Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Side 8

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Side 8
Tímarit Máls og menningar þeim, sem eiga um sárt að binda vegna pólitískra glæpaverka, heldur blátt áfram áróður gegn þeim málstað, sem þeir hata. Það hafa verið skrifaðar margar bækur og kynstrin öll af lesmáli um hreinsanirnar í Sovétríkjunum og það sem gerðist þar á hinu svokallaða Stalíntímabili á fjórða áratugnum. En það hefur verið furðu fátt um mál- efnalegar og hlutlægar umræður og vandaða sögulega rannsókn á þessu tímabili. Jafnvel í vönduðustu ritunum skortir mjög á öruggar heimildir. Valdamenn Sovétríkjanna eiga mikla sök á þessari hulu, sem er engum til gagns nema andstæðingum sósíalismans. En langmest af þessum skrifum er áróður, órökstuddar fullyrðingar og getgátur gripnar meira eða minna úr lausu lofti. Fyrir mér eru þessir hlutir allt of mikið alvörumál, til þess að ég vilji taka þátt í slíkum leik. Ég neita blátt áfram að fella dóma, sem ekki hyggjast á neinni öruggri þekkingu heldur fullyrðingum, getgátum eða dylgj- um. Ég hef reynt að hafa það fyrir reglu að rannsaka fyrst staðreyndirnar og reyna að komast að öruggri niðurstöðu og leggja síðan dóm á málin, en ekki fyrr. í þessu sambandi þykir mér rétt að geta þess, að ég skrifaði grein um þessi mál í tímaritið Rétt 1957, sem ég kallaði „Gelgjuskeið nýrra þjóð- félagshátta.“ Eitt er þó víst. Eftir að andbyltingarmenn voru gersigraðir í hinu langa horgarastríði og stríði gegn innrásarher fjórtán ríkja og höfðu verið sviptir pólitískum réttindum, áttu þeir ekki völ á öðrum baráttuvettvangi en kommúnistaflokknum sjálfum og stofnunum ríkisins. Það liggur í hlutarins eðli, að þetta hagnýttu þeir sér eftir föngum og án efa í samvinnu við erlend öfl. Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga, ef menn vilja reyna að gera sér mynd af ástandinu á þessum árum. Kommúnistaflokkurinn vinnur kosningasigur 1937 og Sósíalistaflokkurinn stórsigur 1942. Hverjar voru ástœður fyrir þessu? Hefði við breyttar aðstœð- ur getað orðið framliald á þessu? Sigur Kommúnistaflokksins 1937 var árangur af baráttu hans og starfi í sjö ár. Hann stóð þá í hroddi fylkingar fyrir hörðustu stéttabaráttu, sem háð hefur verið hér á landi oftast nær í fullri andstöðu við Alþýðuflokkinn og forustumenn Alþýðusambandsins, sem oft tóku sér stöðu með andstæð- ingunum á móti okkur. Það yrði mikil saga, ef ég færi að rekja alla þessa haráttu, en henni er hezt lýst í bókinni Vor í verum eftir Jón Rafnsson. Það nægir að minna á nokkra helztu atburðina. Þúsundir manna gengu atvinnu- lausir og heimili þeirra sultu oft heilu hungri. Kommúnistaflokkurinn stóð 214
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.