Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Blaðsíða 11

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Blaðsíða 11
að lifa eftir duttlungum hennar, þá er skáld- ið ekki á flótta undan hinu kvenlega, heldur stendur Þormóður ráðalaus andspænis áminningu um þverstæðukennt hlutskipti: Af því að skáldið er maður, þarf hann að svala kynhvötinni og það er ekkert dular- fullt við það. Og af því að maðurinn er skáld, þarf hann efnivið í frásögn, en ekki handan reynslu sinnar, heldur sækir hann efniviðinn í sína eigin reynslu. Hann er hluti af heiminum, af orðræðunni um heiminn, en sér hvorki í gegnum sjálfan sig í heim- inum, né það sem hann segir um hann. I huga hans gæti því hvílt vitneskjan um ágenga mótsögn: ástin getur tekið á sig einskonar dauðamynd, alveg eins og hatrið getur orðið kveikjan að lífi. Með þessu móti reynir hann á sjálfum sér þverstæðu mann- kyns: ástin, friðurinn og algleymið eru ekki óþrjótandi efniviður í frásögn af afrekum, á meðan hatrið, garpskapur og árásargirnd eru allt þættir sem stuðlað geta að frásögn af tilvist manns. í þessum skilningi vekur hið kvenlega ekki ótta skáldsins, heldur ástin/hvötin sjálf. Ohugnaðurinn er ástin, en kemur ekki í stað hennar. Það er vegna þess, að þráin eftir „skilyrðislausri viðurkenningu og ótakmarkaðri ást“ fellur sjálfkrafa í skugg- ann fyrir annarri og mun flóknari þrá; þránni eftir vitnisburði um tilvist manns, einhverju merki þess að maðurinn sé ekki dýr, heldur skynsemisvera. (Astin hefur til- hneigingu til þess að grafa undan þeirri hugmynd, enda mætir maðurinn oft smæð sinni einmitt þar). Það að garpskapurinn stuðli að frásögn af tilvist manns í mun ríkara mæli en ást, samruni, hamingja eða friður, er því mun harmrænna viðfangsefni en flótti hetju, skálds og konungs undan hinu kvenlega. Gerpla er nefnilega saga mannkyns, al- veg eins og Þormóður er bundinn af samfé- lagi sínu öllu. Hin freudíska hugmynd um að mann-dýrið geti fundið jafnvægi með af-bælingu og valið síðan ást í stað haturs, skynsemi í stað villimennsku, frið í stað stríðs, sannleika í stað blekkingar og al- gleymi í stað heimsendis, getur með engu móti rúmað móthverfur sögunnar. Á sama hátt geta ofangreindir valkostir ekki rúmað þverstæðu mannsins, þá þverstæðu sem móthverfur sögunnar greina frá. Eins og ástin getur verið dauði og hatur líf, þá getur villimennska verið skilyrði fyrir frásögn af skynsemisveru. Vist Þormóðs hjá grænlensku veiði- mannaþjóðinni er áhugaverð í þessu sam- hengi, en hægt væri að nefna samfélag þetta eina „friðgóða hérað“ sögunnar, svo ólíkt er það samfélaginu sem elur hetjur, kon- unga, skáld og Krist. Sérstaka athygli vekja ástin, friðurinn, jafnræðið, réttlætið ogjafn- vel sú hamingja sem ríkja innan þess. Og túlkandi gæti með góðu móti litið á menn- ingu þessarar þjóðar sem svar við hruni annarrar, þeirrar menningar sem elur á ást- leysi, hatri og endalausu dauðastríði. En veruleiki veiðimannsins er einhver napr- asta dauðamynd allrar frásagnarinnar, handan draums og blekkingar, einungis ein- litar endurtekningar sem aldrei geta orðið efniviður í frásögn af afrekum. Og ef við viljum fínna hliðstæða mynd, þá ber sælu- vist skáldsins í Ögri líklega hæst. Slík er dirfska, en jafnframt harmur sögunnar. Ástarhugmynd hins nýja femínisma, sem mér sýnist ekki eingöngu vera freudísk (eða freudísk-natúralísk), og þar með erfingi bælingartilgátunnar og vandamála hennar, heldur einnig og ekki síður rómantísk, jafn- vel trúarleg, getur ekki rúmað móthverfur TMM 1992:2 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.