Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 102

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 102
232 HELGAFELL er skylda fræðimanna að leiðbeina öðrum, og leiða þá til skilnings á málefnum svo þeir geti sjálfir tekið afstöðu til þeirra. Hafi dómgreind mín ekki þegar brugðizt við þessa röksemdafærzlu, þá hefir greinum þínum um efnahagsmál verið ætlað þetta hlutverk. En þá fæ ég ekki betur séð, en að þér hafi brugðizt bogalistin í veigamiklum atriðum. Þetta kastar þó engri rýrð á sérþekkingu þína eða gáfur, því það er bæði alþekkt fyrir- brigði og auðskilið, að hámenntaður gáfu- maður getur stundum verið lakari kennari fvrir byrjendur, en sá sem lítið meira hefir lært en þau undirstöðuatriði, sem hann á að kenna, en sjálfur þurft talsvert fyrir því að hafa að öðlast á þeim fullan skilning. Ég hygg að öll kennsla komi að beztu gagni hjá þeim kennara, sem tekur sérhvert viðfangsefni, sem einhvers skilnings krefst, og greiðir það sundur í einfalda þætti, svo nemandinn þurfi ekki að melta nema lítið í einu, en tengir þættina síðan aftur saman með nærfærni á skipulegan hátt. Hafi tilgangur greina þinna á annað borð verið sá, að leiðbeina, þá hefur þú flaskað á því er sízt skyldi, en það er að hafa ekki glögg skil milli stjórnmála og hagfræði. Þessi mistök hlutu að leiða til pólitískra deilna, sem feyktu burtu hinu fræðilega gildi grein- anna. en skildu aðeins eftir pólitískan áróður, sem verkaði á tilfinningar meira en skynsemi. Við rólega athugun á greinum þínum í tveim síðustu heftum Nýs Helgafells og Stúdentablaðsins 1. des. virðist mér augljóst, að það sé sannfæring þín, að um enga færa leið sé að ræða í efnahagsmálum okkar, nema „friáls verðmyndun“ sé höfð að leiðarljósi. Ahugi þinn á því að vinna þessari stjómmála- skoðun fylgi leitast siðan við að sveigja alla þræði að þessu marki, og þar lenda þeir í hálfgerðan dróma, sem erfitt er að greiða úr. En til þess er þó orkunni eytt, og fræði- maðurinn hefir því ekki tíma til að rekja þá þræði, er ótvírætt vísa í aðrar áttir. Þeir þræðir eru gripnir með handbragði stjórn- málamannsins, slitnir frá og kastað í ruslið, sem ónýtum spottum. Þetta er kannske harður dómur, enda við það miðaður, að til þín séu gerðar miklar kröfur. Mér er það vel Ijóst, að það er ekki auðvelt verk að aðgreina stjórnmálaáhuga og fræðimennsku, og sízt þegar fræðigreinin er jafn nátengd stjórnmálunum eins og hag- fræðin er. Ég ætla því ekki að eyða takmörk- uðu rúmi í það að styðja dóm minn með til- vitnunum í greinar þínar, en meta það meira, að sýna fram á, að hin vandasama aðgreining er ekki ómöguleg. En til þess hefi ég valið kafla úr gamalli grein eftir hagfræðing, sem ég efast ekki um að þú metur — sem traustan samherja, eða verðugan andstæðing, eftir því sem við á. „Flestir eru á einu máli um það, að verð- bólga sé félagsleg meinsemd, sem eigi að fyrir- byggja með opinberum aðgerðum, en þegar til framkvæmda kemur skiptast leiðirnar, eins og reyndin hefir líka orðið við meðferð málsins hér. Hver er ástæðan? Hún er sú, að þetta vandamál verður aldrei leyst nema á kostnað ákveðinna aðila, sem vegna íhlut- unar ríkisvaldsins fá minna í sinn hlut af efnalegum gæðum en ella hefði orðið. Af þessu leiðir, að ekki er hægt að benda á vís- indaleg ráð gegn verðbólgunni. Skoðun hag- fræðingsins sem slíks um það, hvað beri að gera, er þar engu rétthærri en álit hvers ann- ars borgara." .... „Það sem hér verður sagt um leiðina, sem hefði átt að fara til að fyrir- bvggja það öngþveiti, sem ríkjandi er í verð- lagsmálum þjóðarinnar, er mótað af því, sem eftir ástæðum verður að teljast sanngjarnt og viðeigandi frá félagslegu sjónarmiði höf- undar.“ Hér er komið að landamærum vísinda og stjórnmála, og skal ekki lengra haldið að sinni. Þó er mér ofarlega í huga efni í annað bréf, en það er óunnið, og fer eftir ýmsu, hvernig sú úrvinnsla verður, og hvenær og hvort það verður sent. Ég kveð þig svo með ósk um gott og farsælt nýtt ár, og einnig þeirri ósk, að aldrei skapist slíkt ástand á íslandi, að sterku valdi verði misbeitt svo freklega, að okkur bresti kjark til að deila um markmið og leiðir. Á jólunum 1959 Hennann Jónsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.