Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2005, Blaðsíða 23
„ÉG ELSKAHANAEINS OG HTJN ER
máls, sp}T konuna naíns og biður hennar. Hún segist heita Presína, tek-
ur ráðahagnum vel en setur honum þó eitt skilyrði: ef svo færi að þeim
yrði barna auðið þá verður hann að lofa því að reyna ekki að sjá hana
meðan hún liggur á sæng. Hann lofar því hátíðlega, þau giftast og allt
gengur þeim í haginn. Hún verður þunguð og eignast þrjú falleg stúlku-
böm: Melúsínu, Melíor og Palestínu. Þá er sent efdr Elínas konungi sem
hraðar sér til konu sinnar en hún hrópar upp yfir sig þegar hún sér hann:
„Vondi konungur, þú hefur svikið loforð þitt og mun það verða þér
dýrkeypt þ\d nú hefur þú misst mig íyrir fullt og allt“ (bls. 130). Svo
hverfur hún ásamt dætrunum þremur og Elínas syrgir þær í átta ár.
Presína fer til eyjunnar Avalon þar sem hún elur stúlkumar upp til
fimmtán ára aldurs. A hverjum morgni fer hún með þær upp á hátt fjall
þar sem sjá má land föður þeirra, brestur í grát og segir þeim að hann
hafi bmgðist sér og því séu þær þarna niður komnar. Það kemur að því
að ein dóttirin, Melúsína, spyr móður sína nánar út í svikin og Presína
segir henni þá frá öllu sem gerst hafði. Melúsína kemur að máfi við syst-
ur sínar og segist hafa hug á að hefiia móður sinnar og þeirra allra og loka
föður þeima inni í fjalli þar sem hann muni dúsa til æviloka. Systumar
fallast á þetta ráðabmgg, þær loka Elínas inni í fjalfinu Brumbloremlion
í Norðymbralandi og fara svo til Presínu og segja henni hvemig þær hafi
refsað eiginmanni hennar. Hún kallar þær öllum illum nöfnum og ásak-
ar þær harðlega fyrir verknaðinn. Þar sem Melúsína er elst þeirra systra
er hún ábyrgust og Presína leggur á hana að á hverjum laugardegi skuli
hún breytast í slöngu frá nafla og niðtu á tær. En finni hún mann sem
vilji giftast henni, með því skilyrði að sjá hana aldrei á laugardögum, og
sem standi við það loforð, þá muni hún lifa og deyja sem venjuleg kona
og losna undan álögum móður sinnar. Standi eiginmaðurinn ekki við lof-
orðið muni hún verða með slönguhala tdl dómsdags og birtast þremur
dögum áður en kastalinn sem hún eigi efdr að byggja skipri um ráða-
menn og einnig í hvert skipti sem einhver af afkomendum hennar deyi.
Palestínu lokar Presína inni í fjallinu Canigou með fjársjóð föðurins og
þar skal hún dúsa þar til riddari bjargar henrn, en Melíor skal gæta sparr-
hauks innilokuð í kastala í Armeníu.
Þá víkur sögunni til skóglendis á bökkum Rónar þar sem aðalsmaður
hittir einnig konu við uppsprettu og gengur að eiga hana. Hún færir
honum mikil auðæfi, þau reisa kastala og bæi og á skömmum tíma
blómstrar byggð á þessu svæði sem þau kalla Forez. Af ótilgreindum
21