Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Page 11

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Page 11
Tvö viðtöl um íslenzka stjórnmálasögu 2. UTANRÍKISMÁL 1940-1950 Hvaða hugmyndir gerðir þú þér í stríðslok um þróun heimsmála? Það er erfitt að gera grein fyrir því í stuttu máli, enda farið að firnast yfir hvernig maður hugsaði þá. Endurminningar verður maður að taka með miklum fyrirvara, ekki eingöngu vegna þess að minni manna er brigðult, heldur hka vegna þess að maður sér atburðina í öðru Ijósi en þegar þeir gerðust. Rétt í lok styrjaldarinnar gerði ég mér nokkrar vonir um, að sigurinn yfir fasismanum mundi skapa skilyrði fyrir sósíalískri þróun í Evrópu í miklu ríkari mæli, en raun varð á. En það stóð ekki lengi. Kalda stríðið hófst fljótlega og batt endi á þær vonir. Það var bersýnilegt, að Bandaríkin voru staðráðin í að koma í veg fyrir sósíalíska umbyltingu í Frakklandi og Ítalíu með öllum ráðum, efnahagslegum og hernaðarlegum, og nýja styrj aldarbliku dró á loft. Batzt þú miklar vonir við Sameinuðu þjóðirnar? Þær voru mjög takmarkaðar, m. a. í Ijósi reynslunnar af Þjóðabandalaginu. Er það rétt, að íslenzkir sósíalistar hafi viljað segja möndulveldunum stríð á hendur 1945 til þess að landið gæti orðið eitt af stofnríkjum Sameinuðu þjóðanna? Það er hægt að fullyrða allan fj árann um það sem gerist á lokuðum fund- um, þar sem ekki eru til neinar skráðar heimildir. En það er skemmst frá að segja, að þetta er algerlega tilhæfulaust. Það voru allir sammála um, að það væri alger fjarstæða að vopnlaus dvergþjóð segði stórveldi stríð á hend- ur, og þess vegna bentum við á, að þetta skilyrði væri alger firra, að því er til íslands tæki, dæmigerð skrifstofuframleiðsla eins og tekin út úr tölvu. Hins vegar bentum við á, að ísland hefði dregizt inn í styrj aldarátökin, hvort sem mönnum líkaði betur eða verr, og lagt sitt af mörkum sem vopnlaus þjóð. Þess vegna töldu margir, að landið ætti fullan rétt á að verða stofnaðili að Sameinuðu þjóðunum. Einhver okkar manna hefur líklega látið það álit sitt í ljós, að þetta sjónarmið ætti að koma fram í svari ríkisstjórnarinnar. Það var allt og sumt. Þetta mun hafa verið mýflugan, sem úlfaldinn var gerður úr. Hvenœr fór mismunandi afstaða til austurs og vesturs að segja til sín í íslenzkum stjórnmálum eftir lok heimsstyrjaldarinnar? 217
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.