Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Side 108

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Side 108
Tímarit Máls og menningar Hann kemur heim, bugaður maður, og dag einn finnur stúlkan hann hengdan í hlöðunni. Hún leitar burt í annað land, reynir að flýja vofu föður síns. Drengur- inn í III horfir upp á ömmu sína deyja. Hann er karlmaður, má ekki gráta þótt hann sé barn í hörðum heimi. Hann hleypur burt frá spítalanum eins og fæt- urnir geta borið hann, flýr. I IV og V er það ofbeldi einræðisins sem bannar mál- og samtakafrelsi. Stúlkan í IV óttast kylfur og barsmíð og hleypur, faðirinn í V óttast að afskipti sonarins af ólög- legum samtökum kalli ógæfu yfir fjöl- skylduna. Það verður til þess að hann rifjar upp sín eigin afskipti af leynisam- tökum fyrir löngu. Óttans vegna valdi hann þá að vera þægur, hlutlaus og þögull. I VI er fjallað um mismunandi ofbeldi karla gegn konum. Lítil stúlka gengur í hús með ömmu sinni, sem vinnur fyrir þeim með því að aðstoða við heimilis- störf. Litla stúlkan sér og heyrir. I einu húsinu er kona sem eiginmaðurinn slær ef hann stendur hana að þvi að fá sér sígarettu. Konan flýr frá raunveruleikan- um og verður geðveik. I öðru húsi er kona sem er gift efnuðum umsvifa- manni. Hún sjálf er ekkert. Óhamingju sína flýr hún með því að drekka, og þegar það dugir ekki lengur reynir hún að fremja sjálfsmorð. I VII segir frá ungum námsmanni frá Túnis. Ríkið veitir honum styrk til að stunda læknis- nám í París, en hann verður í staðinn að þjóna sem herlæknir um árabil að námi loknu. Þegar almennu læknisfræðinámi er lokið sækir hann um frest frá her- læknisþjónustunni til að ljúka sérnámi. Honum er synjað og hann flýr land. Hann sker upp fólk á þekktu sjúkrahúsi í Sviss en fær ekki að snúa heim, hann er liðhlaupi og yrði dæmdur sem slíkur. I VIII er það nánast ofbeldi siða og hefðar sem bitnar á einstæðri konu sem á von á barni. Hún velur að tilnefna engan föður að barninu en kenna það við sig þess í stað. IIX segir frá örlögum fólks sem er ungt og fullt fagurra áforma við nám í Sviss. Það hittist oft á heimili Rakelar sem er Gyðingur frá Póllandi. Vladek og Pálína eru frá Brasilíu, sögumaðurinn, ung stúlka, er frá hinu hættulausa heimshorni í norðri. Pálína fellur í skothríð lögreglu skömmu eftir heim- komu, Vladek kemst seinna til Alsír bæklaður eftir pyntingar, en hann fær hvergi landvist í Evrópu. Ofbeldið bug- ar Rakel, hún flýr, sviptir sig lífi. Á undanfarandi hátt má í stuttu máli greina tengistef sagnanna níu í Af mannavöldum. Þetta eru sögur um fólk í hörðum heimi, ofbeldi og ótti af mannavöldum einkenna hann. I sex sagnanna eru það her og lögregla sem ofbeldinu beita.En það eru fleiri öfl sem valda ótta, dauðinn sem engum þyrmir, siðir og venjur og karlmennska. Ofbeld- ið bitnar á þeim sem bestan hafa viljann og minnst valdið, þeir sem verða fyrir barðinu á því í sögunum í Af manna- völdum eru konur og börn ásamt menntafólki. Þessu fólki mætir lesand- inn á flótta. Börn, konur, stúdentar hlaupa eins og fætur toga eða flýja land. Kona þrífur í hönd dóttur sinnar og flýr undan hermanni, stúdentar hlaupa und- an lögreglu, drengurinn hleypur eins og fætur toga frá spítalanum þar sem amma hans er að deyja. Ung kona flýr fortíð lands síns, Gyðingar í Póllandi flýja, liðhlaupinn frá Túnis flýr land. Allt flýr þetta fólk til að forða lífinu. Enn sorglegri eru þó örlög hinna sem flýja frá lífinu. Þýski faðirinn fremur sjálfsmorð, flýr minningar sínar, Rakel, pólski Gyðingurinn sem flýði í heims- 226
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.