Helgafell - 01.10.1946, Page 48

Helgafell - 01.10.1946, Page 48
Alþingisumræður um aðbúð listamanna GILS GUÐMUNDSSON tók saman FYRSTA GREIN ,,AF ÖLLUM hirðmönnum virði konungur mest skáld sín; þeir skip- uðu annað öndvegi.” Svo er frá sagt í sögu Egils Skallagrímssonar, þar sem lýst er hirðlífi hjá Haraldi kon- ungi hárfagra. Þorbjörn hornklofi orti um örlæti sama konungs í garð skálda: Á gerðum sér þeira ok á gullbaugum, at eru í kunnleikum við konung: Feldum ráða rauðum ok vel fagrrenduðum, sverðum silfrvöfðum, serkjum hringofnum, gylltum andfetlum ok gröfnum hjálmum, hringum handbærum, er þeim Haraldr valdi. Slík voru kjör hirðskálda á þeim tímum og alllengi síðan. Skáldskapur- inn var talinn ein hin dýrmætasta gjöf guðanna, og þeir, er slíkri íþrótt voru búnir, áttu greiðan gang að söl- um þjóðhöfðingja. Kom lítt að sök, þótt slíkir menn væru ættsmáir og illa fjáðir, gætu þeir kveðið svo vel, að konungum og hirðmönnum þeirra væri skemmtan að. Með einhverjum hætti urðu fslend- ingar einir um að halda uppi drótt- kvæðunum, þegar fram liðu stundir. íslenzku skáldin ferðuðust milli er- lendra þjóðhöfðingja, fluttu þeim kvæði og þágu að bragarlaunum hirð- vist með þeim og margvíslegar gjafir: verðmæta hringa, skrautbúin vopn og fögur klæði. Sem dæmi íslenzkra hirðskálda á söguöld má nefna Gunn- laug ormstungu. Hann fór til Eng- lands á fund Aðalráðs konungs Ját- geirssonar og flutti honum kvæði. Konungur gerði hann að hirðmanni sínum og gaf honum , .skarlatsskikkju skinndregna .... og hlaðbúna í skaut niður” og fleiri dýrar gjafir. — Þessu næst hélt Gunnlaugur til írlands og hafði þá ort kvæði um Sigtrygg kon- ung silkiskegg. Konungur var ungur maður, og hafði ekkert skáld lofað hann fyrr í ljóði. Vildi hann launa Gunnlaugi skörulega og spurði féhirði sinn, hvort tveir knerrir mundu ekki þykja álitleg umbun fyrir kvæðið. Fé- hirði þótti slíkt ofrausn og kvað aðra konunga gefa gripi góða, sverð eða gullhringa. ,,Konungur gaf honum (þ. e. Gunnlaugi) klæði sín af nýju skarl- ati, kyrtil hlaðbúinn og skikkju með ágætum skinnum og gullhring, er stóð mörk.” Enn heimsótti Gunnlaugur þriðja konunginn, Ólaf hinn sænska, og flutti honum kvæði. Kvæðalaun hirðskáldanna voru, eins og þegar hefur verið sagt, oft hinar mestu gersemar og stundum harla verðmæt. Skjöldur sá, er Hákon Hlaðajarl gaf Einari skálaglamm, en
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.