Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Blaðsíða 57

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Blaðsíða 57
— Si, si. Sylvíó Buenarotti. Hann bauð mér upp á ostrur og gæsalifr- arkæfu og hvítvín með ostrunum og rauðvín með kæfunni. Karlamir vom líka ógurlega sætir við mig, þótt þeir litu út eins og gamlir skúrkar. Ég veit líka ekki nema mafían sé á bak við þennan stað sem hann rekur í Flórens. Hann þekkir að minnsta kosti fullt af dularfullum peyjum. En mér var sama um það og þeir máttu vera hver sem var fyrir mér, og við vomm saman í París tvo næstu daga. Svo spurði hann hvort ég vildi ekki keyra með þeim til Ítalíu og auðvitað sagði ég já — Ferrari og hundrað og fimmtíu eftir allri Rivémnni. Hún blístraði lágt. — En hvað sögðu mennimir sem héldu námskeiðið? datt ósjálfrátt upp úr honum, því honum ofbauð þessi skortur á ábyrgðartilfinningu. Hún lyfti brúnum og setti upp fyrirlitningarsvip. — Þeir geta sko farið í rass og rófu. Það kom eitthvert æðisgengið skammabréf á Klapparstíg- inn, hótun um málaferli og allt það, en ég var þá löngu flutt þaðan og þeir vita ekkert hvar ég á heima, finna mig aldrei. — Ég hefði heldur ekki viljað missa af Ítalíu. Svipurinn mildaðist og það kom draumkenndur hljómur í röddina. — Flórens er yndisleg. — Og ertu þá ástfangin af honum, þessum Sylvíó? — Astfangin? Ertu frá þér? Svoleiðis er nú bara bull sem maður trúir á um fermingu. En ég var hrifin af honum fyrir hvað hann var fallegur. Ekki út af peningunum. Hann hafði svo ægilega fallega húð á brjóstinu, maganum, fótunum — alls staðar. En veistu hverju ég var mest hrifin af? Hann var með svo lítið typpi, alveg eins og hann væri tíu ára. Ertu hneykslaður? Ég hata karlmenn sem eru loðnir og grófir. Flestir karlmenn eru svoleiðis. En hann var eins og Amor eða Appolló. Hún beygði sig áfram og hélt silfurmeninu upp að englinum. — Þetta er Appolló. Hann gaf mér hann síðasta daginn sem við vorum í París. Frummyndin er á einhverju safni í Frakldandi. En ég kalla hann samt Sylvíó, skilurðu? Af hverju ertu svona ömurlegur á svipinn? — Ömurlegur? — Æ, ég meinti það ekki, en ég vil að þú sért glaðlegri. Ég reyni þó að vera pínulítið glöð, þótt ég sé það eiginlega alls ekki. Hann þagði og vissi að hún sagði satt. Hann var ömurlegur, það var einmitt rétta orðið. Meðan hún sagði frá hafði vaknað með honum sár vonleysiskennd — ömurleikakennd, sem myrkrið og vissan um að hún mundi bráðum fara gerði nærri óbærilega. Þarna handan við hafið, þama TMM 1992:2 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.