Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 24

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 24
24 byggir í það minnsta á þremur ámóta virkum hugmyndum um tíma, í fyrsta lagi framfaraviðmiði sem byggir á stigskipan fortíðar og nútíðar, í öðru lagi hugmyndum um stirðnuð samfélög þar sem fortíðin hefur tekið sér búsetu í nútímanum og í þriðja lagi jákvæðu mati dul-lendunnar á fornri siðmenningu sem áhersla er lögð á, bæði inn á við og út á við, sem samkvæmt Herzfelt getur í raun komið í veg fyrir miðlæga og valdamikla stöðu í heiminum: „Það að þau [fornu menningarsamfélögin] teygðu sig inn í nútímann ógnaði ekki í sjálfu sér sjálfsmynd „Evrópu“, þau virtust ekki á nokkurn hátt „raunverulega nútímaleg“.“57 Á bókasýningunni eru náttúra og bókmenntir ofnar saman og birtast sem fyrirbæri utan sögu- legs tíma og staðar og þannig er brotist út úr ramma tímans. Í grein um bókasýninguna í þýska dagblaðinu Die Welt var einnig komið inn á þetta. Þar yfirfærir höfundurinn einkenni náttúruaflanna á íslenskar bók- menntir: „Ekki bara stórbrotin náttúran, jöklarnir og goshverirnir eru eilífir, heldur er látið að því liggja að bókmenntirnar séu einnig hafnar yfir tímann og duttlunga hans.“58 Í framhaldi af kenningu minni um að náttúruöflin og menningin renni saman í almennri kynningu bókamess- unnar á Íslandi, tel ég að hér eigi sér stað nafnhvörf með hliðrun milli þátta, sem í þessu samhengi eru tengdir. Tengingin við hið upprunalega og eilífðarsjónarmiðið veitir einstakt tækifæri til að markaðssetja landið með jákvæðu viðhorfi til fortíðararfsins: menningin rennur saman við og skilyrðist af náttúrunni.59 Þannig er líka hægt að sneiða hjá hugmyndinni um tvenndarpörun hugtaka. Það er ekki bara í myndunum á heimasíð- 57 Michael Herzfeld, „The Absent Presence. Discourses of Crypto-Colonialism“, bls. 912. Á frummálinu: „As such, their [ancient civilizations’] extension into modern times did not pose as great a potential threat to the self-constitution of ‚Europe‘; they seemed unambiguously and emphatically not ‚really modern.‘“ 58 Richard Kämmerlings, „Im Lesemodus“, Die Welt 15. október 2011: http://www. welt.de/print/die_welt/kultur/article13657898/Szenen-einer-Buchmesse.html [sótt 20. janúar 2012]. Á frummálinu: „Nicht nur die ebenfalls präsentierte gran- diose Natur, die Gletscher und Geysire, ist ewig, auch die Literatur soll der Zeit und ihren Aufregungen enthoben sein.“ 59 Oslund færir rök fyrir almennri 19. aldar hugmynd um að gerð landslagsins endurspegli sögu landsins/þjóðarinnar. Eldfjöll og jöklar tengjast eiginleikum þjóðarinnar, svo sem sjálfstæði og æðruleysi. Sjá Karen Oslund, „Imagining Ice- land: narratives of nature and history in the North Atlantic“, The British Journal for the History of Science (3/2002), vol. 35, Cambridge: Cambridge University Press, bls. 313–334, hér bls. 323. Þetta sjónarmið á margt sameiginlegt með náttúru- og menningarsýn þeirri sem kemur fram í umfjöllun Oscars Geismar um Gunnar Gunnarsson. ANN-SOFIE NIELSEN GREMAUD
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.