Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Side 114

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Side 114
Tímarit Máls og menningar sem nú lesum, af því hvernig höfuðstaður- inn kom sveitamanni úr fásinni fyrir augu fyrir heilli öld. Eftir að Friðrik Guðmundsson hafði gengið fram fyrir skjöldu í félags- og versl- unarmálabaráttu Norður-Þingeyinga og haft forgöngu um kaupfélag í héraði, en beðið lægra Idut, tekur hann sig upp blá- fátækur, 44 ára gamall árið 1905, og hverf- ur til Vesturheims. Upphaflega hugðist hann, eins og sennilega svo rnargir á þeim árum, aðeins dveljast þar nokkur ár, rétta úr kútnum en halda síðan heim, og í liugskoti sínu glingraði hann við þann draum að taka aftur virkan þátt í félags- og þjóðmálum hér heima og stefna að þingmennsku. En um hann fór sem fleiri, hann átti ekki afturkvæmt nema stutta ferð. Með vesturför hans verða eðlileg skil í ævisögunni, og ekki er lýsing hans á ferð- um og aðkomu þar vestra síður merkileg en ýmsar frásagnir hans af íslensku þjóð- lífi á ættjörðinni. Það var engin tilviljun að vestra mætti Friðrik allmörgum kunningjum og skyld- menni, enda munu vesturferðir hafa orðið einna niestar af Islandi einmitt frá norð- austurhorni landsins. Kanada gengur fram af síðum bókarinnar sem land hinna miklu tækifæra, harðrar baráttu, mikillar áhættu og ríkulegra launa þegar því var að skipta. Það var um það að ræða að duga af sjálf- um sér eða drepast ella. Friðrik sigraði hverja raun, þótt hann seildist ekki eftir auðlegð, og eftir skamma dvöl í þéttbýli flytst hann út í auðnina og reisir sér bú. Þar er íslendingurinn aftur orðinn landnáms- maður, með öllu sem við á, enda þótt breyt- ingarnar gengju öllu hraðar yfir en verið hafði þúsund ára fyrr hér heima. Innan skamms er hann orðinn forystumaður í fé- lagsmálum og dregst inn í deilur íslenska samfélagsins í Vesturheimi. Síst er hægt að halda því fram að hann stæri sig í endurminningum sínum eða dragi hlut sinn fram, frekar æUar lesandinn hið gagn- stæða. Hann virðist hafa vaxið og lært svo lengi sem lifði, hafa tekið óhræddur þá afstöðu sem vit hans og drengskapur buðu honum, hvort sem við rama reip var að draga eða ekki. Lýsingar Friðriks Guðmundssonar á samfélagi Islendinga í Vesturheimi og deil- um þeirra innbyrðis eru mjög fróðlegar. Þarna var nýtt samfélag að rísa af svo að segja engu; menn voru að ganga út úr bjálkakofum og húshjöllum til að móta og mynda sér þjóðfélag af grunni í nýju landi við nýstárlegar aðstæður, og þetta gerðist af hreinni og einskærri þörf og án þess að hangið væri í aðfluttum fyrirmynd- um eða arfleifð. Fyrir þessar sakir er upp- haf samfélags, þjóðfélagsskipunar og stjómarstofnana í Vesturheimi, allt frá 17. og 18. öld, einhver stórmerkasta tilraun í hinni skráðu sögu mannkynsins. Séu þess- ir atburðir meðal Vestur-íslendinga bomir saman við það sem gerðist áður sunnar í álfunni, þar sem Bandaríkin urðu síðar til, verða hin sameiginlegu einkenni mjög skýr. Frumbýlingar án skipulags, án stofn- ana, samtaka eða hefða, vakna upp og öldur samtaka beinlínis flæða yfir byggð- irnar; í Bandaríkjunum er þetta kallað The Great Awakening. Það er mikiB mis- skilningur að telja þessa vakningu trúar- lega, jafnvel ofstækishreyfingu sértrúar- safnaða, og síðan ekki söguna meir. Hún er í eðli sínu skýrt dæmi þess að skipulegt samfélag, siðmenning hverju nafni sem nefnist, verður ekki skilin að frá trúar- brögðum, heldur helgast af þeim og er hvort hluti annars, eða eins og þar stend- ur: Lögmál Drottins er skráð í hvers manns hjarta. I byggðum Vestur-fslend- inga, eins og sunnar í álfunni, er hvatinn til samtaka og félaga trúarleg vakning, en upp af henni og samkvæmt skilmálum 320
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.