Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Qupperneq 74

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2013, Qupperneq 74
XVI VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ FYLGIRIT 73 V 17 Virkni lípíðlausna gegn öndunarfæraveirum in vivo Hilmar Hilmarsson1, Halldór Þormar1, Þórdís Kristmundsdóttir 'Líf- og umhverfisvísindadeild og :lyfjafræöideild HÍ thordisk@hi.is Inngangur: Respiratory syncytial veira (RSV) er ein algengasta orsök alvarlegrar lungnabólgu hjá ungum bömum og hjá öldruðum. Nothæft bóluefni gegn RSV er ekki til. Það er því greinilega þörf á nýjum lyfjum gegn RSV sem gætu að minnsta kosti dregið úr líkum á alvarlegri sýk- ingu í neðri öndunarfærum. Rannsóknir hafa sýnt að lípíðin lárínsýra og mónókaprín em virk gegn RSV. Hægt er að smita mýs og rottur með RSV og má nota sem dýralíkan til rannsókna á lyfjavirkni. Efniviður og aðferðir: 50pl af lípíðlausnum sem innihéldu 10 mM af mónókapríni og lárínsýru, própýlen glýkóli, Tween 20 eða 40 og Carbopol 974P var sprautað í nasirnar á Spraque Dawley rottum. Nokkrum mínútum síðar var 50pl of RSV A2 sprautað í nasir dýr- anna. Meðferð með lípíðlausnum var framkvæmd fjóra daga í röð. Samanburðarhópur var meðhöndlaður með 0,9% NaCl lausn. Dýrunum var síðan fargað, nefslímhúðin fjarlægð, hún hómógeniseruð og RSV ákvarðað. Niðurstöður: Hjá þeim dýrum sem fengu lípíðlausnirnar varð marktæk lækkun á RSV títer samanborið við hópinn sem fékk 0,9% NaCl lausn (P<0,01). Nefslímhúð dýranna sem fengu lípíðlausnina virtist eðlileg en roði var á nefslímhúð þeirra dýra sem fengu viðmiðunarlausnina og sýndi hún merki um bólgu. Meðferð með lípíðlausnunum virtist ekki hafa óæskileg áhrif á dýrin og hafði ekki áhrif á þyngd þeirra. Ályktanir: Niðurstöðurnar sýna að meðferð með lausnum sem inni- halda mónókaprín og lárínsýru valda marktækri lækkun á veiru títer í nefslímhúð rotta sem sýktar hafa verið með RSV. Meðferð með lípíðum gæti því verið fyrirbyggjandi þar sem að með því að lækka RSV veiru títer í nefslímhúð mætti draga úr líkum á að veiran berist til lungna og valdi þar alvarlegri sýkingu. Þörf er á ítarlegri rannsóknum til að kanna notkun á lípíðunum gegn RSV. V 18 Augnsýkingar af völdum Listeria monocytogenes í íslenskum kúm Guðbjörg Jónsdóttir1, Signý Bjarnadóttir', Hjalti Viðarsson2, Eggert Gunnarsson1 'Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, 2dýralæknir Búðardal gj@hi.is, sigbj@hi.is Inngangur: Bakterían Listeria monocytogenes (L.monocytogenes) finnst víða í náttúrunni, í fjölda dýrategunda og einnig í fóðri, matvælum og jarðvegi. Bakterían getur valdið sjúkdómnum listeriosis sem lýsir sér meðal annars sem heilahimnubólga, blóðeitrun og fósturlát í mönnum og dýrum. Sýkingar í dýrum tengjast yfirleitt fóðrun með votheyi eða illa verkuðu rúllubaggaheyi. L. monocytogenes getur einnig valdið augnsýkingum í nokkrum dýrategundum og hefur verið einangruð úr sýktum augum hrossa, sauðfjár og nautgripa víða erlendis. Hér verður lýst fyrsta staðfesta tilfellinu af listeríuaugnsýkingu í nautgripum hér á landi. Efniviður og aðferðir: í nóvember 2011 kom upp augnsýking í nautgrip- um á kúabúi á Vesturlandi. Á bænum voru um 60 gripir í lausagöngu, fóðraðir á rúllubaggaheyi. Um 30 gripir sýndu einkenni. Einkennin voru mismikil, allt frá því að rétt væri hægt að merkja að kýrnar pírðu annað augað og upp í stöðugt rennsli úr auga/augum, hvarmabólgu og homhimnubólgu. Sumar kýrnar urðu líklega svo til blindar um tíma. Niðurstöður: Keldum bárust stroksýni úr augum fjögurra gripa. Frá öllum sýnunum ræktaðist nær hreirm vöxtur af L. monocytogenes. Bakterían var einangruð og tegundagreind. Hún reyndist vel næm gegn þeim sýklalyfjum er prófuð voru. Þær kýr sem voru verst haldnar voru meðhöndlaðar með sýklalyfjum. Allar náðu sér á þremur til fjórum vikum. Ályktanir: L. monocytogenes var hér einangruð úr sýktum augum naut- gripa í fyrsta skipti á íslandi. Oftast eru dýr meðhöndluð strax og sýk- ingar verður vart en ekki tekin sýni til að kanna orsök sýkingarinnar. Af faraldsfræðilegum ástæðum þyrfti að gera það oftar þar sem Listeria er sem kunnugt er súnu baktería og getur verið alvarlegur sjúkdómsvaldur í dýrum og mönnum. Því er mikilvægt að geta gripið til viðeigandi ráð- stafana og meðhöndlunar þar sem það á við. V 19 Viðbrögð við jákvæðum blóðræktunum á Landspítala frá janúar til ágúst 2010 Katrín Hjaltadóttir', Helga Erlendsdóttir1-, Hjördís Harðardóttir2, Már Kristjánssonu, Sigurður Guðmundsson1’3'1 'Læknadeild HÍ, ^sýklafræðideild og 3smitsjúkdómadeild Landspítala, 4heilbrigðisvísindasviði HÍ katrinhjalta@gmail.com Inngangur: Árlega greinast um 1.000 einstaklingar með jákvæðar blóð- ræktanir á Landspítala. Rannsóknir sýna að því fyrr sem sýklalyf eru gefin þessum einstaklingum, þeim mun betri eru horfurnar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hversu langur tími líður frá því fyrstu upplýsingar um jákvæða blóðræktun liggur fyrir, þar til sýklalyfja- meðferð hefst. Einnig, hversu margir voru þegar komnir á meðferð, hvaða meðferð og hversu oft upplýsingar sýklafræðideildar leiddu til breytinga á meðferð og hver afdrif sjúklinga urðu. Efniviður og aðferðir: Allar jákvæðar blóðræktanir frá janúar til og með ágúst 2010 voru rannsakaðar. Gögn fengust úr Glims (tölvukerfi sýklafræðideildar), Therapy (lyfjakerfi Landspítala), lyfjablöðum frá Barnaspítala Hringsins og Sögu (sjúkraskráningarkerfi Landspítala). Niðurstöður: Alls greindust 627 einstaklingar með jákvæðar blóðrækt- anir á tímabilinu, þar af voru 36,8% álitin mengun. 97% fengu sýklalyf og var ceftríaxón oftast fyrsta val. Tími frá sýnatöku að fyrstu lyfjagjöf var að meðaltali 7,5 klst. Meðferð var breytt í 66% tilvika, að meðaltali tæpum sólarhring eftir tilkynningu um jákvæða ræktun. í 30% tilvika var haft samráð við smitsjúkdómalækni. Alls létust 6% einstaklinganna innan 30 daga frá sýnatöku. Ályktanir: Flestir sjúklingamir fengu sýklalyf og fyrsta meðferð var oft- ast breiðvirkt sýklalyf, sem passar við ráðleggingar um empiríska sýkla- lyfjagjöf. Stytta mætti tímann sem líður frá sýnatöku til sýklalyfjagjafar og þar með bæta horfur sjúklinga. Hluti sjúklinga fær sýklalyf á bráða- móttöku en gögn þaðan lágu ekki fyrir við vinnslu rannsóknarinnar. Rannsókninni er ekki lokið, því enn vantar gögn frá bráðamóttöku um sýklalyfjagjafir. Óskandi er að niðurstöðumar hjálpi til við að sjá hvar í ferlinu má gera betur og auka eftirlit með þessum sjúklingahópi. V 20 Áhrif utanfrumustoðefnis úr þorski á æðamyndun in vitro, ex vivo og in ovo Guðný Ella Thorlacius, Skúli Magnússon, Baldur Tumi Baldursson, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, Pétur Henry Petersen Rannsóknarstofa í taugalíffræði Lífvísindasetur HÍ skm2@hi.is Inngangur: Notkun utanfrumuefnis úr spendýravef til ígræðslu í sár sem gróa illa verður sífellt algengari en sambærilegt efni úr fiskum 74 LÆKNAblaðið 2013/99
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.