Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Page 38

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Page 38
XVI VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ FYLGIRIT 73 Efniviður og aðferðir: Framvirk, lýsandi samanburðarrannsókn með þremur mælingum meðal sjúklinga og aðstandenda, fyrir aðgerð (tími 1), á sjúkrahúsi (tími 2) og sex til sjö mánuðum eftir aðgerð (tími 3). Þátttakendur voru aðstandendur sjúklinga sem gangast undir skipu- lagðar liðskiptaaðgerðir á þremur íslenskum sjúkrahúsum. Gögnum var safnað með þremur kvörðum, tveir þeirra eru samhliða og mæla annars vegar væntingar sjúklinga til fræðslu og hins vegar fengna fræðslu. Niðurstöður: Próffræðilegir eiginleikar kvarða voru ásættanlegir. Á tíma 1 svöruðu 212, á tíma 2,141 aðstandandi og 144 á tíma 3. Meðalaldur var 58,0 ár (sf 13,5), og aldursbilið var frá 19 til 89 ára. Aðstandendur höfðu miklar væntingar til fræðslu á tíma 1, en þörfum þeirra fyrir fræðslu eftir aðgerð aðstandenda var ekki mætt. Fræðsluþörfunum eftir aðgerð var best mætt hvað varðar fræðslu um lífeðlisfræðilega og fæmiþætti en síður hvað varðar félagslega og fjárhagslega þætti. Greint verður frá niðurstöðum út frá bakgrunnsþáttum, sjúkrahúsum og fræðsluþarfir aðstandenda og sjúklinga bornar saman. Ályktanir: Fræðsluþörfum aðstandenda virðist ekki mætt á sjúkra- húsum á íslandi, en aðstandendur nýta oft illa þá fræðslu sem í boði er fyrir þá. E 89 Notkun á heilbrigðisþjónustu vegna langvinnra verkja Þorbjörg jónsdóttir'-, Helga Jónsdóttir',Sigríður Gunnarsdóttir1-3 ’Hjúkrunarfræðideild Hí, 2hjúknjnarfræðideild HA, :Landspítala torbj@unak.is Inngangur: Tilgangur rannsóknar var að lýsa notkun á heilbrigðis- þjónustu á Islandi, almennt og í tengslum við langvinna verki. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti var sendur til þjóðskrárúrtaks 4500 einstaklinga á aldrinum 20-70 ára. Spurt var meðal annars um aðgengi og notkun að heilbrigðisþjónustu, almennt og í tengslum við verki. Niðurstöður: Heildarsvörun var 36,9%, 40,6% meðal þeirra sem báru íslensk nöfn en 8,6% meðal einstaklinga, sem af nafninu að dæma voru af erlendu bergi brotnir. Um helmingur þátttakenda (55%) hafði haft verki síðastliðna viku og 47,5% voru með langvinna verki (s3 mánuði). Algengast var að verkimir væru staðsettir í hálsi, herðum og öxlum og í neðri hluta baks. Flestir voru með verki á fleiri en einum stað og um þriðjungur með stöðuga verki. Marktækur munur var á notkun á heil- brigðisþjónustu síðustu sex mánuði milli þeirra sem ekki höfðu haft verki síðastliðna viku og þeirra sem voru með langvinna verki. Flestir í báðum hópum sögðust leita til heimilislæknis eða næstu heilsugæslu- stöðvar þegar þeir þyrftu á þjónustu að halda en einstaklingar með langvinna verki leituðu í meira mæli en viðmiðunarhópurinn til bráða- móttöku eða beint til sérfræðings. Flestir töldu sig eiga auðvelt með að nálgast heilbrigðisþjónustu. Komugjöld og lyf voru þeir kostnaðarliðir sem voru mest íþyngjandi í báðum hópum. Rúmlega helmingur ein- staklinga með langvinna verki hafði leitað sér heilbrigðisþjónustu vegna þeirra síðastliðna sex mánuði. Fylgni var milli notkunar á heil- brigðisþjónustu og hegðunar og útbreiðslu verkja en ekki staðsetningar verkjanna. Ályktanir: Almenn notkun á heilbrigðisþjónustu er meiri hjá einstak- lingum með langvinna verki en þeirra sem ekki eru með verki. Notkun á heilbrigðisþjónustu tengist útbreiðslu og mynstri verkjanna en ekki staðsetningu. E 90 Áhrif námskeiðsins, Njóttu þess að borða, á heilsu kvenna í yfirvigt Helga Lárusdóttiru, Helga Sævarsdóttir1-2, Laufey Steingrímsdóttir1, Ludvig Guðmundsson3, Eiríkur Om Arnarson11 'Háskóla íslands, 2Heilsugæslu höfuðborgarsvæöisins, 3Reykjalundi, 4sálfræðiþjónustu geð- sviðs Landspítala helga. saevarsdottir@heilsugaeslan. is Inngangur: Eitt alvarlegasta lýðheilsuvandamál heimsins er offita og algengi hennar hefur aukist undanfarna áratugi. Offita hefur áhrif á líkamlega og andlega heilsu og eykur dánartíðni. Skortur er á með- ferðarúrræðum fyrir of feita einstaklinga, sem skila viðunandi langtíma árangri. Efniviður og aðferðir: Markmið rannsóknar var að skipuleggja og for- prófa 15 vikna námskeið, byggt á hugrænni atferlismeðferð (HAM) og þjálfun svengdarvitundar (Appetite Awareness training, AAT) fyrir konur í yfirvigt og rannsaka áhrif þess á andlega og líkamlega heilsu þátttakenda. Rannsókn var íhlutandi víxlrannsókn og áhrif íhlutunar metin í tveimur hópum A og B. Hópur B var til samanburðar meðan hópur A sótti námskeiðið. í þægindaúrtaki voru 20 konur á aldrinum 19-44 ára, líkamsþyngdarstuðull (LÞS) á bilinu 30-39,9 kg/m2 og var þeim skipt af handahófi í tvo hópa. Árangur var metinn fyrir, á meðan og eftir íhlutun og við sex og 12 mánaða eftirfylgd. Mælingar voru gerðar á þyngd, líkamsþyngdarstuðli, fituhlutfalli, fituþyngd, blóð- þrýstingi, kólesteróli, þríglýseríði, háþéttni fitupróteini, glúkósa, lang- tímablóðsykri (HbAlc), serum járni og 25 (OH)D. Einnig voru metin lífsgæði (SF-36 og OP), þunglyndis- (BDI-II) og kvíðaeinkenni (BAI) og aflað upplýsinga um lýðfræðilegar breytur. Ánægja með námskeið var metin í lok þeirra. Niðurstöður: Þátttakendur léttust marktækt (P=0,001), LÞS (P=0,001) um 4,18 kg og gildi D-vítamíns (P=0,005) hækkuðu í kjölfar námskeiðs. Þunglyndis- og kvíðaeinkenni fækkuðu marktækt (P=0,001 og 0,001) og lífsgæði jukust (P=0,01) á meðan námskeið stóðu. Árangur hélst við sex og 12 mánaða eftirfylgd. Ályktanir: Námskeiðið „Njóttu þess að borða" lofar góðu, sem ákjósan- legt úrræði fyrir konur í yfirvigt. Það virðist bæta andlega líðan og lífs- gæði, auk jákvæð áhrif á D-vítamín gildi og þyngd. E 91 Geta einkenni og áhættuþættir sjúklinga, sem skráðir hafa verið, spáð fyrir um endurinnlagnir Hanna Kristín Guðjónsdóttir1, Elín Hafsteinsdóttir1-2, Ásta Thoroddsen12 'Hjúkrunarfræðidcild HÍ, 2Landspítala hannakgu@iandspitaii.is Inngangur: Endurinnlagnir eru um helmingur allra innlagna á sjúkrahús og eru um 60% af kostnaði heilbrigðiskerfisins. Greina þarf ástæður/áhættuþætti endurinnlagna til að fyrirbyggja þær. Tilgangur rannsóknar var að: 1. Nota tölfræðilega gæðastýringu fyrir gæðavísinn endurinnlagnir. 2. Kanna hvort gögn um innlagða sjúklinga á sjúkrahús hafi forspárgildi um endurinnlagnir. Efniviður og aðferðir: Afturvirk lýsandi fylgnirannsókn á gögnum inniliggjandi sjúklinga >18 ára á Landspítala á: 1) sérgreinum lyf- og skurðlækninga árin 2008, 2009 og 2010 (fy =47.513) og 2) sérgreinum almennra- og þvagfæraskurðlækninga og meltinga- og nýrnalækninga 2011/2012 og voru endurinnlagðir eða ekki <30 daga frá útskrift (N2=439). Niðurstöður: Endurinnlagnir voru 5,7% á skurð- og lyflækningasviðum Landpítala árið 2008 og 6,9% 2010. Stýririt tölfræðilegrar gæðastýr- 38 LÆKNAblaðið 2013/99
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.