Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Síða 84
Þetta er skemmtilegt og skondið og virðist
vera í ætt við heimspekilegan galgopahátt
og reynist stundum hugsað á þann veg.
Þetta er vissulega leikur að orðum og formi,
en ekki leikur leiksins vegna. Það býr meira
undir. Ætti að skilgreina verk Kristínar efn-
islega þá fjallar það fyrst og fremst um
einmanakennd manneskjunnar og þörf
hennar fyrir samneyti og ást. Frá því eru
reyndar ýmis frávik, en nær ævinlega glytt-
ir í boðskap eða ádeilukennda sýn eins og
hér, þar sem veist er að yfirborðsmennsku:
Einu sinni voru hjón sem elskuðu að
vera í tísku. Og þannig voru þau í mörg
ár. Þá fundu þau að þau höfðu aldrei
verið í tísku afþví þau voru svo mikið
útvortis en gerðu aldrei neitt innvortis.
(51)
Sjaldnast er auðvelt að skilgreina nákvæm-
lega hvað það er sem gerir að verkum að ein
bók tekur annarri fram í frumleika. En í bók
Kristínar er það hið óvenjulega og meðvit-
aða samspil þroskaðrar sýnar og
bamslegrar frásagnaraðferðar sem skapar
frumlegt og ferskt verk sem fyllt er
ísmeygilegri kímni.
Verk Kristínar geymir tæplega sjötíu sög-
ur. Sú aðferð sem hún temur sér, að segja
sem mest í fæstum orðum, er afar vanda-
söm og lánast ekki ætíð. I einstaka sögu
hefði mátt leiða hugsunina til meiri ögunar,
þar er eins og ekki hafi verið fullsamið.
Kristín er enn að glíma við þann vanda sem
hver ungur og metnaðarfullur rithöfundur
tekst á við af fullri alvöru: Að finna eigin
aðferð og farveg til að sameina fullkomlega
efni og stíl. Gyrðir Elíasson virðist hafa
fundið fulla lausn á þeirri þraut. Kristín
Ómarsdóttir, sem kann að vera hæfileika-
mesta skáldkona okkar af yngri kynslóð, er
enn að vinna að eigin lausn og það sama á
við um Guðmund Andra Thorsson.
***
(...) líf okkar allra var ekki eins og við
hefðum kosið að það yrði, ekkert okkar hafði
lifað fullnustu drauma — við höfðum öll,
sérhvert á sinn máta, lagt of hart að okkur til
að komast á ranga hillu í lífinu.
Guðmundur Andri Thorsson:
Islenski draumurinn
Guðmundur Andri Thorsson er sentiment-
alistinn í íslenskum nútímaskáldskap. I
verkum sínum sækist hann mjög meðvitað
eftir að stofna til tilfinningasambands við
lesendur sína gegnum stílinn.
Aðferð hans í Islenska draumnum er að
velja orð vandlega, íhuga hljómfall þeirra
og hrynjandi og leitast síðan við að mynda
taktfasta tóna innan textans. Á þann hátt
hefur hann skapað einlægt og eftirminni-
legt verk.
Guðmund Andra má vel nefna orðkera
með einfaldan smekk. Hann sannar ræki-
lega að góður stíll þarf ekki að byggjast á
því að skrifa „aðeins“ í staðinn fyrir „bara“
heldur getur hann einmitt falist í því að setja
„bara“ í stað „aðeins“. Guðmundur Andri
skrifar oft og tíðum hraðan talmálsstfl sem
virðist nokkuð í ætt við texta Einars Kára-
sonar en þar sem Einar segir sögu svo vel
að úr verður stfll þá skrifar Guðmundur
Andri svo góðan stíl að úr verður prýðileg
saga.
I Islenska draumnum, harmsögu tveggja
kynslóða, kemur berlega í ljós hversu gott
vald Guðmundur Andri hefur á ólíkum stfl-
brigðum. Hinn hraði talmálsstfll er ráðandi
í lýsingum á samskiptum Kjartans og
82
TMM 1992:2