Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Page 111
ÁN ÞESS AÐ VITA HVERS VEGNA Svartur hestur í myrkrinu" er sjötta ljóðabók Nínu Bjarkar Árnadóttur (en ekki fimmta eins og segir á bókarkápu). Áður eru útkomnar Ung Ijób (1965), Undarlegt er að spyrja mennina (1968), Börnin í garðinum (1971), Fyrir böm og fullorðna (1975) og Min vegna og þín (1977). Ásamt ljóðagerðinni hefur Nína fengist töluvert við leikritun, og er það eitt helsta einkenni á verkum hennar, m. a. því sem hér til umræðu, hve vel henni tekst að blanda saman ljóðrænum og leikrænum texta. Svartur hestur í myrkrinu skiptist í tvo hluta, sem bera nöfnin „Með kórónu úr skýi“ (eftir samnefndu kvæði til Stef- áns Harðar) og „Fugl óttans". Hefur fyrri hlutinn að geyma 15 sjálfstæð ljóð, sem flest spretta úr minningum og dag- legu lífi, en síðari hlutinn 21 ljóð, sem jafnframt því að geta staðið sjálfstætt, mynda eina heild, þar sem þau fjalla um ákveðinn hóp kvenna á geðdeild. I fyrri hlutanum er Ijóðmælandi yfirleitt ljóð- rænn í þeim hefðbundna skilningi að hann er nálægur og samur efninu sem hann tjáir sig um og rennur á vissan hátt saman við það. I síðari hlutanum má hins vegar finna vissa fjarlægð milli ljóðmælanda og ljóðs. I mörgum ljóðanna eru persónur látnar lýsa sjálf- um sér í beinni orðræðu, og það sem einkennir þessar persónur er að þær skortir yfirsýn og skilningur þeirra er annar en sá sem kemur fram í samhengi textans. Þessi leikræna beiting ljóðmæl- anda, sem einnig bregður fyrir í fyrri hlutanum, er mjög markviss og vel °Nína Björk Árnadóttir, Svartur hestur í myrkrinu. Mál og menning. Reykjavík 1982. 67 bls. Umsagnir um bakur heppnuð. Með henni fæst í senn innsýn í hugarástand persónunnar og þær ytri aðstæður hennar sem hún er að reyna að túlka, eins konar tveggja heima sýn. Það er því erfitt að vera sammála þeim ritdómara sem í umsögn um bókina seg- ist satt að segja halda, „að Nína ætti að fjalla um þessi mál á öðru formi en í ljóðum" (Sveinbjörn Baldvinsson í Morgunblaðinu 12. desember 1982). Þessi frásagnarháttur er auk þess í beinu samræmi við meginviðfangsefni bókar- innar sem er togstreita mannsins milli innri og ytri veruleika, firring hans frá umhverfi sínu og eigin lífi og óttinn sem af þessu stafar. Svarti hesturinn Svarti hesturinn sem nafn bókarinnar vísar til kemur fyrir í fimm ljóðum í bókinni, einu í fyrri hlutanum sem ber sama nafn og bókin „Svartur hestur í myrkrinu", og fjórum í síðari hlutanum sem öll bera heitið „Hún“. Þetta tengir hlutana saman, auk þess sem ljóðmæl- andinn „ég“ í fyrri hlutanum verður á vissan hátt sá sami og persónan „hún“ í þeim síðari. Svarti hesturinn hefur augljósa táknræna merkingu, en ekki að sama skapi markvissa, og eru ljóðin um hann veikasti þáttur þessarar bókar. Má vera að athyglisverðar ástæður liggi til þess. „Svarti hesturinn er tákn fyrir landið mitt“ er haft eftir Nínu í viðtali um bókina í Morgunblaðinu 11. desember 1982, og ennfremur segir hún að bókin tengist í honum. Þessi lesháttur höfund- ar á eigin verki gengur þó engan veginn upp, hvorki í einstökum ljóðum né bókinni í heild. Ef tákn á að vera gott verður það jafnframt að verka í sjálfu ljóðinu sem mynd, ekki bara að vera tákn. Andstætt flestum öðrum ljóðum 341
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.