Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Blaðsíða 66
Tímarit Máls og menningar
Feluleikur
En úlfurinn þá? Hvað verður um hann? Hann sýnist vera þarna til að
vísa veginn og skipuleggja blóðbaðið. Hann getur bersýnilega gle^pt
alla, ömmuna jafnt sem litlu stúlkuna (þ. e. a. s. legið með þeim) Þegar
hann hittir þá litlu og kemst að því að hún er á leið til ömmu sinnar
hlakkar í honum, segir í sumum gerðum, við tilhugsunina að geta gleypt
þær báðar. Hann er ólíkur konunum að því leyti að ekki er ljóst hvaða
kynslóð hann tilheyrir, en í raun er tilvist hans forsenda örlaga þeirra.
Boðskapur sögunnar til stúlknanna er skýr og greinilegur. Þær verða
gleyptar af karlmanninum, sem er alltaf einn og samur (er ekki ævinlega
talað um úlfmw?) og þegar hefur étið mæður þeirra og ömmur (hráar
náttúrlega, og án þess að taka eftir muninum). Að stúlkan sem nýbúin er
að neyta æxlunarfæra móður sinnar eða ömmu fær þarna sína fyrstu
kynlífsreynslu — svona í framhjáhlaupi — verður ljóst meðan hún er að
tína af sér spjarirnar áður en hún gengur í eina sæng með úlfinum, en því
er rækilega lýst í einni gerð sögunnar sem ættuð er frá Nivernais:
— Klæddu þig úr, barnið mitt, segir varúlfurinn, og leggstu hérna
hjá mér. — Hvar á ég að láta svuntuna mína? — Fleygðu henni í
eldinn, þú þarft ekki á henni að halda framar. Og við hverja flík,
lífstykkið, kjólinn, undirpilsið og sokkana spurði hún hvað hún
ætti að gera við þetta. Og úlfurinn svaraði: Fleygðu því í eldinn,
barnið mitt, þú þarft ekki á því að halda framar.
Sama atriði er afgreitt í styttra máli og á táknrænan hátt í einni gerð frá
Velay þar sem plöggin eru aðeins tvö og hún losar sig við þau meðan á
máltíðinni stendur. Þegar kötturinn hvísiar að stúlkunni að hún sé að
borða kjöt móður sinnar segir úlfurinn: „Fleygðu í hann tréskónum."
Næst er það fugl sem kvakar að hún sé að drekka blóð móður sinnar og
þá kemur úlfurinn aftur til skjalanna: „Fleygðu í hann hettunni þinni,
fleygðu í hann hettunni þinni.“
Þegar hún þannig er laus við mikilvægustu flíkurnar fer hún og leggst
hjá úlfinum. Og nú er spurningin hver hann er, hvort hann er bara
einhver karlmaður, í sögu sem aðallega sýnist fjalla um samskipti
kvenna? Þegar upp í rúmið er komið hefjast nefnilega samræður sem
flækja málið dálítið.
Spurningar stúlkunnar og undrunarupphrópanir koma næstum allar
296