Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Side 58

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Side 58
188 HELGAFELL inn í kaffihús, þurfti ekki annað til en hon- um fyndist einhver gestanna kannast við sig, þá var honum öllum lokið. Andartak stóð hann sem lamaður og kenndi einkennilegs sársauka, en ekki varð af svip hans hægt að ráða í þann óróleik og þá skyndilegu og áköfu þörf fyrir vináttu, sem inni fyrir bjó. Honum varð hugsað til þess, hve Rateau var vanur að horfa vingjarnlega á hann, og hann flýtti sér út. „Hann slæpist bara!“ sagði einhver rétt hjá honum einn dag, þegar hann gekk út úr kaffihúsi. Nú sótti hann einungis staði, sem voru ut- an við alfaraleið, þar sem enginn þekkti hann. Þar gat hann talað, brosað, orðið aftur góð- samur. Enginn krafðist neins af honum. Hann eignaðist nokkra vini, sem voru ekkert uppá- þrengjandi. Honum líkaði sérstaklega vel við einn þeirra, sem var þjónn á járnbrautarbar, þar sem hann kom oft. Þjónn þessi spurði liann, hvað hann „hefði fyrir stafni í lífinu.“ „Málari,“ sagði Jónas. „Listmálari eða húsa- málari?“ — „Listmálari.“ — „Jæja,“ sagði þjónninn, „það er erfitt.“ Og hann minntist ekki á það framar. Já, það var erfitt, en Jónas ætlaði að sigrast á erfiðleikunum, und- ireins og hann hefði fundið leið til að skipu- leggja starf sitt. Á flækingi og við drykkju kynntist hann ýmsu öðru, konur voru honum innan handar. Hann gat talað við þær fyrir og eftir ásta- gamnið, og umfram allt miklað sig dálítið, þær skildu hann, enda þótt. þær væru ekki sannfærðar. Stundum fannst honum einsog liann hefði aftur fengið þann þrótt, sem hann áður hafði. Dag einn tók hann ákvörðun, þegar liann hafði fengið uppörvun hjá einni vinkonu sinni. Hann hélt heim til sín og reyndi aftur að taka til við vinnu sína í her- berginu, því saumakonan var fjarstödd. En eftir klukkutíma lagði myndina til hliðar, brosti til Lovísu án þess að sjá hana og gekk út. Hann drakk allan daginn og varði nótt- unni hjá vinkonu sinni, en var þó ekki í standi til að girnast hana. Morguninn eftir tók bitur kvölin við honum, þar sem var hryggilegt andlit konu hans. Hún vildi vita, hvort hann hefði haft mök við konuna. Jónas kvaðst ekki hafa gert það, því hann hefði verið drukkinn, en hann hefði haft mök við aðrar áður. Og í fyrsta skipti sá hann sér til djúprar hryggðar, livernig undrun og kvöl brugðu svip sínum á andlit Lovísu, svo það varð einsog á drukknandi manneskju. Það rann nú upp fyrir honum, að allan þennan tíma hafði hann ekki hugsað um hana, og hann fyrirvarð sig. Iíann bað hana fyrirgefn- ingar, það væri búið, á morgun mundi allt byrja að verða einsog áður. Lovísa gat ekk- ert sagt og hún sneri sér undan til að fela tár sín. Daginn eftir fór Jónas eldsnemma að heim- an. Það rigndi. Þegar hann kom heim aftur, var hann rennblautur frá hverfli til ilja og hafði timbur meðferðis. Tveir gamlir vinir hans, sem höfðu komið til að fá fréttir af honum, voru að drekka kaffi í stóra herberg- inu. „Jónas er að breyta til. Hann ætlar að fara að mála á tré,“ sögðu þeir. Jónas brosti: „Það er ekki það. En ég er að byrja á dálitlu nýju.“ Hann fór inn í þrönga ganginn, sem lá að sturtuklefanum, salerninu og eldhús- inu. 1 rétthyrninu, þar sem gangarnir tveir mættust, nam hann staðar og virti lengi fyrir sér háa veggina, sem teygðu sig upp í dimmt loftið. Hann þurfti á stiga að halda og fór að fá hann lánaðan hjá dyraverðinum. Þegar hann kom upp aftur, voru nokkrir fleiri gestir komnir, og hann varð bæði að berjast við elskulegheit þessara gesta, sem voru himinlifandi af að hitta hann aftur, og við spurningar fjölskyldu sinnar, áður en hann komst ganginn á enda. Konan lians kom í þessum svifum út úr eldhúsinu. Jónas lagði frá sér stigann og þrýsti henni fast að sér. Lovísa horfði á hann: „Ég bið þig, gerðu það ekki aftur,“ sagði hún. — „Nei, nei,“ sagði Jónas. „Ég ætla að fara að mála. Ég verð að mála.“ En það var einsog hann væri að tala við sjálfan sig, hann horfði eitthvað út í blá- inn. Hann tók til starfa. Við miðbik veggj- anna smíðaði hann pall til að afþilja handa sér einskonar þröngan hjall, sem var þó djúp- ur og hár. Þegar leið að kvöldi, var verkinu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.