Helgafell - 01.10.1946, Page 93

Helgafell - 01.10.1946, Page 93
ÁFANGAR SIGURÐAR NORDALS 275 til þess að selja hið ómælanlega fyrir hið mælanlega, og nefnir hann nokk- ur atriði því til sönnunar. Ef nokk- urri þjóð sé skylt og nauðsynlegt að rísa gegn ofríki talnanna, þá séu ís- lendingar sú þjóð. Líkindi séu til þess, að við verðum alltaf kögurþjóð á mælikvarða vaxtanna: að mannfjölda, auði, verklegum framkvæmdum. Ekk- ert geti gefið okkur gildi nema rækt við einstaklingana. Von smárra menn- ingarþjóða að láta til sín taka sé reist á því einfalda lögmáli, að á sviði vits- muna séu tveir og tveir ekki fjórir. Grein þessi er skrifuð fyrir 18 árum. Margt er í henni mikilvægt, stórvel sagt og í sínu fulla gildi. Hins vegar má gera ráð fyrir, að orð og viðhorf hefðu á nokkrum stöðum orðið á annan veg, ef greinin hefði verið skrifuð nú. Höf- undurinn er að öllum jafnaði frábær- lega sanngjarn og mesti hófstillingar- maður í málsflutningi, en hér verður varla sagt, að hann sé það alls staðar. Það, sem því veldur, er hinn mikli stuggur, sem honum stendur af þeim spjöllum og tjóni, er hann ætlar, að mælingarnar muni vinna sumum dýr- mætustu eigum þjóðarinnar. En eng- inn er vökulli og trúrri en hann við varðveizlu slíkra eigna, og skyldi þjóð- in þess lengi minnast. En hér mun þó ekki alls staðar jafn mikil hætta á ferðum og honum virðist. Sumar mæl- inganna að minnsta kosti, svo sem gáfnaprófin, eru nú orðin svo marg- reynd bæði utan lands og innan, að fullyrða má, að þau hafi miklu fremur orðið til bóta en böls. Þegar S.N. skrifar greinina, var ný- farið að ræða og rita hérlendis um mælingar greindar og þekkingar manna, einkum þó skólabarna. Mæl- ingar þessar eru, eins og kunnugt er, gerðar með ákveðnum prófum. Stein- grímur Arason, kennari, ritaði fyrstur íslenzkra manna um slík greindarpróf, sem hann hafði kynnt sér í Banda- ríkjunum og taldi hafa ýmsa kosti og geta komið kennurum að góðu haldi. Vildi hann þess vegna greiða prófum þessum landgöngu hér, en átti þung- an róður um hríð, því að ýmsir lögð- ust fast á móti. ,,En það er langt síð- an að þetta var“, eins og stendur í gamankvæðinu. Nú munu allir ís- lenzkir kennarar, sem próf þessi hafa kynnt sér og reynt, fyrir löngu orðnir sammála Steingrími um gildi þeirra. Varð það og þungt á metum fyrir gengi gáfnaprófanna, að íslenzkir upp- eldisfræðingar, sem lokið hafa námi á síðustu árum, hafa verið fylgjandi notkun þeirra. Á hinn bóginn fer því fjarri, að þeir eða aðrir telji þau allra meina bót. Dr. Símon Jóh. Ágústsson segir t. d. í áðurnefndri bók sinni (bls. 109), að- gáfnaprófin veiti kennurum ,,ómetan- lega aðstoð'* til þess að komast eftir meðfæddum hæfileikum barna. ,, Kennarinn má þó ekki hafa oftrú á greindarprófunum", segir hann, ,,held- ur líta á þau sem einn lið í heild: at- hugunum hans á hegðun barnsins, skapgerð þess, áhugamálum og hæfi- leikum. Þegar gerð er ýtarleg, sál- fræðileg rannsókn á barni, er greind- arprófið aldrei nema einn þáttur henn- ar, en reyndar mikilvægur og nauð- synlegur þáttur“. Á bls. 107 — 108 í sömu bók eru taldir kostir greindarprófanna. Segir þar meðal annars, að þau veiti kenn- urum liðsinni til að dæma um hæfi- leika nemandans, án þess að nauðsyn- legt sé að hafa hann langan tíma til reynslu; að þau sýni frekar hæfileiko
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.