Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Blaðsíða 68
XVI VISINDARAÐSTEFNA Hl
FYLGIRIT 73
og staðlaðan spumingalista til að meta daglega hreyfingu eldri borgara
og rannsaka fylgni milli mælinga og sjálfsmats á hreyfingu.
Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru 65 til 89 ára (M=74,3 ár) og
bjuggu heima, í þéttbýli eða í dreifbýli á NA-landi. Þeir gengu með
ActivPAL hreyfimæli í eina viku og safnaði hann upplýsingum um: tíma
í sitjandi/liggjandi stöðu, standandi og á göngu; skrefafjölda; stöðu-
breytingar (setjast, standa upp); og orkunotkun. Þá svöruðu þátttak-
endur staðlaða spurningalistanum Mat á líkamsvirkni aldraðra (MLA)
sem gefur stig fyrir heildarhreyfingu yfir daginn sem skiptast upp í stig
fyrir hreyfingu í frístundum, við heimilisstörf og við vinnu.
Niðurstöður: Stærstur hluti heildarhreyfingar samkvæmt MLA
tengdist hreyfingu við heimilisstörf. Þó var marktækur munur á magni
hreyfingar í frístundum, við heimilisstörf og við vinnu, og tengdist
munurinn aldurshópi, kyni og búsetu. Niðurstöður hreyfimæla sýndu
að þátttakendur eyddu að meðaltali 3A hlutum úr sólarhring (18 klst.)
sitjandi eða liggjandi, 2 klst á göngu og 4 klst. standandi í kyrrstöðu. Þá
gengu þeir frá 273 upp í 14.700 skref á dag (meðalskrefafjöldi = 7.297).
Hreyfimælarnir sýndu einnig hvemig þeir sem höfðu náð 75 ára aldri
hreyfðu sig marktækt minna en þeir sem voru yngri. Góð fylgni reyndist
á milli allra þátta sem báðar rannsóknaraðferðirnar, MLA og hreyfimæl-
arnir, náðu til.
Ályktanir: ActivPAL hreyfimælar og MLA eru mismunandi leiðir sem
nota má til að afla upplýsinga um magn, ákefð og tegund daglegrar
hreyfingar hjá eldri borgurum. Slíkar upplýsingar eru mikilvægar ef
forvarnir og íhlutun í formi hreyfingar eiga að vera markvissar og skila
árangri í formi bættrar heilsu.
E 186 Áhrif fjölþættrar þjálfunaríhlutunar og næringarráðgjafar á
líkamssamsetningu og áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma hjá
eldri einstaklingum
Janus Guðlaugsson', Steinunn Amars Ólafsdóttir1, Vilmundur Guðnason2-3,
Thor Aspelund2-4, Anna Sigríður Ólafsdóttir1, Pálmi V. Jónsson3-5, Sigurbjöm Ámi
Amgrímsson1, Sigurveig H. Sigurðardóttir6, Erlingur Jóhannsson1
‘Menntavísindasviði HÍ, 2Hjartavemd, 3læknadeild og 4lýðheilsusviði Hí, Landspílaln,
'’félagsvísindasvið HÍ
janus@hi.is
Inngangur: íhlutunarrarmsóknir á líkamlegri virkni (PA) og nær-
ingarráðgjöf hafa sýnt fram á jákvæðar breytingar á líkamssamsetningu
og áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Markmið rannsóknar var
að kanna hvað áhrif sex mánaða þjálfun og næringarráðgjöf hefur á
líkamssamsetningu, áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma, PA og nær-
ingarneyslu mælda með þriggja daga skráningu á 71 til 90 ára (n=117)
fslendinga.
Efniviður og aðferðir: Beitt var víxluðu rannsóknarsniði með handa-
hófskenndu vali í þjálfunarhópi (ÞH) og viðmiðunarhópi (VH). íhlutun
fór fram á tveimur sex mánaða tímabilum. Þjálfunarhópur stundaði
þjálfun á fyrra tímabili en viðmiðunarhópur á því seinna. Þjálfun inni-
hélt daglega göngu, tvær styrktaræfingar á viku ásamt sjö heilsutengd-
um fyrirlestrum. Fyrir og eftir hvert tímabil voru niðurstöður kannaðar.
Niðurstöður: Eftir fyrri rannsóknartímabil þjálfunarhóps voru eftirfar-
andi niðurstöður tölfræðilega marktækar (p<0,05): ummál mittis (-6,45
cm), efri mörk blóðþrýstings (-5,33 mmHg), neðri mörk blóðþrýstings
(-2,58 mmHg), þyngd (-1,32 kg), BMI (-0,46 kg/m2), fitumassi (-1,48 kg),
fitumassi kviðar (-1,02 kg), vöðvamassi (0,40 kg), vöðvamassi kviðar
(0,35 kg), næring (714 kj) og PA (34 cpm). Sambærileg breyting kom fram
hjá viðmiðunarhópi. Eftir síðara rannsóknartímabil, þar sem viðmiðun-
arhópur fékk þjálfun en afskipti rannsóknaraðila af þjálfunarhópi var
ekki lengur til staðar voru niðurstöður eftirfarandi hjá viðmiðunarhópi:
Ummál mittis (-4,25 cm), efri mörk blóðþrýstings (-8,61 mmHg), neðri
mörk blóðþrýstings (-4,74 mmHg), þríglýseríð (-0,14 mmol/1), þyngd
(-1,51 kg), BMI (-0,46 kg/m2), fitumassi (-0,73 kg), fitumassi kviðar (-0,41
kg) og PA (125 cpm). Hjá þjálfunarhópi dró úr jákvæðum breytingum.
Ályktanir: Niðurstöður benda til þess að áhrif næringar frekar en þjálf-
unar geti verið lykilþáttur í forvörnum gegn hjarta- og æðasjúkdómum
hjá eldri aldurshópum.
68 LÆKNAblaðið 2013/99