Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 59

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 59
lengi hún hafði verið að stjana þetta við hann, greiða honum, klippa hárið við eyrun, dekkja á honum augabrýnnar og farða hann í kringum augun. Loks tók hún upp flösku með grænum miða, hellti varlega úr henni í lófa sér og löðrungaði hann létt á eyrun og vangana. — Nú kemur af þér fín lykt, sagði hún og bar það líka á hálsinn á honum og hann sveið ofurlítið. — Ég skil flöskuna eftir, því ég vil að þú eigir hana. Lyktin á að minna þig á mig, sagði hún um leið og hún fór að tína hlutina á borðinu niður í tuðruna aftur. Hann horfði á sig í speglinum og sá að hann hafði breyst, augun voru skýrari og baugamir undir þeim horfnir og það stirndi næstum á hárið á honum. Svo var það þessi snarpi, þægilegi ilmur sem fyllti vitin. Hann stóð upp og settist í litla sófann á ný og hún settist líka, en ekki í stólinn, heldur við hliðina á honum. Svo þögðu þau bæði stundarkom. — Þú átt að reyna að vera hamingjusamur, sagði hún. — Af hverju finnurðu þér ekki einhverja? — Einhverja? — Það líst nógum á þig. Þú bara lokar þig svo mikið af. Þú veist að mér leist svo vel á þig — líst vel á þig. Röddin varð að hvísli og hann fann að hún sat alveg þétt uppi við hann. Svo fann hann hvemig hún renndi tveim fingrum inn á milli hnappanna á skyrtunni hans og gældi varlega við bringuna á honum. — Nei, ekki núna, sagði hann og var gripinn djúpri og einkennilegri hryggð. Gætilega dró hann höndina á henni burtu, en sleppti henni samt ekki al veg. Hann gmnaði að hún segði þetta ekki í einlægni, heldur aðeins til þess að þóknast honum, hugga hann. Samt var gott að heyra hana segja þetta. A morgun tæki við magaspeglunin eftir sveskjukúrinn og hvað svo . . . Eftir síðustu rannsókn hafði hann ekki fengið ljós svör. Ekki svo að skilja að hann óttaðist neitt. En ekkert var fjær honum nú en að fara að „finna sér einhverja.“ Fyrir honum var heldur ekki nein önnur en hún, þótt hann mundi aldrei segja það. Nei, aldrei... — Hvemig er hann þessi Sylvíó þama. Ég á við hvort þið séuð mikið saman, hvort hann sé góður? Hann fann einhverja kynlega þörf fyrir að spyrja hana þessa. — Hvemig þá góður? Hún yppti öxlum og brosti dauflega. — Ekki eins og þú. Þú ert hundrað sinnum betri. Eiginlega er hann alls ekki góður. Hann er „shit“ — „big shit“ — „sporcaccione“. Þrjóskusvipnum brá fyrir á andlitinu aftur. — Hann var alltaf að reyna að fá mig til að gera nokkuð TMM 1992:2 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.