Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Blaðsíða 45
XVI VISINDARAÐSTEFNA Hl
FYLGIRIT 73
HADS-S mælitækinu var mikil á þunglyndi, d=0,8 en lítil á kvíða, d=0,3.
Alyktanir: Niðurstöðurnar sýndu áhrifastærðir sem gefa vísbendingu
um að inngripið geti nýst við þróun meðferðar í klfnísku starfi og til
framtíðarrannsókna með stærra úrtaki.
E 111 Sálræn líðan í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajöklí
Ama Hauksdóttir1, Hanne Krage Carlsen1, Unnur Valdimarsdóttir', Guðrún
Pétursdóttir2
'Miðstöð í lýðheilsuvísindum HÍ, 2Stofnun Sæmundar fróða HÍ
arnah@hi.is
Inngangur: Að upplifa eldgos í návígi getur haft langvarandi áhrif á
heilsu manna. Þekking á þessu sviði takmörkuð, sérstaklega á áhrifum
á sálræna líðan, þar sem eldgos verða sjaldan í löndum með sterka inn-
viði sem geta staðið að ítarlegum rannsóknum. I kjölf ar eldgossins í
Eyjafjallajökli vorið 2010 voru rannsökuð áhrif þess á andlega heilsu og
þau greind eftir búsetu, bakgrunni og upplifun einstaklinganna.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin tók til 1615 ibúa á Suðurlandi og
697 Skagafirðinga (samanburðarhópur) sem svöruðu spurningalista á
pappír eða rafrænt haustið 2010. Spurningalistinn innihélt ýmsar mæl-
ingar á sálrænni líðan auk spurninga um líkamleg einkenni og sérstakra
spurninga um upplifun á eldgosinu.
Niðurstöður: Svör bárust frá 71% eldgosahópsins og 73% samanburðar-
hópsins. Þeim sem upplifað höfðu eldgosið reyndist hættara við andlegri
vanlíðan (OR 1,3; CI 1,0-1,7) en hvorki svefnleysi (OR 0,8; CI 0,6-1,0) né
inntöku svefn- eða geðlyfja (OR 0,8; CI 0,6-1,1). Þegar eldgosahópurinn
var skoðaðar sérstaklega með tilliti til búsetu, kom í ljós að þeir sem næst
bjuggu voru líklegri til að eiga við svefnvandamál að stríða (OR 2,8; CI
1,3-,9) og taka inn geð- eða svefnlyf (OR 2,8; CI 1,3-6,3), borið saman við
þá sem fjær bjuggu. Niðurstöður sýndu einnig að um helmingur hafði
sótt íbúafundi til upplýsinga og stuðnings og 62% þóttu afleiðingar
eldgossins ekki eins neikvæðar og við var að búast. Ennfremur kom í ljós
að þeir sem höfðu orðið fyrir eignatjóni í kjölfar eldgossins áttu við meiri
vanlíðan að stríða en þeir sem ekki höfðu orðið fyrir eignatjóni.
Alyktanir: Niðurstöður sýna að afmarkaður hópur getur átt á hættu sál-
rænan heilsufarsbrest eftir álag af þessu tagi. Frekari rannsóknir þurfa
að beinast að þeim hópi með áherslu á stuðning og eftirfylgni.
E 112 Endurkoma eftirlifenda tsunami-flóðbylgjunnar til hamfara-
svæðanna einu ári síðar. Fjórtán mánaða eftirfylgd
Ragnhildur Guðmundsdóttir1, Christina Hultman2, Unnur A. Valdimarsdóttir1-3
’Miðstöð í lýðheilsuvísindum HÍ, ?Dpt of Medical Epidemiology and Biostatistics, Karolinska
lnstitutet, Stokkhólmi, 'Dpt of Epidemiology, Harvard School of Public Health, Boston, BNA
ragl6@hi.is
Inngangur: Náttúruhamfarir geta haft langtímaáhrif á geðheilsu eftirlif-
enda. Sænsk yfirvöld buðu öllum sænskum eftirlifendum tsunami-flóð-
bylgjunnar í Asíu 2004 að heimsækja hamfarasvæðin ári síðar. Könnuð
voru einkenni og geðheilsa sænskra eftirlifenda sem fóru tilbaka til
hamfarasvæðanna og eftirlifenda sem fóru ekki.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin byggir á hópi 10.116 sænskra
eftirlifenda tsunami-flóðbylgjunnar 2004 sem komu heim til Svíþjóðar
á fyrstu þremur vikunum eftir hamfarirnar. Alls svöruðu 4.932 (49%)
spumingalista 14 mánuðum síðar. Þátttakendur voru spurðir hvort þeir
hefðu farið til baka til hamfarasvæðanna, einnig um bakgrunnsþætti,
útsetningu fyrir áfalli, áfallastreitueinkenni og geðheilsu 14 mánuðum
eftir heimkomu.
Niðurstöður: Alls fóru 1.264 (26%) eftirlifendur til baka til hamfara-
svæðanna. Þeir voru líklegri til að vera karlmenn, 40 ára og eldri, með
grunnmenntun. Einnig að hafa misst ástvin, verið sjálfir eða átt ástvin á
spítala á hamfarasvæðum, verið á Khao Lak eða Phuket-strönd, fengið
stuðning á hamfarasvæðum og unnið sjálfboðastarf á hamfarasvæðum.
Enginn munur fannst á brottflutningstíma og áfallasögu milli eftirlif-
enda sem fóru og fóru ekki. Endurkoma á hamfarasvæði var hvorki
tengd hærri áhættu á áfallastreitueinkennum (leiðrétt líkindahlutfall 1,2;
95% öryggisbil 1,0-1,4) né lakari geðheilsu (leiðrétt líkindahlutfall 1,1;
95% öryggisbil 0,9-1,3) 14 mánuðum eftir hamfarirnar.
Alyktanir: Sænskir eftirlifendur tsunami-flóðbylgjunnar sem fóru til
baka til hamfarasvæða ári síðar skýrðu frá alvarlegri útsetningu fyrir
áfalli samanborið við eftirlifendur sem fóru ekki. Eftir leiðréttingu fyrir
útsetningu fyrir áfalli fannst enginn munur á áfallastreitueinkennum
eða geðheilsu milli eftirlifenda sem fóru til baka og eftirlifenda sem fóru
ekki til baka.
E 113 Líkaminn tjáir það sem við komum ekki í orð
Sigrún Sigurðardóttir, Sigríður Halldórsdóttir, Sóley S. Bender
Háskólanum á Akureyri, Háskóla fslands
sigrunsig@unak.is
Inngangur: Rannsóknir sýna að kynferðislegt ofbeldi í bernsku getur
haft mjög víðtækar og alvarlegar afleiðingar fyrir heilsufar og aukin
hætta er á flókinni áfallastreituröskun. Tilgangur rannsóknarinnar var
að kanna heilsufar konu sem varð fyrir ítrekuðu kynferðislegu ofbeldi
í æsku af hendi fimm nákominna aðila frá tveggja til þriggja ára aldri
og fram á fullorðinsár, hún er í dag um fertugt. Hún varð einnig fyrir
andlegu ofbeldi og einelti í æsku og á fullorðinsárum.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknaraðferðin er eigindleg tilfellarann-
sókn, Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði sem ætlað er að auka þekk-
ingu og dýpka skilning á tilteknum mannlegum fyrirbærum í þeim
tilgangi að bæta mannlega þjónustu eins og heilbrigðisþjónustuna.
Tekin voru sex formleg viðtöl við eina konu og fleiri óformleg á þriggja
mánaða tímabili.
Niðurstöður: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að kynferðislegt
ofbeldi í bemsku getur haft mjög alvarleg og niðurbrjótandi áhrif fyrir
heilsufar og valdið alvarlegum og „óútskýranlegum" líkamlegum ein-
kennum. Niðurstöðunum er skipt í þrjú meginþemu: a) Sagan hennar,
endurtekin áföll og andlegt niðurbrot; b) Niðurbrot líkamans, sálvefræn
einkenni; c) Niðurbrot konunnar, móðurlífið.
Ályktanir: Kynferðislegt ofbeldi í æsku er mjög alvarlegur áhættuþáttur
fyrir flókin heilsufarsvandamál og áfallastreituröskun. Efla þarf þekk-
ingu heilbrigðisstarfsfólks á slíkum einkennum til að geta brugðist við
með viðeigandi meðferðarúrræðum.
E 114 Hinn langi armur kynferðisofbeldis í æsku. Áhrif á álagsþætti
og líðan á fullorðinsaldri
Rúnar Vilhjálmsson
Hjúkrunarfræðideild HÍ
runarv@hi.is
Inngangur: Rannsóknir hafa leitt í ljós margvíslegar langvinnar afleið-
ingar kynferðisofbeldis í æsku. Slíkt ofbeldi hefur verið tengt ýmiss
konar erfiðleikum og vanlíðan fram á fullorðinsaldur. Tilgangur rann-
sóknarinnar var að athuga hvort reynsla af kynferðislegri áreitni og
LÆKNAblaðið 2013/99 45