Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 40

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 40
170 HELGAFELL ræðisþjóðfélagi lúta stórfyrirtækin, afsprengi tæknilegra framfara og arftaki smáfyrirtækja, ríkisvaldinu, þ. e. a. s. flokksforingjum og hermönnum þeim, lögreglumönnum og opin- berum skrifstofumönnum, sem framkvæma skipanir þeirra. í lýðræðislegu auðvaldsþjóð- félagi eins og Bandaríkjunum er stórfvrirtækj- unum stjórnað af liópi valdgæðinga, eins og C. Wright Mills prófessor hefir kallað þá. Valdgæðingar þessir hafa margar milljónir af verkamönnum landsins í vinnu í verksmiðjum sínum, búðum og skrifstofum, ráða yfir mörg- um milljónum manna í viðbót með því að lána þeim peninga til að kaupa varning sinn, og loks hafa þeir áhrif á hugsanir, tilfinningar og athafnir að kalla má hvers einastá manns, af því að þeir eiga blöðin, útvarpið og sjón- varpið. Svo að ég snúi út úr orðurn Winstons Churchills: sjaldan hafa svo margir verið ánetjaðir svo fáum. Við erum sannarlega langt á vegi staddir frá hugsjón Jeffersons um frjálst þjóðfélag, er samanstæði af sjálfstæð- um heildum, „fyrst kæmu hreppslýðveldin, þá héraðslýðveldin og loks sambandslýðveldið, og þannig greinist valdið sundur stig af stigi.“ Það má því ljóst vera, að nútíma tækni- vísindi hafa leitt af sér samsöfnun valds bæði efnahagslegs og stjórnmálalegs og myndun þjóðfélags, sem er stjórnað af viðskiptajöfr- um eða ríkisherrum — stjórnað með harð- ýðgi í einræðisríkjunum, en kurteisi og hlé- drægni í lýðræðisríkjunum. En einstaklingar mynda þjóðfélögin, og þau eru einungis gagn- leg, að því leyti sem þau hjálpa einstakling- unum til að rækja möguleika sína og lifa hamingjusömu og frjóu lífi. Hvernig hefir svo tækniþróun síðustu ára farið með einstakling- inn? Dr. Erich Fromm, heimspekingur og sál- fræðingur svarar þessari spurningu svona: „Þrátt fyrir efnislegar, andlegar og pólitísk- ar framfarir, gerist okkar vestræna þjóðfélag æ óhollara hinum innra manni, og hneigist til að grafa undan sálaröryggi einstaklings- ins, hamingjusemi, rökhugsun og hæfileika til að elska; það stefnir að því að breyta honum í sálarlausa vél, sem geldur fyrir glataða mennsku með sívaxandi geðsýki og örvænt- ingu, sem hann dylur með ofsafenginni vinnu- semi og leit að svonefndum lífsnautnum.“ Hin „sívaxandi geðsýki“ vor birtist einatt í taugabilunareinkennum. Þessi einkenni eru áberandi og hið mesta áhyggjuefni. En „vör- umst það,“ segir dr. Fromm, „að álíta, að geðvörn sé í því fólgin að koma í veg fyrir sjúkdómseinkennin. Slík einkenni eru ekki óvinir vorir heldur vinir; þar sem einkenni sjúkleika eru fyrir hendi, er líka barátta, og baráttan er til marks um það, að lífsöflin, sem stefna að jafnvægi og hamingju, hafa ekki gefizt upp.“ Ólæknandi sálsjúklinga er einmitt að finna meðal þeirra, sem virðast vera alveg eðlilegir. „Margir þeirra eru alveg eðlilegir, af því að þeir hafa lagað sig svo vel eftir lifnaðarháttum vorum, hin mannlega rödd hefir verið þögguð niðri í þeim nógu snemma, svo að þeir heyja enga baráttu né þjást, né fá nein sjúkdómseinkenni eins og hinir taugabiluðu. Þeir eru ekki eðlilegir sam- kvæmt ströngustu merkingu orðsins; þeir eru einungis eðlilegir í þeim skilningi að vera í fullu samræmi við þjóðfélag, sem er hins- vegar óeðlilegt frá grunni. Fullkomin sam- lögum þeirra við þetta þjóðfélag er mælistikan á geðsýki þeirra. Allar þessar milljónir af óeðlilega eðlilegu fólki búa þegjandi og hljóða- laust við þjóðfélag, sem það ætti alls ekki að laga sig eftir, ef það væri fullkomlega mennskir menn; það dýrkar ennþá blekkinguna um einstaklingstilveru enda þótt það hafi í raun og veru glatað einstaklingseðli sínu. Samhegð- un þess er að gera alla eins. En það er frels- inu ósamrímanlegt, að allir séu eins. Og sömu- leiðis andlegri heilbrigði. . . . Maðurinn er ekki skapaður til að ganga eins og sálarlaus vél, en fari hann til þess, er andleg heilsa hans í voða.“ Náttúran hefir gegnum þróunarsöguna lagt á sig óhemju fyrirhöfn til að sjá um, að enginn einstaklingur sé öðrum líkur. Vér aukum kyn vort með því móti að láta gen föðurins kom- ast í snertingu við gen móðurinnar. Erfða- eigindir þeirra geta tengzt hverjar annarri í allt að því óendanlegri fjölbreytni. Vér erum hver um sig andlega og líkamlega einstætt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.