Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 74

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 74
Tímarit Máls og menningar og frostrósirnar sem brúðurin dáðist að í bernsku, „sökkti sér niður í hvítar myndirnar sem huldu gervalla rúðuna svo að ekki sá út í heiminn fyrir fegurð.“ (11) Enda reynist sögnin vera í boðhætti, tákna skipun, þvingun, innilokun, og fegurðin í sögunni breytist í óhugnað sem samt er miðlað í sama jafnvægistóninum til lesandans. Kæfandi ryk „I draumi manns“ fjallar einnig um brúði sem ætlast er til að gangi í það hlutverk sem karlmenn hafa skapað konum í aldanna rás. Henni verður ljóst að ætlast er til að hún komi allslaus og innantóm til þessarar sambúðar, því hennar bíður fullinnréttuð veröld í draumum brúðgumans. Lok sögunnar benda til að hún eigi engrar undankomu auðið: „Hún var læst inni í draumheimi hans og hann einn gat hleypt henni út.“ (51) Saga þessi kallast að vissu marki á við „Gerviblóm“ í Tólf konum. Þeirri sögu lýkur þannig: „Líklega skipti engu máli, hvort hún færi til hans eða ekki. Því að kannske var hún ekki lengur til nema í athöfn og orðum þessa manns; eða einhvers staðar á bak við þau. Eða ósögð.“ Brúðguminn hefur þegið í arf hinar ýmsu goðsagnir um hlutverk kvenna og í draumi hans upplifir konan sig í hinum ýmsu tilbrigðum þeirrar kynveru sem er körlum eftirlát og þjónustusöm, en þó sveipuð rómantík; hún er japönsk geisha, austurlensk ambátt og sjálf Júlía. Hér sem í öðrum furðusögum hlutgerir Svava afstrakt eiginleika til að sýna fram á hlutverk þeirra. Hún brýtur skilveggi vitundarlífs og ytri veruleika, og aðgreinir þetta tvennt ekki heldur með frásagnarhættinum. Það sem veldur hinum huglægu hamskiptum brúðarinnar er hversu óviðbúin hún er þeirri rótgrónu hefð kvenhlutverksins sem fylgir hjónabandinu. Svava er hér að gera úttekt á versta óvini kvenna, hefðinni, sem hvílir eins og mara á þeim og afmarkar lífsbraut þeirra. Hefðin birtist í sögunni í formi ryks sem móðirin er sem ákafast að þurrka af í svefnherbergi brúðarinnar. „Rykið virtist leita inn fremur en út og það fyllti herbergið og öll hennar skilningar- vit uns henni fannst hún vera að kafna.“ (43) Að lokum tengir hún rykið hinum fornu kvenhlutverkum sem hún gengur nauðug í: „Það þýðir ekkert að vera að þurrka af, sagði hún við móður sína. Þetta er aftan úr öldum.“ (47) Svava hefur áður fjallað myndrænt um það hvernig konur ganga undir ok hefðarinnar, ég minni t.d. á brúðarslörið í „Krabbadýr, brúðkaup, andlát“. Viðbrögð brúðarinnar við hamskiptunum í „I draumi manns“ eru að æpa uns lögreglan kemur á vettvang og ásaka þá brúðgumann um nauðgun. Hér finnst mér hlaupa misvísun í söguna, ekki síst vegna þess að maður hefur 544 X
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.