Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Side 44
Tímarit Máls og menningar
Ég bar upp erindi mitt: spurði hvort hann væri ekki kunnáttumaðurinn
sem gæti gert mig ríkan. Hann kvað svo vera.
Mér var veittur beini, kjarngóður en ekki ríkmannlegur, og spurður
tíðinda úr Jóhannesarborg.
- Drulla, sagði ég: Fen. Forarvilpa.
Bóndi kinkaði kolli.
Svo var búið um flet handa mér. Ég sofnaði fljótt, enda þreyttur, og svaf
draumlaust.
í dögun ræsti bóndi mig með því að grípa snöggt og þéttingsfast um
ökla minn, og fjölskyldan leiddi mig þögul niðurað fljótinu. Þar hagaði
svo til að krókur var á og lón innúr, tiltölulega lygnt með hægri hringiðu
og holbökkum
Þarna kyntu þau eld og settu yfir stóran pott fullan af vatni. Útí
pottinn dembdi svo bóndi einhverjum kynjajurtum sem ég bar ekki kennsl
á, gerði teikn og muldraði. Þessi kokkteill var látinn malla og stigu upp
af honum rammar gufur sem fylltu vit mín og gerðu mig ringlaðan.
Bóndi rétti mér þá fagurskeftan hníf og sagði mér að leggjast frammá
bakkann, liggja grafkyrr og rýna í iðuna, þángaðtil ég færi að sjá fólk
sem ég þekkti. Þegar ég sæi þá persónu sem mér þætti vænst um af öllum
sem ég hefði kynnst ætti ég að stinga hana í andlitið með hnífnum. Þá
brygðist það ekki að ég yrði vellauðugur.
Ég lagðist á bakkann með kutann. Bóndi tók pottinn og skvetti innihaldinu
í vatnið. Fjölskyldan öll stóð yfir mér og kyrjaði drúngalega stemmu.
Fyrst sá ég hara flökt og grugg. Síðan fór ég að sjá kvikindi, slöngur
og hlébarða, dreka og ólma hesta. Allt í einu var vatnið krökkt af fólki,
alls konar fólki, hópum og hersíngum. Svo fór ég að greina andlit. Suma
þekkti ég: gamlar frænkur, götustráka sem ég hafði leikið við barn, sætar
stelpur í röðum.
Svo kom mamma. Hún tók sig út úr grugginu og kom nær og nær. Hún
brosti og horfði á mig mildum vitrum augum.
Kaldur sviti spratt út um mig allan. Ég þeytti hnífnum frá mér í átt frá
fljótinu. Svo staulaðist ég á fætur, þakkaði fyrir mig og lagði af stað beint
heimleiðis. Bóndi horfði á eftir mér með kýmni í augum.
Síðan hefur mig ekki langað til að verða ríkur.
250