Són - 01.01.2005, Síða 105

Són - 01.01.2005, Síða 105
105ÞANKABROT UM LJÓÐBYLTINGAR Segja má að Whitman standi utan við meginstraum nútímaljóða. Hann er mælskur og margorður, gefur tilfinningunum lausan taum- inn, notar mikið endurtekningar (ekki síst anafóru, endurtekningu í upphafi línu) og langar ljóðlínur. Engu að síður hefur hann haft áhrif á mörg skáld á tuttugustu öld, til að mynda bandarísku skáldin Carl Sandburg og Edgar Lee Masters og seinna Beat-skáldin, ekki síst Allan Ginsberg.49 Hann var kunnur meðal ljóðavina á Íslandi á fimmta áratugnum, og til dæmis átti Sigfús Daðason þá Leaves of Grass. En lengi vel átti hann sér fáa fylgjendur og því er rétt að rekja sögu fríljóðsins til frönsku ljóðbyltingarinnar. Nýr áfangi í sögu ljóðformsins verður í Englandi og Bandaríkjun- um á öðrum áratug 20. aldar í kringum þann fámenna hóp sem for- sprakkinn, Ezra Pound, gaf nafnið ímagistar. Megináherslan var eins og nafnið bendir til lögð á myndina, knappa og sjónræna ljóðmynd, og Pound skilgreindi hana 1913 á þá leið að í henni birtist „samruni vitsmuna og tilfinninga á ákveðnu andartaki“.50 Önnur vígorð voru nákvæmni í orðavali og sparsemi, engu orði skyldi ofaukið, og hrynj- andi skipti miklu máli. Í þriðju grunnreglu hreyfingarinnar hafði Pound boðað árið áður að hrynjandi ljóðs skyldi vera hrynjandi tónhendingarinnar, ekki taktmælisins.51 Það er að segja, hún skyldi vera tilbrigðarík og óbundin af reglukröfum bragarhátta. Fá ljóð hinna eiginlegu ímagista lifa. En ágætt dæmi eftir skáld sem stóð utan hreyfingarinnnar en varð snortinn af henni er til að mynda ljóðið „Fog“ eftir Carl Sandburg (Chicago Poems, 1916): The fog comes on little cat feet. It sits looking over harbor and city on silent haunches and then moves on. Frægasta ljóð ímagismans, birt 1913, átti þó Ezra Pound, og til er frásögn hans af því hvernig sýn á neðanjarðarstöð í París varð fyrst 49 Sbr. David Perkins (1976:313). 50 „An ‘Image’ is that which presents an intellectual and emotional complex in an instant of time.“ Og hann bætti við: „It is better to present one Image in a lifetime than to produce voluminous works.“ (1963:4). 51 „3. As regarding rhythm: to compose in the sequence of the musical phrase, not in sequence of a metronome.“ (1963:3).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Són

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.