Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 47

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 47
JÓNAS 177 var mikilvægur, og Rateau benti henni á, að hann gæti leitt til fordæmingar á mannkyn- inu. En Lovísu varð ekki haggað. Hún sýndi fram á, að þar sern bæði ástarsagnatímaritin og heimspekitímaritin héldu þessu fram, væri það almennt viðurkennd staðreynd, sem ekki þyrfti að ræða. „Þá segjum við það,“ sagði Jónas, sem gleymdi undireins þessari hræði- legu uppgötvun og fór að láta sig dreyma um stjörnu sína. Lovísa hætti við bókmenntirnar óðar en henni skildist, að Jónas hafði ekki áhuga á neinu nema málaralist. Hún byrjaði þegar í stað að kynna sér myndlist, fór á söfn og sýningar og teymdi Jónas þangað með sér, en hann botnaði lítið í því, sem samtímamenn hans voru að mála og fann til vandræða- kenndar gagnvart því, enda var hann sjálfur mjög einfaldur í listamennsku sinni. Hann gladdist þó af því að fá svo mikla fræðslu um allt, sem við kom list hans. Það er að vísu satt, að daginn eftir mundi hann ekki einu sinni nafnið á málaranum, sem hann hafði skoðað myndir eftir. En Lovísa vissi hvað hún söng, og minnti hann ákveðið á ein af þeim sannindum, sem hún hafði lært þegar hún stundaði bókmenntirnar, sem sé, að í rauninni gleymdi maður aldrei neinu. Það var ekki um að villast, að stjarnan verndaði Jón- as, sem þannig gat með góðri samvizku verið öruggur um minni sitt, jafnframt því sem honum veittist munaður gleymskunnar. En þær perlur umhyggjusemi, sem Lovísa lét rigna yfir Jónas, skinu þó glaðast í dag- legu lífi hans. Þessi góði engill hlífði honum við öllum kaupum á skóm, fötum og líni, sem verða annars til að stytta ævi allra venju- legra manna, og má lífið þó ekki styttra vera. Hún tók ótrauð á sínar lierðar allar þær þúsund uppfinningar, sem tímadrápsvélin býr yfir, frá lítt skiljanlegum bæklingum um fé- lagslegt öryggi og upp í síbreytilegar sveiflur ríkisfjármálanna. „Já,“ sagði Rateau, „þetta er nú gott og blessað. En hún getur ekki far- ið til tannlæknisins í þinn stað.“ Hún gerði það að vísu ekki, en hún hringdi og fékk ráð- stafað handa honum þeim tíma, sem hentug- astur var; hún sá um að láta skipta um smurolíu á bílnum, pantaði herbergi á sumar- leyfishótelum, lét senda heim kol; hún keypti sjálf gjafirnar, sem Jónas hafði hug á að gefa, valdi og sendi blóm fyrir hann, og gaf sér einnig tóm til þess sum kvöld að fara heini til hans, þegar hann var fjarstaddur, og búa um rúmið hans, svo það kvöldið þurfti hann ekki einu sinni að lyfta sænginni áður en hann lagðist fyrir. Af sama röskleik fór hún einnig sjálf upp í þetta rúm. Þá kom hún því í kring að Jónas fengi viðtal hjá borgarstjóranum og fór með hann þangað tveimur árum áður en hæfileik- ar hans voru loks viðurkenndir, og brúð- kaupsferðina skipulagði hún þannig að ekk- ert safn var látið óskoðað. En áður hafði hún fundið handa þeim þriggja herbergja íbúð, sem þau gátu flutt í þegar þau komu aftur, þrátt fyrir gífurleg húsnæðisvandræði. Síðan bjó hún til tvö börn, næstum livort af öðru, dreng og stúlku, því hugmynd hennar var að eignast þrjú börn, og það varð að veru- leika stuttu eftir að Jónas lét af störfum í bókaútgáfunni til að helga sig málaralistinni. Annars var það svo, að undireins og Lovísa hafði átt fyrsta barnið, snerist allur hugur hennar um það, og síðan um þau sem á eftir komu. Hún reyndi enn að hjálpa bónda sín- um, en hana skorti tíma. Vitaskuld þótti henni leitt að vanrækja Jónas, en hún var of ákveðin í skapi til að láta slíkt valda sér hug- arangri. „Því miður,“ sagði hún, „skósmiður, haltu þér við leistinn þinn.“ Þessu orðtaki var Jónas reyndar mjög hrifinn af, því eins- og allir listamenn á þessum tímum, vildi hann láta kalla sig iðnaðarmann. Iðnaðarmaður- inn varð sem sé lítið eitt vanræktur og neydd- ist til að kaupa skóna sína sjálfur. En auk þess sem þetta var eðlilegur hlutur, freistaðist Jón- as til að fagna því. Að sjálfsögðu þurfti hann að reyna á sig við að fara í búðir, en harin fékk þá áreynslu launaða með þeim einveru- stundum, sem eru svo mikils virði fyrir ham- ingju hjóna. Það hjúskaparvandamál, sem langerfiðast var við að etja, var samt sem áður lífsrými,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.