Helgafell - 01.10.1946, Síða 30

Helgafell - 01.10.1946, Síða 30
212 HELGAFELL áhrifamestur landa sinna, er þá dvöldust í Kaupmannahöfn, auk þess sem hann var meðal hinna laerðustu manna. Hann tók þessari ráðagerð fegins hendi og varð lífiÖ og sálin í félaginu til dauðadags. Félagið var formlega stofnað 30. ágúst 1779 og nefnt HiÖ íslenzk_a lœrdómslistafélag. Seinna var ,,konunglega“ bætt í nafniÖ, vegna konungsbréfs frá 22. júní 1787. Lög félagsins eru dagsett 16. des. 1779, og er í fyrstu grein þeirra ákveðið, að slíkt félag skuli standa um aldur og ævi meSal íslenzkra stúdenta við háskólann. FélagiS skyldi styðja allar listir og vísindi, er þýðingu hefðu fyrir ísland, sérstaklega fyrir atvinnuvegi landsmanna, vinna aS bættum lifnaðarháttum og kenna mönnum að hagnýta sér náttúrugæði landsins. Þær vísindagreinar, sem félagsmönnum er gert aS styðja og glæÖa, eru náttúruleg guðfræði, heimspeki og siðfræði, náttúrufræÖi, stærðfræði og fagrar bók- menntir. Einkum eru þó ákvæSin um móðurmáliS eftirtektarverð. í rit- gerðum félagsins skyldi vera kostað kapps um góða íslenzku, að vernda tunguna og losa hana við útlend orð og orðtæki. I staS þeirra skyldu koma nýyrÖi, ef gömul orð væru ekki til, en orð af erlendum uppruna, sem notuð höfSu verið af rithöfundum á 13. og 14. öld, máttu þó haldast. í félaginu skyldu vera þrír flokkar meðlima, venjulegir félagar, aukafélagar og heiðurs- félagar. Hinir fyrstnefndu skyldu annast starfsemi félagsins, urSu að skilja íslenzku og skyldu leggja árlega fyrir félagið einhverja ritgerð, frumsamda eða þýdda, um það efni, er þeim stóð næst. Allar greinar skyldu lagðar fyrir félagsfundi, en síðar var sérstök nefnd látin fjalla um þær. Engin ritlaun virðast hafa verið greidd í fyrstu, en síÖar var ákveðið, að þeir, sem skrifuðu greinar í ritiÖ, skyldu losna við árgjaldið til félagsins. Fyrsta prentaða meðlimaskráin er frá 1781, þá voru félagar 47, og af þeim 30 venjulegir, árið 1787 voru þeir 78, þar af 38 venjulegir, en síðasti listinn, sem er frá 1796, telur meðlimi 127 og af þeim 46 venjulega félaga. Jón Eiríksson var forseti félagsins frá upphafi til dauöa síns 1787, en þá tók viS Lauritz Thodal. Hann var norskur að ætt, en hafði í mörg ár verið stiftamtmaður á íslandi og var því vel kunnugur högum landsmanna, en þekking hans á íslenzkri tungu hins vegar mjög ófullkomin. Ritarar félagsins voru þessir: Þórarinn Liliendahl til 1787, þá Benedikt Gröndal, 1787—1792, og loks Jón Johnson- ius. Olafur Ólavíus var fyrsti féhiröirinn. Magnús Stephensen gegndi því starfi í tvö ár, 1785—1787, en þá tók við því danskur maður, Hans Jensen og hafði þaS á hendi til félagsloka. Rit félagsins tóku að koma út 1781 undir nafninu Rit þess (kpnunglega) íslenzka Lœrdómslistafélags. Árlega kom út lítiÖ bindi í átta blaSa broti, um 300 bls. auk formála og félagatals. Aftan á titilblaðið var prentað í ramma: GuSi! Konunginum ! og FöSurlandinu ! en það var algeng kurteisis- klausa framan við rit á einveldistímunum. Þá er tileinkunn til Friðriks prins og síðan formáli á íslenzku með danskri þýðingu á síðunni á móti, þar sem sagt er frá efni ritsins. Þessi danski formáli var án efa prentaður með tilliti til hinna mörgu erlendu félagsmanna. Alls komu út 15 bindi. Efni þeirra er merkilegt, bæði fyrir fjölbreytni og gildi ritgerðanna. MeSal höfunda
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.