hefur mikið komið við sögu erfðafræðirannsóknanna. í manni eru taldar vera tuttugu og fjórar lit- þráðasamstæður en mun fleiri í sumum jurt- um og dýrum. Nú tóku menn einnig eftir því, að í kyn- frumum æðri dýra og jurta voru helmingi færri litþræðir heldur en í líkamsfrumum þeirra. Þannig er mál með vexti, að við mynd- un kynfruma aðskiljast samstæður litþráð- anna þannig við rýriskiptingu (meiosis), að hver kynfruma fær aðeins helming sam- stæðna, það er verður einlitna (haploid). Við samruna eggs og sáðfrumu fær okfruman, það er hin frjóvgaða eggfruma, hins vegar full- komna litþráðasamstæðu, verður tvílitna (diyloid), þar sem helmingur litþráðanna kem- ur frá kynfrumu föður og helmingur frá kynfrumu móður. Þessir litþræðir höguðu sér því líkt og erfðaeindir Mendels, þannig að þeir leituðu til kynfrumanna óháðir livor öðr- um og voru samstæðir. Var þá ekki einmitt samband milli genanna og litþráðauna? Ef svo væri þá þurfti að færa fram rök fyrir því, og það féll í skaut ameríska erfðafræð- ingsins Morgans að framkvæma þetta. Rak hann smiðshöggið á að sanna skoðun þeirra Suttons og Boveris, sem áður var fram kom- in, að erfðaeindirnar væru á einhvern hátt tengdar þessum litþráðum. Við raunsóknir sínar notaði Morgan ban- anafluguna. Er það Iítil rauðeygð fluga, sem auðvelt er að rækta í glösum sé látið í þau svolítið bananamauk. Tekur aðeins hálfan mánuð að rækta hvern ættlið. Þar sem lit- þræðirnir í frumukjörnum þessarar flugu eru auk þess fáir, er flugan mjög hentug til notk- unar við rannsóknir á erfðafræðilegum við- fangsefnum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.