Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 97

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 97
Tvö rit um bókmenntasamanburð Svo á klassiskum tíma sem síðar á öldum samsömuðu íslendíngar í ótal bókum aðsótt efni innlendum hugsunarhætti og stíl; í þessum skóla birtist dýpt hugsunarinnar í tærum einfaldleika. . . . Utlend yrkisefni voru stundum svo rækilega ísienskuð til forna, að ekki hefur aðeins þurft lærdóm og greind í meira en meðallagi hjá síðari mönnum, heldur blátt áfram siðferðisþrek, að leggja til atlögu við rétttrúaða bókmentasögu í mikilvægum greinum og sýna frammá að fleira en sýndist væri í bókum þessum lán úr þeim alþjóðabánka hugmyndanna sem stóð í Evrópu á miðöldum. 8 Um stefnu hinnar rétttrúuðu-bókmenntasögu má nota orð Finns Jóns- sonar: Jeg neita því líka, að íslenskur skáldskapur og sögutilbúníngur standi í nokkuru sambandi við fræði annara Evrópuþjóða. Þar voru engar beinar fyrirmyndir.9 Eins og sjá má á þessum ummælum gerðu sumir einmitt ráð fyrir slíku sambandi þegar á dögum Finns Jónssonar. I íslenskum sagnarannsóknum hefur hins vegar ekki mikið verið fjallað um erlend áhrif á sögurnar, þótt leitað hafi verið heimilda höfundanna bæði í samtíð og sögu, nema af einstaka fræðimönnum. Flafa Bjarni Einarsson og Hermann Pálsson verið einna mikilvirkastir í þeim efnum. I ritum sínum um Hrafnkels sögu, ýmsum greinum og fyrirlestrum hefur Hermann fjallað um siðfræði og kristileg viðhorf í fornsögunum og rakið til latínurita og þýddra rita. I kverinu, Úr hugmyndaheimi Hrafnkels sögu og Grettlu (Studia Is- landica, 39, Reykjavík 1981), eru tvær ritgerðir sem birta rannsóknir Hermanns á eðli og uppruna íslenskra fornrita. Þær nefnast Hrafnkels saga og klassískar bókmenntir og Grafizt fyrir um Grettlu rætur. Er þar fjallað um nokkur atriði í sögunum sem Hermann telur bera vitni um útlendan lærdóm höfunda, einkum setningar og hugmyndir um mannlega hegðun. Ætlar Hermann þessum rannsóknum að vera drög að skýringum við sögurnar tvær og um leið að bregða nokkru ljósi yfir andleg viðhorf íslenskra menntamanna fyrr á öldum. Hermann Pálsson rýfur með rannsóknum þessum, eins og aðrir sem leita erlendra áhrifa á fornsögurnar, þá þjóðlegu einangrun sem fornsagnafræðin eru gjarnan hneppt í og er það vel. Hann vill einnig komast hjá öðrum ógöngum sem hann telur ýmsa fornsagnafræðinga vera í. Hann segir: - fulltrúum beggja [þ. e. bókfestu- og sagnfestukenninga um uppruna íslendingasagna] þykir sjálfsagt að ritskýrandi miði við 215
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.