Són - 01.01.2005, Page 149
UM LJÓÐABÆKUR UNGSKÁLDA FRÁ ÁRINU 2004 149
Haukur Ingvarsson er menntaður íslenskufræðingur og ber Niður-
fall þess greinileg merki; textinn er lærður og fremur athyglissjúkur,
vitsmunalegur fremur en tilfinningalegur og málnotkunin kjarnyrt og
háfleyg. Leikur að máli er eitt af aðalsmerkjum bókarinnar, ekki síst
á stöðum þar sem höfundur prjónar út frá orðum og hoppar með
hluta orðs yfir í nýtt samhengi og textinn fer að minna á rapp eða
„rímnabattl“: „[L]jóðrás er annað en blóðrás / hún er ekki árás né
útrás“ (bls. 17), „hverfum sjálfum okkur / verðum að andhverfum
okkar sjálfra / myndhverfumst í dýrið sem við óttumst á daginn“ (bls.
70). Þó nokkuð er um menntamanna húmor; sem dæmi má nefna
senuna þar sem ljóðmælandi kemur að bókabúð Máls og menningar
og hleypur fram hjá af áhrifafælni við Steinar Braga.9 Flest eru ljóðin
löng og vandlega stíluð, stundum svo mjög að merkingin verður
óskýr. En texti Niðurfalls er þéttur, oftast grípandi og aldrei leiðinlegur.
Bókin er full af gátum sem gaman er að glíma við. Sjálf listin er oft í
brennidepli, ljóðmælandinn og Mangi ræða mikið um muninn á
skáldskap og veruleika, og muninn á ljóðlistinni og öðrum listum:
„Það er nú lítið mál að vera skáld, maður tekur bara orðabók og
raðar upp úr henni orðum og kallar ljóð“ (bls. 60).
Mangaþættirnir eru áhugaverðir og afar hugmyndaríkir. Saman
mynda þeir skemmtilega heild sem er brotin upp með ljóðum sem
tengjast meginstraumi verksins mismikið. Niðurfall er því annað og
meira en bara safn ljóða. Það væri spennandi að sjá höfund þróa þessa
tilburði sína skrefi lengra og takast á við smásögur eða skáldsögur. En
þrátt fyrir það er styrkur Niðurfalls umfram allt falinn í stuttu ljóðun-
um, sem eru því miður of fá að mínu mati. Í ljóðinu „II heilabrot“
(bls. 72) spyr ljóðmælandi: „Segi ég of mikið? Læt ég of mikið uppi?“
Sé þessi spurning látin eiga við Niðurfall í heild neyðist ég til að svara
henni játandi.
5. Grilla? En það er október!?
Í fyrrahaust setti Stúdentaleikhúsið upp leiksýninguna Þú veist hvernig
þetta er og vakti hún meiri athygli en títt er um áhugaleiksýningar hér
á landi. Verkið er beitt ádeila á ýmsa þætti í íslenskum samtíma:
Aðkomu íslenskra stjórnvalda að Íraksstríðinu, klámvæðingu fjöl-
9 Bókabúð Máls og menningar er miðdepillinn í skáldsögunni Áhyggjudúkkur eftir
Steinar Braga. Kenningar um áhrifafælni eru uppistaðan í höfundarverki breska
bókmenntafræðingsins Harolds Bloom.