Helgafell - 01.10.1946, Side 52

Helgafell - 01.10.1946, Side 52
234 HELGAFELL árið 1879 var til meðferðar í efri deild, báru þrír alþingismenn, þeir Bergur Thorberg, Eiríkur Kúld og Magnús Stephensen fram tillögu um að veita „skáldunum Benedi/jf Gröndal, Matthíasi Jochumssyni og Steingrími Thorsteinsson 1000 kr. hverjum.“ Til- lagan var samþykkt í efri deild, en neðri deild felldi styrkveitinguna niður. Árið 1883 veitti alþingi samtals 15.400 kr. til vísindalegra og verk- legra fyrirtækja. Skáldin, sem slík, hlutu þó ekki grænan eyri af þeirri upphæð. Þorvaldi Thoroddsen voru veittar 1000 kr. til jarðfræðirannsókna og 1000 kr. ferðastyrkur til útlanda. Benedi\t Gröndal hlaut 600 kr. hvort ár fjárhagstímabilsins ,,til að halda áfram myndasafni yfir íslenzk dýr og til að semja þjóðmenningarsögu Norð- urlanda.“ Alþingi 1885 var venju fremur rausnarlegt á fjárveitingar til menn- ingarmála. Það bar til tíðinda á því þingi, að samþykkt var fyrsta styrk- veitingin til listrœnnar starjsemi. Voru það 600 kr., er GuÖrún Waage hlaut til að læra sönglist. Kom það fram í umræðum, að þeir, sem mæltu fyrir tillögunni, gerðu sér vonir um, að söngkonan gæti orðið íslandi til sóma erlendis og aukið með þeim hætti hróður þess, ef vel tækist til. Hitt virðist ekki hafa vakað fyrir mönnum, að hún kæmi hingað aftur að loknu náni, og yrði til að glæða sönglistarlíf á íslandi. Guðrún var dóttir Eggerts Waage stúdents og verzlunarmanns í Reykjavík. Móðir Guðrúnar var Kristín, dóttir Sigurð- ar stúdents Sivertsen á Stóra-Hrauni, og konu hans, Höllu Jónsdóttur. Guðrún ólst upp í Reykjavík hjá foreldrum sínum. Jónas Helgason, sem um þetta leyti var einhver fremsti maður í sönglífi bæjarins, rómaði mjög rödd hennar og kvað hana miklum hæfileikum gædda á því sviði. Var það og samhljóða álit þeirra, er helzt gátu lagt til mála, að Guðrún gæti átt veglega framtíð sem söngkona. Hvöttu þeir hana til utanfarar og gengust fyrir því að afla styrks frá þinginu. Litlu eftir að Guðrún hlaut styrkinn, hélt hún til Kaupmanna- hafnar og var þar við söngnám um skeið. Gerðist lífið henni mótdrægt, vonbrigði ærin, en framabraut tor- stigin. Fór svo, að hún hætti námi, en var þó í Kaupmannahöfn enn um sinn. Árið 1893 kom hún heim til Reykjavíkur og var þá heilsuveil orð- in. Dvaldist hún hjá foreldrum sínum til æviloka, '1898. Bróðir Guðrúnar var hinn kunni leikari, Jens Waage. Árið 1887 var talin mikil þörf að spara útgjöld til vísindalegra og verk- legra fyrirtækja. Var heildarupphæðin lækkuð úr 25.400 kr., niður í 6.180 kr. Má því ljóst vera, að ekki áraði vel til að rétta fjárfúlgur að lista- mönnum og skáldum, enda er þess hvergi getið, að neinum hafi flogið slíkt í hug á því þingi. Árið 1889 gerðist það tíðinda, að Gestur Pálsson, sem þá var skrif- stofustjóri alþingis, sótti um 600 kr. styrk á ári, tvö ár hin næstu, til rit- starfa. Fjárlaganefnd neðri deildar taldi ekki fært að sinna þeirri um- sókn. Tók þá Þórarinn prójastur Bö&varsson að sér að flytja tillögu um styrk ,,til cand. phil. Gests Páls- sonar, til að gefa út skáldsögu og leikrit. Ákvað hann upphæðina tvennar 600 krónur, og skyldi þó síð- ari greiðslan ekki innt af hendi fyrr en ritin væru komin út.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.