Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2005, Page 197
HAKON GOÐI OG GUÐIRNIR
á Hlöðum. í Heimshingln er sambandið milli höfðingja og konungs
útskýrt þannig:
Skyldi full um eld bera, en sá, er gerði veizluna ok hgfðingi var,
þá skyldi hann signa folht ok allan blótmatinn, skyldi fyrst Oð-
ins full - skyldi þat drekka tál sigrs ok ríkis konungi sínum - en
síðan Njarðar full ok Freys full til árs ok friðar.28
Sá sem stendur hér fyrir blótinu er héraðshöfðinginn. Konungnum ber á
hinn bóginn, með hjálp Óðins, að vera í forsvari fyrir höfðingjavaldið al-
mennt, en það hefur verið sérlega mikilvægt atriði á stríðstímum. Þessi
skilningur á hlutverki konungsins sést víða í dróttkvæðunum.
I frásögninni af sjálfu blótinu nefhir Snorri konunginn ekki í tengslum
við ritúahð sem á að færa mönnum frjósemi og frið en í því sem á eftir
fer um fund Hákonar og bændanna á Frostaþingi og þátttöku hans í
blótinu á Hlöðum er sú krafa einmitt gerð til hans að hann skuli blóta til
árs ok friðar.
A friðartímum hefur konungurinn þannig, af frásögn Snorra að dæma,
haft hlutverk sem samsvarar hlutverld annarra valdhafa. Væri hann við-
staddur átti hann að taka þátt, en þátttaka hans var ekkert aðalatriði. Sem
æðsti valdhafi hefur hann þó haft sérstökum skyldum að gegna gagnvart
hinu helga. Þetta staðfestist af eftirfarandi vísu úr Velleklu sem Snorri læt-
ur fylgja með hinni sem áður var vitnað til:
Ok herþarfir hverfa,
Hlakkar móts, til blóta,
rauðbríkar ffemsk rœkir
ríkr, ásmegir, slíku.
Nú grœr jgrð sem áðan.
Aptr geirbrúar hapta
auðrýrir lætr áru
óhryggva vé byggva.29
(Og þeir æsir sem eru þarfir mönnum hverfa til blóta: hinn
voldugi hermaður (Hákon jarl) hefur sóma af því. Nú grær jörð
28 Heimskringla, fyrsta bindi, bls. 168.
29 Vellekla, 16. erindi, Den norsk-islandske skjaldedigtning, bindi B:I, bls. 119f; Heims-
kringla, fyrsta bindi, bls. 242.
05