Helgafell - 01.10.1946, Side 33

Helgafell - 01.10.1946, Side 33
FYRSTU ÍSLENZKU TÍMARITIN 215 tunguna og hreinsa, þótt stundum verði að taka viljann fyrir verkið. Ritin höfðu talsverð áhrif á þjóðina, og enn eru ,,Gömlu félagsritin“, eins og þau eru vanalega kölluð, talin til dýrgripa í íslenzkum bókaskápum. Nú var vaknaður mikill áhugi fyrir bókmenntastarfsemi meðal íslend- inga heima fyrir og félagsskap til að styðja hana. Lærdómslistafélagsritin höfðu ekki alls kostar fullnægt kröfum þeim, er fólkið hafði gert til þeirra, einkum eftir dauða Jóns Eiríkssonar, enda voru margir höfundar tregir til að senda ritgerðir til þessa félags í Kaupmannahöfn, því þeir vildu ógjarn- an leggja þær undir dóm og gagnrýni þeirra ungu manna, sem þar voru einráðir um það, hvað prentað yrði. Þegar Magnús Stephensen kom heim frá námi, hóf hann þegar undirbúning að stofnun félags til bókaútgáfu, er svaraði þörfum þjóðarinnar, og áður en á löngu leið kom hann því í fram- kvæmd. Það var fyrir frumkvæði hans, að Hið íslenz\a Landsuppfrœ&ingar- félag var stofnað 19. júlí 1794. Meðal félagsmanna voru faðir Magnúsar, Ólafur stiptamtmaður og Stefán varalögmaður bróðir hans, Stefán Þórarins- son amtmaður, Hannes biskup, séra Marfyús Magnússon í Görðum og Björn Gottsliáll^sson, er átti þá Hrappseyjarprentsmiðju. Lög félagsins voru prentuð 1796. Tilgangur þess var að efla menntun þjóðarinnar og stuðla að út- gáfu góðra skemmti- og fræðibóka. Ollum var frjálst að gerast félagar, lærðum jafnt sem ólærðum, innlendum sem útlendum, konum sem körlum. Árstillög voru mismunandi, frá einum dal upp í tíu dali, eftir því hvers konar meðlimir menn urðu. Árlega skyldi haldinn fundur á Þingvöllum þann 19. júlí, meðan Alþingi stóð yfir. Framkvæmdum félagsins skyldi stjórnað af formanni og tilsjónarmanni, og skyldi hinn síðari hafa nálega ótakmarkað vald um val á útgáfubókum. Ólafur Stephensen var kosinn for- maður, en Magnús Stephensen tilsjónarmaður. Félagið fékk Hrappseyjar- prentsmiðju og var hún flutt að Leirárgörðum, næsta bæ við Leirá, þar sem tilsjónarmaðurinn bjó. Prentsmiðjan hafði áður átt í erfiðleikum, vegna þess að hún mátti ekki gefa út guðsorðabækur. Nú var Hólaprentsmiðja svipt því einkaleyfi, og 1799 var hún lögð niður og áhöld hennar flutt að Leirárgörðum, en prentsmiðjan þar var áður orðin eign Landsuppfræðingar- félagsins. Félagið fékk góðar viðtökur hjá þjóðinni. Félagaskrá 1796 telur 1024 meðlimi úr öllum héruðum landsins. í fyrstu var félagið einkafyrirtæki, sem stjórnað var af stofnendunum, en 1. október 1798 gerðu þeir það að opinberri stofnun, sem hlaut nafnið íslands Uppfrœðingarstiftan, þótt það gengi einnig stundum undir öðrum nöfnum. Með konungsbréfi 17. júní 1800 hlaut það konunglega vernd og nafnbótina ,,konunglegt“. Það fékk ýmis hlunninndi hjá stjórninni, svo sem ókeypis flutning á prentáhöldum og öðr- um nauðsynjum með póst- og fálkaskipunum og bréf þess voru undanþegin burðargjaldi með landpóstunum. Meðal rita þeirra, sem félagið skyldi gefa út samkvæmt lögum sínum, voru ,,góðar og fræðandi skýrzlur um útlenda og innlenda viðburði“. í þeim tilgangi hófu Minnisverð tíðindi göngu sína 1796. Á árunum 1796—1799 komu út fjögur hefti og mynduðu þrjú þeirra fyrsta bindið. En svo komst
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.