Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Síða 109

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Síða 109
sjöundu hæðar“ (43) sem ég held að hefði, miðað við stemningu og stefnu bókarinnar, átt að vera síðasta ljóðið. „Snjókoma“ er allt of veikt lokaljóð í bók sem að öðru leyti er í innra jafnvægi, býr til óvenjulega persónulegt sam- hengi og verður manni furðulega náin frá fyrsta lestri. EinarÖm, félagi Sykurmoli, hefurgert kápu- mynd sem fellur algerlega að bókinni. Virðist fljótt á litið einföld (bamsleg mynd af húsi með glugga, dymm og strompi) en þar getur allt gerst ef nánar er gáð: Fjöll standa á haus, sól kemur upp undir tindum, stórborg undir vanga á manni, fiskar á þurrn landi, augu úti. Vel hugsað. Það er einkennilegur blómi í ungri, íslenskri ljóðlist um þessar mundir, ekki síður en um 1960 þegar Jóhannes úr Kötlum notaði þau orð fyrst. En ólíkt ungskáldum þá, sem vildu brjót- ast út úr því sem þeim fannst vera læst orðabúr atómskáldanna og ná til fjöldans, eru ungu skáldin núna hæstánægð með að vera á fámenn- um báti. Bókin er hið nýja átrúnaðargoð hinna læsu, og þeir sem lesa nýjar ljóðbókmenntir em í fínum forréttindaklúbbi. Ungu skáldin em stolt af að vera heiðursfélagar í þessum klúbbi og senda hvert öðm ljóðskeyti í bókum sínum til að undirstrika sérstöðuna. Bragi tileinkar Degi Sigurðarsyni ljóð í Ansjósum, forystu- manni hins nýja blóma um 1960, líka Gyrði Elíassyni, fremstum meðal ungskálda, sem ger- ir talsvert af þessú sama í nýju ljóðabókinni sinni, og Sjón, skáldi og sjónhverfingamanni. Skáld hafa auðvitað alltaf kallast á gegnum tíma og rúm, ort hvert til annars, ort um önnur skáld, vísað til eldri ljóða margvíslega. En þetta er dálítið sérstakt, einhvem veginn kumpánlegt, einkalegt. Þó að vel takist til hjá fmmlegum og skemmtilegum skáldum eins og Gyrði og Braga má gæta sín á að þetta verki ekki útilokandi á lesendur. Silja Aðalsteinsdóttir I Augu lesandans Sjón. ég man ekki eitthvað um skýin, Mál og menn- ing 1991.43 bls. Eg man ekki eitthvað um skýin er fyrsta opin- bera ljóðabók Sjóns eftir nokkurra ára ljóðahlé, sem skáldið notaði til að skrifa skáldsögur og leikrit. Skýin eiga ættir sínar að rekja til óopin- berrarafmælisútgáfu árið 1988, nótt sítrónunn- ar, sem Sjón gaf gestum í afmælisgjöf á afmæli sínu það ár. Skýin eru um margt líkari skáldsögum Sjóns en eldri ljóðum hans, eða öllu heldur koina þau í beinna framhaldi af skáldsögunum tveimur, í bókinni gætir prósaískrar ögunar og heildar. Líkt og í skáldsögum sínum Stálnótt og Engli pípuhatti og jarðarberi er Sjón sjálfur viðstadd- ur í ég man ekki eitthvað um skýin, hann er þó eiginlega sögupersóna fremur en ljóðmælandi, eins og hann var sögupersóna í skáldsögunum. Ekki gerir það bókina endilega persónulegri eða einlægari þó að þau undur gerist að skáldið stígi fram á fremstu síðu og krefjist meðvitundar lesandans um sjálft sig, útlit sitt: (ég vil að þið sjáið mig fyrir ykkur: dökkt hár og fölt andlit. lítil augu bak við sólgleraugu og rauðar varir luktar um suðuramerískan vindil.) (Bls. 5 og 42). Þannig lítur sögupersónan Sjón út í skýjunum. í Stálnótt (1987) var hann Johnny Triumph (Jón Sigur, Sigur-jón) og leit svona út: Langur og grannur, dökkhærður, snöggklipptur, [... ] klæddur svörtum jakkafötum og þvældri blúnduskyrtu [... ] og skómir úr leðri, sígildir og támjóir Og í Englinum (1989) var hann skuggi (af Steini og Steinn): Grannur með hátt enni og þunnar varir og litla höku og dökk gleraugu. Þessi leikur Sjóns með nálægð sjálfs sín í bók- TMM 1992:2 107
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.