Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Page 56

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Page 56
XVi VISINDARAÐSTEFNA Hl FYLGIRIT 73 verið greindir með ákveðna langvinna sjúkdóma. Undirmarkmið rann- sóknarinnar voru að meta breytingar í klínískum, hagfræðilegum og hegðunartengdum útkomum milli tveggja heimsókna auk þess að setja þær í samhengi við meðferðarheldni. Efniviður og aðferðir: Þversniðsrannsókn var framkvæmd til að meta meðferðarheldni milli tveggja heimsókna í heilsueflingarmiðstöðina út frá lyfjaendumýjunum fengnum úr lyfjagagnagrunni. íhlutunarsnið án viðmiðunarhóps var notað til að meta breytingar í klínískum, hagfræði- legum og hegðunartengdum útkomum út frá heilsueflingarviðtölum og öðrum skráningargögnum. Niðurstöður: Um það bil helmingur (49,5%) þátttakenda í rannsókninni tóku lyfin sín ekki sem skyldi. Ómeðferðarheldnir einstaklingar voru líklegri til að nota fleiri lyf og mælast með óeðlileg gildi á líkams- massastuðli og mittismáli. Þátttakendur voru minnst meðferðarheldnir við sykursýkislyf en mest við angíótensín II viðtakahindra. Þegar litið er á átta mest notuðu lyfin innan þýðisins var meðferðarheldni við simvastatín hæst en lægst við níasín. Gögnin gáfu til kynna að með- ferðarheldnir þátttakendur höfðu heilbrigðari lífsstíl að einhverju marki. Kostnaðargreining gaf vísbendingar um hærri heilbrigðiskostnað meðal ómeðferðarheldinna einstaklinga, en þörf er á ítarlegra hagfræðilegu mati. Ályktanir: Ófullnægjandi meðferðarheldni í þessu þýði gefur vísbend- ingu um þörf á frekari íhiutun. Þessi rannsókn ýtir undir áframhaldandi heilsueflingu, en þó er þörf á viðameira mati. E 147 Opin áreitipróf á börnum sem grunuð eru um sýklalyfjaof- næmi Una Jóhannesdóttir', Gunnar Jónasson'-2, Tonie Gertin Sörensen, Ásgeir Haraldssonu 'Læknadeild HÍ, 2Barnaspítala Hringsins unj8@hi.is Inngangur: Algengt er að grunur vakni um ofnæmi gegn sýklalyfjum hjá bömum og getur það komið í veg fyrir notkun réttra lyfja. Hugsanlegt er að sýklalyfjaofnæmi sé ofgreint og því gæti reynst mikilvægt að notast við greiningaraðferðir sem ýmist staðfesta eða útiloka þennan grun. Markmið rannsóknarinnar var að meta hve stórt hlutfall þeirra barna sem komu í áreitipróf vegna gruns um sýklalyfjaofnæmi reyndist vera með staðfest einkenni bráðaofnæmis. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra barna sem vísað var af lækni í opin áreitipróf fyrir sýklalyfjum á Barnaspítala Hringsins á árunum 2007-2012. Ur sjúkraskrá voru fengnar klínískar upplýsingar og niðurstöður úr áreitiprófunum. Tengl voru skoðuð milli lyfjategunda, viðbragða, annarra sjúkdóma, ofnæmis- hneigðar og annars. Niðurstöður: Af 591 barni sem mættu í opið áreitipróf voru 34 böm með jákvæða eða óljósa svörun, ýmist bráð (n=8; 23,5%) eða síðbúin (n=26; 76,5%) ofnæmisviðbrögð. Þessi börn mættu í endurtekið próf til staðfestingar og af þeim fengu þrjú böm síðbúið ofnæmissvar gegn því sýklalyfi sem í hlut átti. Algengast var að prófað væri fyrir amoxícillíni einu og sér (n=326; 55%) eða samsett með klavúlanik sýru (n=195; 33%). Flest börn voru ekki með þekkta ofnæmishneigð (n=408; 69%). Ekkert barnanna var greint með bráðaofnæmi, gerð I svörun, fyrir því sýklalyfi sem það var prófað fyrir. Ályktanir: Bráðaofnæmi fyrir viðkomandi sýklalyfi var afsannað í öllum tilvikum hjá þeim bömum sem mættu í prófin og því er hugsanlegt að það hafi verið. Mögulega komu upphafleg viðbrögð barnanna fram vegna annarrar sýkingar fremur en sýklalyfjanna. Ekki er hægt að úti- loka að fleiri börn hefðu fengið síðbúin ofnæmisviðbrögð ef gefnir hefðu verið fleiri en tveir skammtar af lyfinu. E 148 Við verðum að tala saman - www.brjostagjof.is Arnheiður Sigurðardóttir', Ásrún Matthíasdóttir 'Hjúkrunarfræðideild HÍ, 'Háskólanum í Reykjavík amheid@hl.is Inngangur: Á undanfömum árum hefur mikil áhersla verið lögð á að böm séu á brjósti eða fái brjóstamjólk og á íslandi fæðast um 4.500 börn árlega. Sífellt fleiri rannsóknir hafa komið fram á síðastliðnum tveimur áratugum sem hampa ágæti brjóstagjafar fyrir móður og barn. Svo þungt vega rökin að fræðimönnum ber saman um að ekki sé kostur á betri ung- bamafæðu og fagfólk eigi að hvetja mæður og veita þeim stuðning við brjóstagjöf með öllum tiltækum ráðum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, Miðstöð heilsuverndar barna og Manneldisráð mæla með að börn séu eingöngu á brjósti í sex mánuði og hvetja til brjóstagjafar ásamt annarri fæðu í allt að tvö ár eða lengur og telja það ákjósanlegt lýðheilsumarkmið. Efniviður og aðferðir: Vefsíðan fjallar um brjóstagjöf frá ýmsum sjónarhornum meðal annars næringu, ónæmisfræði, tengslamyndun og sem uppeldisaðferð. Efni síðunnar er byggt á niðurstöðum rannsókna og rannsóknartengdu efni og er tilgangurinn að koma niðurstöðum rannsókna til fólksins með kennslufræðilegum aðferðum og auðvelda heilbrigðisstarfsfólki að vinna faglega á hverjum tíma svo auka megi gæði heilbrigðisþjónustu. Niðurstöður: Heimsóknir á www.brjostagjof.is voru frá janúar- des- ember 2011 frá 19.050 tölvum 35.255 (2.225-4.329) heimsóknir og 192.349 flettingar á síðum. Heimsóknum í maí voru frá 2.282 tölvum 4.329 heimsóknir og 24.490 flettingar. Frá árinu 2010 hefur notkun síðunnar margfaldast og breiðst út. Ályktanir: Draga má þá ályktun að þörf hafi verði fyrir rannsóknartengt fræðsluefni á íslensku um brjóstagjöf á veraldarvefnum og að fræðslan sem síðan inniheldur geti fært þjóðina nær ákjósanlegu lýðheilsumark- miði. Síðan er sú fyrsta sinnar tegundar á fslandi sem kynnir rannsóknir á sviði brjóstagjafar og hefur verið vel tekið. E 149 Starfsánægja og streita á breytingatímum. Rannsókn á Kragasjúkrahúsunum Bima G. Flygenring', Helga Bragadóttir'-, Herdís Sveinsdóttir' 'Háskóla fslands, 'Landspítala bgfQhi.is Inngangur: Óvissa í starfsumhverfi getur valdið streitu og óánægju í starfi meðal starfsfólks. Efniviður og aðferðir: Úrtak rannsóknarinnar náði til 221 starfsmanns Kragasjúkrahúsanna vorið 2011 og var svörunin 64,7% (n=143; hjúkr- unarfræðingar=46%, sjúkraliðar=54%). Póstsendur var spumingalisti sem auk bakgrunnsspurninga innihélt spumingar um starfsánægju, streitu og vinnuálag. Niðurstöður: Flestir þátttakenda (69%) voru eldri en 45 ára og voru í 50-90% starfshlutfalli (85%) og höfðu starfað við hjúkrun lengur en 10 ár (71%). Þáttagreining starfsánægjukvarðans greindi fimm þætti sem skýrðu saman 51,9% af heildardreifingu breytnanna. Hjá fjómm þáttanna var Cronbachs a>0,8. Þátttakendur voru óánægðastir með 56 LÆKNAblaðið 2013/99
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.