Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Síða 13

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Síða 13
XVI VISINDARAÐSTEFNA Hl FYLGIRIT 73 mjög fáar rannsóknir hafa verið gerðar áratugum eftir ígræðslu. Unnið er að langtímarannsókn á endingu og heilbrigði ígræddra tanna og er spumingakönnun meðal sjúklinganna liður í henni. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin nær til allra sem vegna tannvöntunar fengu ígræðslu á einum eða tveimur framjöxlum innan sama munns í tengslum við tannréttingameðferð á einni tannlæknastofu. Aðgerðimar fóru fram 1980-2008 og tíminn sem síðan er liðinn er 4-32 ár, að meðal- tali 18 ár. Rafræn könnun með 15 spurningum var send út til 44 ein- staklinga og bárust svör frá 20 konum og 20 körlum, eða 91% hópsins. Svörin vörðuðu 53 af 57 ígræddum tönnum, eða 93% taruianna. Af 53 ígræddum tönnum svarenda höfðu sjö tapast, en 46 voru enn til staðar, eða 86,8%. Niðurstöður: Helstu svör þátttakenda: A. Upplifðu lítinn eða engan sársauka eða óþægindi í tengslum við aðgerðina =52%. B. Skynjuðu ígræddu tönnina svipað eða eins og aðrar tennur í munninum =89%. C. Em mjög sátt eða nokkuð sátt við staðsetningu ígræddu tannarinnar =95%. D. Eru mjög sátt eða nokkuð sátt við útlit ígræddu tannarinnar =94%. E. Finnst þurfa að hugsa meira um tönnina eða hreinsa á annan hátt en aðrar tennur í munninum =10%. F. Hefðu heldur viljað fá tann- planta (skrúfu í beinið) í stað tannarinnar sem vantaði =2%. G. Mundu örugglega eða líklega ráðleggja tannígræðslu fyrir aðra með sama vandamál og þau höfðu sjálf =82%. Ályktanir: Langtímahorfur ígræddra tanna em allgóðar. Um þriðjungur þátttakenda upplifði talsverðan sársauka eða óþægindi við aðgerðina, en hópurinn hefði ekki kosið aðrar lausnir á tannvöntuninni og er yfir- leitt ánægður með árangur meðferðarinnar. E 8 Rannsókn á vatnsleiðslum tannlæknatækja Háskóla íslands Hanna G. Daníelsdóttir, Margrét O. Magnúsdóttir, W. Peter Holbrook Tannlæknadeild HÍ hgd@hi.is Inngangur: Dauðhreinsun þykir sjálfsögð á aðgerðarstofum tannlækna. Mikilvægi þess að fylgjast með gæðum vatns sem kemur úr tann- læknatækjum er augljóst, ekki síst þegar meðhöndlað er fólk með bælt ónæmiskerfi. Bakterlur komast í vatnið við notkun tækisins og sitja sem örveruþekja inni á vatnsleiðslum. Á tannlæknadeild eru þrjár tegundir tannlækningatækja. Sú elsta er ekki búin sótthreinsibúnaði en hinar tvær eru það. Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hvort að tannlæknatækin uppfylli kröfur um hreinleika vatns í vatnsleiðslum og í framhaldi að innleiða sótthreinsun á þeim. Viðmiðin voru reglugerðir ESB (<200 þyrping/mL) og ADA (s500 þyrping/mL). Efniviður og aðferðir: Safnað var sýnum áður en nokkur meðferð var hafin. Vatni (20 mL) var safnað úr túrbínum, 3-way og drykkjarvatni stólsins. Einnig var tekið sýni úr kranavatni til handþvottar. Vatnssýni (0,5 mL) var blandað við Tryptic-soy-yest extract æti. Eftir 24 tíma ræktun voru bakteríur taldar. Hófst þá sótthreinsun á vatnsleiðslum tannlæknatækja tvisvar í viku annars vegar með Calbenium® og hins vegar Citrisil®. Ákveðið var að láta vatn renna í gegnum leiðslur þeirra tækja sem ekki höfðu búnað til sótthreinsunar. Þetta var gert tvisvar í viku 30 sek. í senn. Drykkjarvatn var látið renna daglega en ekki er hægt að sótthreinsa það. Eftir tvær vikur var sýnatakan endurtekin. Niðurstöður: í fyrstu sýnatöku voru bakteríur >10 þyrping/mL úr vatnsleiðslum tannlæknatækja. Úr kranavatni voru 50-300 þyrping/mL, meðal annars E. coli. Úr seinni sýnatöku hafði örverum fækkað allt niður í 2,1 x 102 c.f.u./mL úr vatnsleiðslum tannlæknatækja. Ályktanir: Niðurstöður sýndu verulega fækkun á bakteríum. Jafnvel í þeim tækjum sem ekki er hægt að láta sótthreinsiefni renna í gegnum var fækkun á bakteríum. E 9 Samband peri-implant sýkinga, tannholdssjúkdóma og reglulegs tannholdseftirlits Bjami E. Pjetursson', Christoph Helbling2, Hans-Peter Weber’, Giedre Mntuliene’, Giovanni E. Salvi2, Urs Bragger2, Kurt Schmidlin’, Marcel Zwahlen5, Niklaus P. Lang6 'Tannlæknadeild HÍ, 2University of Beme School of Dentat Medicine, Sviss, Tufts University School of Dental Medicine, Boston, 4Private practice, Hamborg, 5Institute of Social and Preven- tive Medicine, University of Beme, 6tannlækningadeild The University of Hong Kong, bep@hi.is Inngangur: Markmið rannsóknar var að meta langtíma endingu og ástand tannplanta, sem sett voru í einstaklinga með tannholdssjúkdóma. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin samanstóð af 70 einstaklingum með 165 tannplanta. Blæðing úr tannholdi við pokamælingu (BOP), klínískt festutap tanna (CAL) og dýpt tannholdspoka (PPD) voru mæld áður en upphafleg meðferð fór fram (T0), eftir að upphaflegri meðferð lauk (Tl) og við endurmat (T2) átta árum síðar. Beinhæð við tannplanta var metin á röntgenmyndum. Sjúklingarnir voru flokkaðir í tvo hópa. Annars vegar með implönt með heilbrigðri peri-implant slímhúð (non-PIP) og hins vegar með peri-implant sýkingu við eitt eða fleiri implönt (PIP). Niðurstöður: Lífslíkur implantanna voru 95,8%. Lífslíkur (solid screw) implanta voru markvert hærri en "hollow cylinder" og "hollow screw" implanta eða 99,1% á móti 89,7%. Þegar peri-implant sýking, skilgreind sem PPD >5mm, BOP+, var metin, höfðu 22,2% implantanna og 38,6% sjúklinganna sýkta peri-implant slímhúð. Þegar peri-implant sýking var skilgreind sem PPD>6mm, BOP+, minnkaði tíðnin niður í 8,8% og 17,1%. Eftir að upphaflegri meðferð lauk (Tl), hafði non-PIP-hópurinn marktækt (p=0,011) færri rest tannholdspoka þ5mm) en PlP-hópurinn. Við endurmat (T2) hafði fjöldi rest tannholdspoka í PIP hópnum aukist frá því eftir að upphaflegri meðferð lauk (Tl) en staðið í stað í non-PIP- hópnum. Tíðni peri-implant sýkinga var lægri hjá þeim sjúklingum sem voru í vel skipulögðu tannholdseftirlit. Áyktanir: I einstaklingum sem útsettir eru fyrir tannholdssjúkdómum, eykur fjöldi rest tannholdspoka við lok tannholdsmeðferðar líkumar á því að sýking verði í peri-implant slímhúð, bein tapist og að tannplantar tapist. Hjá einstaklingum, þar sem endursýking verður í tannholds- pokun, er meiri áhætta á peri-implant sýkingum. E 10 Ástæður fyrir ísetnlngu tannfyllinga á íslandi Svend Richter, Sigfús Þór Elíasson Tannlæknadeild HÍ svend@hi.is Inngangur: Rannsóknin er framhald rannsókna árin 2000 og 1983. Ástæður fyrir gerð tannfyllinga og veita mikilvægar heilsufarslegar upplýsingar Efniviður og aðferðir: Eitt hundrað og níutíu almennir tannlæknar voru beðnir að skrá aldur og kyn sjúklings, kyn tannlæknis, árafjölda frá út- skrift og upplýsingar um skilgreindar ástæður fyrir gerð 100 fyllinga. Niðurstöður: Svör bárust frá 97 tannlæknum (51,1%), 38 konum (39,2%) og 59 körlum (60,8%) um 9043 fyllingar og 604 skorufyllur. Meðalárafjöldi frá útskrift tannlækna var 19,5 ár. Fyllingar í körlum voru 4716 (48,9%) en konum 4.931 (51,1%) og var meðalaldur sjúklinga 36,5 ár. Ástæður fyllinga vom 40,8% primer tannáta, 8,9% tannátulaus vandamál og 50,3% endurfyllingar. Primer tannáta greindist mest í LÆKNAblaðið 2013/99 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.