Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Blaðsíða 73

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Blaðsíða 73
málið, verður að láta sér lynda að bíða allt kvöldið og stundum langt fram á nótt eftir að sögumanninum þóknist að Ijúka sögu sinni. Ég sagði að söguþjóðin væri afturhalds- söm, að hún nærðist á endurtekningunni og þyldi engar breytingar. Þetta hefur komið skýrt fram í þróun íslenskra bókmennta undanfama þrjá áratugi. A sjöunda áratugn- um og að einhverju leyti þeim áttunda risu rithöfundar eins og Guðbergur Bergsson, Thor Vilhjálmsson, Steinar Sigurjónsson og Einar Guðmundsson upp gegn sögu- hefðinni. Þeir leyfðu sér að semja „sögur“ sem þjóðinni fannst hvorki hnyttnar né skemmtilegar heldur beinlínis kolruglaðar og í þokkabót ógeðslegar. En sá hlær best sem síðast hlær. Undanfarinn áratug hafa sumir vinsælustu rithöfundar þjóðarinnar verið með stórar stefnuyfirlýsingar um að nú mætti aftur fara að segja sögur. Alveg nýverið skrifaði Einar Már Guðmundsson meira að segja langloku í Lesbók Moggans um dogmatisma og bókstafstrúarmenn sem hafi bannað að segja sögur. Ég sá þessi skrif af tilviljun og gat ekki skilið þau öðruvísi en svo að það hafi verið eitthvert samband milli „forsjárhyggjunnar í austri“ og niður- rifsmannanna sem á sínum tíma neituðu að skrifa almennilegar sögur. Þetta er reyndar skoðun sem Mogginn hefur alltaf haldið stíft fram enda er hann „blað allra lands- manna“ og þykist sverð og skjöldur sögu- þjóðarinnar. Og svo koma hinir „ungu karlgagnrýnendur“ þjóðarinnar og skrifa greinar sem heita „Frá formi til frásagnar". Þeir lepja allt upp eftir hinum „ungu karl- rithöfundum" gagnrýnislaust og trúa því sjálfir að „nýr kafli“ sé að hefjast í bók- menntasögu þjóðarinnar. Auðvitað er það söguþjóðin sem hefur sigrað. Hún vill „fá sinn galdur“ aftur, hún vill „sitja áfram og hlusta“. Það eina sem hefur gerst er að rithöfundamir em famir að skrifa fyrir söguþjóðina og þar með mark- aðinn. Það er engin tilviljun að útgáfustjóri stærsta og kannski eina alvöm bókaútgáfu- fyrirtækis landsins skrifaði fagnaðarerindi í TMM ekki alls fyrir löngu undir titlinum „Sagan blífur". Það má skjóta því hér að, til að nefna sögulega hliðstæðu, að krafa rithöfundanna um að mega aftur segja sögur kom upp á svipuðum tíma og „nýja málverkið“ í Vest- ur-Þýskalandi. Ég vil ekki gera lítið úr þeim fersku vindum sem blésu í kringum nýja málverkið. En það leið ekki á löngu þangað til fór að leggja af því fúlan fnyk. Það byggðist eingöngu á tilfmningahita og augnabliksákafa. Það var á móti konsept- list, mínimalisma, formtilraunum og al- þjóðahyggju. Það heimtaði algleymi en ekki yfirvegun og seldist grimmt í eitt til tvö ár. Það er engin tilviljun að Tolli Mortens og Einar Már Guðmundsson skuli nú vera farnir að vinna saman. Hinar þjóðlegu sög- ur Einars og hin þjóðlegu málverk Tolla eru tvær hliðar á sama peningi. Nú gæti einhver skilið orð mín svo að ég En ég vil vara við því við- horfi sem kemur fram í grein Gísla Sigurðssonar, að bók- menntir eigi að vera skemmti- legar og hnyttnar, að þœr eigi að vera með húmor og vel skrifaðar og það sé allt og sumt. L TMM 1992:2 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.