Helgafell - 01.10.1946, Blaðsíða 83
BÓKAEIGN MÍN OG BÓKASÖFNUN
265
ur og fleira þess háttar.) Hefur mér
verið erfiðast aS safna útfarar- og ævi-
minningum. Á ég nú um 250 íslenzkra
ævisagna og útfararminninga, en vant-
ar þó fjölmargar. ISrast ég þess aS
hafa ekki byrjaS fyrr söfnun þeirra
og guSsorSabóka, en þaS var fyrst um
1930, aS ég hóf hana fyrir alvöru.
Var þá orSiS miklu minna um þær
bækur en á árunum 1904—1920. í
guSsorSabókasafn mitt vantar mjög
margt. Hef ég ekki lagt mikiS kapp á
aS ná í allar útgáfur hverrar bókar.
Þó hef ég náS í allar útgáfur biblí-
unnar íslenzku og nýjatestamentin
nema Odds Gottskálkssonar, á þaS
aSeins ljósprentaS. Flestar útgáfur á
ég af bókum séra Hallgríms Péturs-
sonar. Vantar þó þrjár útgáfur af
passíusálmum hans. Ég á aSeins þrjár
bækur prentaSar hérlendis á 16. öld,
nær 50 bækur frá 17. öld, en aSallega
eru guSsorSabækur mínar frá 18. og
19. öld. Af ferSabókum um ísland hef
ég aSalIega keypt þær helztu og kunn-
ustu og á milli 60 og 70 ferSabækur.
Er það aðeins lítiS brot þess fjölda,
sem út hefur komiS af þeim. Þótt mér
hafi tekizt aS safna allmiklu í sum-
um greinum, eins og t. d. rímum,
riddarasögum, ljóðmælum, íslenzkum
skáldsögum og leikritum, búnaðar- og
pólitískum pésum, vantar enn margt
þar í. Veit ég þaS, aS ég næ aldrei
fullkomnu safni í nokkurri grein, þótt
ég safni enn um skeiS. VerS ég aS
sætta mig við það. Mig vantar enn í
ljóðmælasafniS meðal annars marga
ameríska ljóðapésa, og þannig er þaS
í öðrum greinum sem ég taldi, eitt-
hvað vantar í alls staðar, og í nokkrar
vantar mikið. Bætist mér nú fátt eigu-
legra eldri bóka. Mun þar nú víðast
uppurið, sem áður var bókavon.
Ég skal geta þess og minnast með
þakklæti, að flestir bókasafnarar hafa
verið mér hinir hjálpfúsustu við bóka-
söfnun mína. Auk þeirra, sem ég hef
áður talið, vil ég geta þessara manna:
Helgi Tryggvason bókbindari og
Hafliði Helgason prentsmiðjustjóri
hafa allra manna bezt útvegað mér
bækur, selt mér eða skipt við mig.
Má ég þakka þeim marga bókina. Þá
skal nefna Boga yfirkennara Ólafs-
son, Boga heitinn Sigurðsson í BúSar-
dal, DavíS skáld frá Fagraskógi,
Eirík GuSmundsson ættfræðing, Gísla
Jónsson smið, Helga prest KonráSs-
son, Ólaf prófessor Lárusson, SigurS
prófessor Nordal og Þorstein M. Jóns-
son skólastjóra, er allir hafa meira og
minna aSstoðað mig við útvegun bóka.
Hafa allir þessir menn útvegað mér
fleiri eða færri bækur og pésa og gefiS
mér marga bókina. Ég hef aftur á
móti reynt aS láta þá fá kver í stað-
inn, þótt stundum yrði minna en
skyldi. Fleiri hafa greitt götu mína og
það mjög drengilega, eins og t. d.
Halldór fornbóksali frá Hrauntúni.
Margir rithöfundar og útgefendur hafa
sent mér bækur sínar. Er mér það
mikill greiði, þótt þær bækur fáist í
bókabúðum, einkum þegar þær eru
áritaðar af höfundunum.
Ég tel bókasafnara nauðsynlegt að
komast í samband við aðra bóka-
safnara og því aðeins vinnst sú söfn-
un vel, að hver hjálpi öðrum. Ef til
vill má afla sér margra og sjaldgæfra
íslenzkra bóka með nógu gjaldi, en
ég verð þó að telja það vafasamt, nú
orðið, nema föl séu bókasöfn ein-
stakra manna.
Þótt bók sé fengin, er oftast eftir
að láta binda hana inn. Er þaS bæði
dýrt og vandasamt, þegar um eldri