Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 40

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 40
Það var kalsaveður með fjúki og séra Gísli var eldrauður á eyrunum. Á vinstri hönd við hann stóð Sveinbjörn kennari og hjá honum þrír berhöfð- aðir menn; þeir sungu sálminn — Allt eins og blómstrið eina — Á grafarbakkanum hinum megin við prestinn stóð Kolfinna Sveinsdóttir ein síns liðs. Baka til við hana, á víð og dreif um klakabrýndar þúfnarúst- imar, stóð svo sjálf líkfylgdin, svört eins og skógur. Sorgin lýsti af hverju andliti og margir voru með grátviprur um munninn. Þannig varð það hlutskipti Antons Karls Henningsens að vera lagður til hinstu hvíldar í berangurslegum kirkjugarði Hólmanesþinga, óralangt frá hinu sæla Sjálandi þar sem áar hans sváfu svefninum langa umkringd- ir snotrum trjálundum og marmaraenglum. Hinsvegarþótti Hólmnesing- um það nokkur bót í máli að hér lá hann við hliðina á konu sinni og dóttur. Þegar búið var að moka ofan í gröfina tíndist fólk burt. En Kolfinna stóð lengi ein eftir; hnípin kona með silfrað hár. Daginn eftir útförina gekk Hannes í apótekinu á fund sýslumanns og afhenti honum bréf. Bréf þetta hafði að geyma erfðaskrá Henningsens apótekara, og samkvæmt henni var Kolfmna Sveinsdóttir réttur erfingi allra eigna hans, fastra og lausra. Þegar bú lyfsalans hafði verið gert upp; skuldir greiddar og eignir seldar — nema hluti af innbúinu — kom í ljós að Henningsen apótekari hafði ekki verið eins stöndugur og menn höfðu haldið, og allt og sumt sem eftir stóð voru réttir og sléttir sex hundruð ríkisdalir. Þessir peningar nægðu þó til þess að Kolfinna gat fest kaup á litlu húsi í þorpinu. Það var kallað Jónshús og stóð í dálitlum hvammi uppi undir Mylluhöfða. Kolfinna lifði mörg ár eftir þetta. Hún var eftirsótt til allra verka, en þótti nokkuð sérsinna og undi sér best út af fyrir sig. Stöku sinnum komu þó til hennar gestir; helst fólk innan úr Dölum. Hún hreiðraði vel um sig í litla húsinu, og í stofunni voru ýmsir munir sem hún hafði fengið eftir Henningsen; til að mynda skrifpúlt hans sem var úr mahóní, taffelúr með glerhjálmi yfir og ruggustóll, sem hann sat oft í og reykti langa pípu. Tvær myndir héngu á veggjunum, önnur af pilti og stúlku í litlum báti á skógartjörn, og hin af pósti á rauðum jakka að opna garðshlið. Þá var fataskápur, einnig úr mahóní, í honum geymdi Kolfinna kjólföt lyfsalans, pípuhatt hans og staf. Sagt var að á laugardögum færi hún með fötin út á snúrur, og stryki þau þar hátt og lágt með litlum bursta. J 38 TMM 1992:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.