Són - 01.01.2005, Page 124
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON124
Og Sigfús skýrir þetta nánar:
Nú virðist mér að sá punktur sem flest nútímaskáld hittast í sé
hnitmiðun eða samþjöppun (concentration). […] Þessi samþjöpp-
un kemur meðal annars fram í því að hugsun og form eru eitt,
en að mínu viti þarf að vísu meira til að ljóð sé nútímaljóð: að
hugsunin sé samkvæm nútímanum, að hún sé ekki tilraun til að
snúa sér undan frá veruleikanum.
Að svo mæltu vil ég árétta að ég lít svo á að allar ljóðabækur Sigfúsar
Daðasonar geymi nútímaskáldskap spjalda á milli.
Ort við núllpunkt 110
Þó að tína megi til ýmis rök því til skýringar að til byltingar á ljóð-
hefðinni kom í Evrópu og Bandaríkjunum verður því seint svarað svo
óyggjandi sé hversvegna sú bylting varð í Frakklandi nákvæmlega á
áttunda og níunda áratug 19. aldar og í enskumælandi löndum og
Þýskalandi á öðrum áratug hinnar tuttugustu. Bent hefur verið á lík-
leg áhrif frá frönsku stjórnarbyltingunni 1789 og falli Parísarkommún-
unnar 1871, frá vaxandi iðnvæðingu og borgvæðingu á þessu tímabili
og breyttri heimssýn sem tengja má nöfnum manna á borð við
Darwin, Marx, Nietzsche og Freud, en orsakasamhengið er þó og
verður óljóst. Þáttur einstaklinga í að móta gang ljóðlistarsögunnar
lýtur víst ekki heldur neinum lögmálum um orsakir og afleiðingar. Að
sumu leyti virðist skiljanlegra hversvegna ljóðbyltingin á Íslandi varð
á þeim tíma sem við þekkjum, eftir það mikla umbreytingaskeið í
íslensku þjóðfélagi sem seinni heimsstyrjöldin var.
Hvernig var umhorfs í andlegum efnum á Íslandi í lok stríðsins?
Við því er auðvitað ekkert eitt svar, en eitthvað afdrifaríkt hafði
gerst og var að gerast í vitund ungra skálda og listamanna og
augljóst að ekki yrði aftur snúið. Þó enganveginn væri ljóst hvert
förinni var heitið varð sú lest ekki stöðvuð sem nú var lögð af stað.
Gamall heimur var að hrynja og nýr að opnast og hinna ungu beið
umfram allt leit, endalaus leit. Þetta hafði reyndar einkennt alla
sögu nútímabókmennta: leit og tilraunir með nýtt inntak og ný
110 Eins og þeir sjá sem þekkja Skrifað við núllpunkt nota ég orðalagið í nokkuð ann-
arri merkingu en Roland Barthes.