Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2005, Page 161
Orri Vesteinsson
Smá-saga
Um nýlegar rannsóknir í íslenskum miðaldafræðum
Gunnar Karlsson, Goðamenning. Staða og áhrif goðorðsmanna íþjóðveldi ís-
lendinga, Reykjavík: Heimskringla, 2004.
Helgi Guðmundsson, Land úr landi, Reykjavík: Háskólaútgáfan, 2002.
Sverrir Jakobsson, Við og veröldin. Heimsmynd Islendinga 1100—1400,
Reykjavík: Háskólaútgáfan, 2005.
Torfi Tulinius, Skáldið ískriftinni - Snorri Stnrluson og Egils saga, (Islensk
menning), Reykjavík: Hið íslenska bókmeimtafélag/ReykjavíkurAka-
demían, 2004.
Þær fjórar bækur sem hér hafa verið valdar tdl umfjöllunar eiga það sam-
merkt að fjalla um íslenskar miðaldir, vera efdr íslenska miðaldafræðinga
og hafa komið út síðastliðið eitt og hálft ár eða svo.1 Þetta eru ekki einu
bækurnar á þessu sviði sem komu út 2004 og 2005,2 en þessar voru vald-
ar af því að þær endurspegla ágædega meginlínurnar í miðaldafræðum
eins og þau eru stunduð á Islandi nú um stundir og það sem mér sýnist
að sé helst umhugsunar- og áhyggjuefni fyrir okkur íslenska miðalda-
fræðinga. Þær gefa tilefni til að þalla um stöðu fræðasviðsins í heild og
ræða stefnur og strauma í íslenskum miðaldafræðum á aðeins víðari
1 Land úr landi er þó ársett til 2002.
2 Einnig mætti nefna bók Guðmundar J. Guðmundssonar, A hjara veraldar. Saga nor-
rœnna manna á Grcenlandi, og bók Sveinbjamar Rafnssonar, Olafs sögnr Tryggvason-
ar. Um gerðir þeirra heimildir og h 'öfunda.
159