Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Page 24

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Page 24
Tímarit Máls og menningar á malbikaðri götunni, þar sem Ijósspilið kastaðist upp á móti svörtum himn- inum, eins og bergmál Ijóss, líkt og skínandi bolti, á milli tveggja svartra veggja í tóminu, líkt og trylltur elddans hins ævarandi ekkerts, og sjón- punktur augna minna, hverfðra og undarlega óðra inni í tímaleysi augna- tóftanna, festist við glös, sem mennirnir, líkt og tilgangslausir skuggar, héldu á milli fálmandi fingra, sjúkra af sígarettum og þrá eftir fölbleiku brjósti liinnar eitruðu konu“, þá veitti ég því athygli, að allir héldu á glösunum sínum, allir, nema ég, sem sat tómhentur. Ég sprengdi spurningu, og mér var sagt, að það nýjasta væri að fá sér fullt glas, áður en barinn lokaði, og halda á glasinu út með sér, földu undir jakkanum. Stúlkunni fannst þetta vera fyndið - og rétt er að geta þess, að yfirleitt finnst þessum stúlkum allt vera sniðugt, og þær hlæja, eins og einhver fálmaraútbúnaður kitli þær í heilann og eggjastokkana - og hún sagði upp úr blautu: Ó, ég elska drykkjuséní! Stúlkur af þessari tegund dútla við að þýða Játningar Agústínusar, og spyrji einhver, hver er Ágústínus, þá kitla fálmararnir þær, svo að við ligg- ur að maður lendi í margföldunarvélinni, því að spurningin gerði þær hrjál- aðar, og það að vera heimskur er metfyndni „og eitthvað svo satt og dásam- legt“. Síðan vitna þær í Simone de Boulevard og Serðir, og segja, að allt sé tilvist án tilkalls. (Seinna komst Siggi í vélina, þau margfölduðu, og hann fór í sögu, sem aðalfag, til Ósló.) Hvers vegna gerist flest að manni forspurðum og öðruvísi en út var reiknað? Þetta er nú aldeilis forn spurning hjá mannkyninu! Við viljum ekki að listin gefi nein ákveðin svör. Lífið svarar, listin ekki! „Svo kemur bara einhver, á meðan maður er að þvo barnaföt, og þýðir Ágústínus.“ Þannig endahnúta bindur lífið. Allt felur í sér andstæðu sína: þegar haftið slitnar, þá binzt konan. Löngu seinna rakst ég á hana á götu, og hún sagðist vera að prjóna peysu og tátyllur á manninn sinn, þá nýkomin frá skandinav- iska hannyrðaskaganum. Þau hjónin voru að leita sér að þægilegri íbúð, og ég sagði henni brandara úr húsi í vesturbænum. Hún horfði á mig kyrr- um augum, sem komizt höfðu í gegnum háskóla. Hún ilmaði af prófum. Og það var löngu liðin tíð, þegar hún sat með slegið hár niðri á hafnar- bakka við það að gera kolkrítarteikningu af athafnalífinu, langaði til að læra grafík í stað latínu, talaði um Brecht, gekk með mynd af Modigliani á milli brjóstanna, og vildi komast í leikgrúppu, leika fyrir verkamenn í kaffi- stofum og vera umfram allt eðlileg og blátt áfram. Hún ilmaði öll af prófum eiginmannsins og gekk hægum, skandinaviskum skrefum heim til sín með 230
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.