Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Page 73

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Page 73
XVI VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ FYLGIRIT 73 skemmdir. Rannsóknargögnin gætu verið grunnur að nánari greiningu á hugsanlegu arfgengi tannskemmda og glerungseyðingar. V 14 Útskrift með meistaragráðu frá tannlæknadeild Háskóla íslands Bjarni Elvar Pjetursson, Vigdís Valsdóttir, Ellen Flosadóttir, Sigurður Rúnar Sæmundsson, Karl Öm Karlsson, W. Peter Holbrook Tannlæknadeild HÍ ef@hi.is Inngangur: Bologna samþykktin, sem fjallar um samræmingu tann- læknanáms innan Evrópu, krefur tannlæknadeild HI um að útskrifa nemendur sína með meistaragráðu. Tilgangur þessarar vinnu er að breyta námsskrá tannlæknadeildar á þann hátt að námið uppfylli skilyrði Bologna samþykktarinnar varðandi útskrift nema með meist- aragráðu án þess að skerða klíníska kennslu þannig að deildin útskrifi áfram tannlækna með starfsleyfi á óbreyttum námstíma. Efniviður og aðferðir: Núverandi námsskrá var skoðuð með tilliti til meðal annars innihalds, væntanlegrar klínískrar og akademískrar hæfni sem neminn öðlast, krafna HÍ, Bologna samþykktarinnar og ADEE (Association for Dental Education in Europe) um innihald námsins og hæfniskröfur. Niðurstöður: Námsskráin hefur fengið jákvætt mat við úttektir, sér- staklega klíníski hluti námsins. Nemendur hafa í auknum mæli sóst eftir að vinna rannsóknarverkefni aukalega með náminu. Þessi rannsóknar- verkefni hafa samsvarað 10-12 ECTS einingum og uppfylla ekki kröfur HÍ til meistaragráðu. Ef rannsóknar\'erkefnin yrðu stækkuð upp í 30 ECTS einingar myndi klínísk kennsla skerðast á móti og nemar fengju ekki starfsleyfi við útskrift. Hugmyndin er að hver nemandi setji saman möppu (portfolio) þar sem fram koma klínísk tilfelli sem hann hefur meðhöndlað auk annarra verkefna sem hann hefur lokið. Þessi mappa væri samantekt á verkefnum nemans. Alyktanir: Lítil rannsóknarverkefni framkvæmd af tannlæknanemum ásamt klínískri möppu sem búin er til af hverjum nemanda fyrir sig ættu að uppfylla þau skilyrði sem þarf til að tannlæknanemar gætu útskrifast með meistaragráðu. Þannig kemur klínískt nám ekki til með að skerðast og áfram verður hægt að útskrifa nema sem eiga rétt á starfsleyfi strax við útskrift. V 15 Tannheilsa 12 og 13 ára barna í barnaskóla á Bashay svæðinu, Tansaníu Björg Helgadóttir, Telma Borgþórsdóttir, Sigurður Rúnar Sæmundsson, Inga B. Ámadóttir Tannlæknadeild HÍ bjh10@hi.is, teb3@hi.is Inngangur: í Tansaníu á austurströnd Afríku búa um 49 milljónir manna. Þar af búa um 300.000 manns mjög dreifbýlt á Bashay svæðinu sem staðsett er í norðurhluta Tansaníu. Tveir tannlæknanemar bjuggu og störfuðu þar við tannlæknatengt hjálparstarf í fimm vikur sumarið 2012. Skoðuðu nemarnir meðal annars tannheilsu og sinntu forvamar- starfi við bamaskólann í Bashay, en nemendur þar eru um 800. Efniviður og aðferðir: Með leyfi skólayfirvalda Bashay bamaskólans var tannheilsa 12 og 13 ára grunnskólabarna skoðuð. Tannátutíðni barnana (D3MFT) var metin af tveimur skoðurum samkvæmt aðferðum WHO í kennslustofu skólans. Áhöld við tannskoðun voru höfuðljós, einnota sondur, speglar og hanskar, bómull, myndavél, blað og penni. Tveir kennarar skráðu niðurstöður og voru til staðar sem túlkar. Einnig var spurt um tannhirðu, tannburstategund og fyrri heimsóknarfjölda til tannlæknis. Niðurstöður: Skoðuð voru 110 afrísk börn, 59% (65) voru stúlkur og 41% (45) drengir. Af þeim voru 10,9% barnanna með skemmda tönn (D3), eina eða fleiri. D3MFT var 0,2 og sú tala á þá aðeins við um skemmdar tennur því enginn tönn hjá þessum hópi var töpuð né fyllt. Allir sögðust bursta sig að minnsta kosti einu sinni á dag. Að meðaltali voru tennur burstaðar 1,3 sinnum á dag. 46% barnanna notuðust við venjulegan nælontannbursta en um 54% barnanna notuðu ákveðna trjátegund (Salvadora Persica) sem tannbursta. Enginn marktækur munur var á tannátu milli þessara tveggja hópa. Einungis tvö bamanna höfðu farið áður til tannlæknis. Ályktanir: Aðgengi tansanískra barna að tannlækni er ekki gott. Samt sem áður er tannátutíðni lág miðað við íslensk börn á sama aldri. Sennilega er hægt að rekja þessa góðu tannheilsu til þess að í grunnvatni svæðisins er mikið flúorinnihald og börnin borða einungis eina til þrjár máltíðir á dag. V 16 Heilpostulín í tannlækningum Finnur Eiríksson, Svend Richter Tannlæknadeild HÍ fie1@hi.is Inngangur: Gull hefur verið notað við gerð tanngerva í aldaraðir. Um 1960 var byrjað að brenna postulín á málmkrónur. Síðar komu fram málmlausar postulínskrónur og brýr. Aukin úlitsleg krafa, sérstaklega á framtannasvæði ruddi farveginn. Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvemig heilpostulín er notað í tannlækningum á íslandi. Efniviður og aðferðir: Við rannsóknina var notuð megindleg að- ferðafræði. Spurningalistar voru sendir tannlæknum og tannsmiðum, sem samanstóðu af spumingum um notkun málmlausra tanngerva úr postulíni. Þátttakan var nafnlaus og órekjanleg til einstaklinga í úrtaki. Niðurstöður: Af 275 starfandi tannlæknum svömðu 85 (31%) og af 28 tannsmíðastofum svöruðu 15 (54%). f svörum kom fram 91,6% tann- lækna og 93,2% tannsmiða vinna með málmlaus tanngervi og rúmlega helmingur þeirra telur að meirihluti krónu- og brúarsmíði í dag sé málmlaus. Zirkonium virðist vera mest notað, sérstaklega í stærri tann- gervi. 81,6% tannlækna og 92,9% tannsmiða gera zirkonium kjarna í krónur á framtannasvæði en 61,3% á jaxlasvæði. Aðeins 5,3% tannlækna og 7,1% tannsmiða gera ekki zirkonium brýr á framtannasvæði. 70,1% tannlækna gera implantabrýr úr zirkonium á framtannasvæði. 54,4% tannlækna höfðu notað Zirkonium abutment. 57,9% tannlækna nota bæði pressupostulín og zirkonium en 71,4% tannsmiða. 42,1% tann- lækna nota eingöngu zirkonium og 28,6% tannsmiða. Enginn þeirra sem svöruðu nota eingöngu pressupostulín, hvorki hjá tannlæknum né tannsmiðum. Ályktanir: Meirihluti tanngerva í krónu- og brúargerð er úr heilpostu- líni. Zirkonium verður fyrir valinu þegar kemur að lengri tanngervum á álagssvæðum í munni, hvort sem það er á implönt, tannstuddar krónur eða brýr. LÆKNAblaðið 2013/99 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.